Bandaríkin beita namibísku ráðherrana í Samherjamálinu refsiaðgerðum

Bandaríska utan­ríkismála­ráðuneytið hefur gefið það út að Sacky Shanghala og Bernhard Esau, fyrr­verandi ráðherrar í namibísku stjórninni sem sæta spillingar­ákærum vegna Samherja­málsins, megi ekki koma til Banda­ríkjanna, vegna þátttöku sinnar í spillingu.

Bernhard Esau, annar tveggja namibísku stjórnmálamannanna sem Bandaríkin hafa gripið til aðgerða gegn.
Bernhard Esau, annar tveggja namibísku stjórn­mála­mann­anna sem Banda­ríkin hafa gripið til aðgerða gegn. Mynd: Werner Menges/The Namibian

Bernhard Esau og Sacky Shanghala, namibísku ráðherrarnir tveir sem setið hafa í gæslu­varðhaldi síðan í árslok 2019 og sæta ákærum vegna Samherja­málsins í Namibíu, munu ekki lengur fá að ferðast til Banda­ríkjanna.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef bandaríska utan­ríkis­ráðuneytisins í dag, en þeir Esau og Shanghala eru sagðir hafa grafið undan trú namibísku þjóðarinnar á lýðræðis­legum stofnunum með því að hafa notað pólitísk áhrif sín og opinberar valda­stöður til að hagnast persónu­lega með þátttöku í mark­verðri spillingu.

Bandarísk yfirvöld ætla einnig að meina eiginkonu Esau og syni hans að ferðast til Banda­ríkjanna.

Segir utan­ríkis­ráðuneytið í tilkynningu að þessi aðgerð sé til stað­festingar á þeirri ætlan Banda­ríkjanna að styðja við aðgerðir gegn spillingu í Namibíu, sem séu lykillinn að farsælli framtíð landsins.

Utan­ríkis­ráðuneytið bandaríska segist jafnframt ætla að halda áfram að nota aðferðir sem þessar til þess að draga spillta menn til ábyrgðar, bæði í Afríku og víðar um heim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár