Segir að Birgitta hljóti að vera „ein af skipuleggjendunum“ á bak við aðför að Viðreisn og Bjartri framtíð

Þing­flokks­formaður Viðreisnar gagnrýnir málflutning stjórnar­andstöðunnar í fjöl­miðlum.

Hanna Katrín Friðriksson, þing­flokks­formaður Viðreisnar, segir að stjórnar­andstaðan máli flokkana Viðreisn og Bjarta framtíð upp sem viljalaus verkfæri Sjálfstæðis­flokksins. „Þú hlýtur að þekkja orðræðuna vegna þess að þú hlýtur að vera ein af skipuleggjendunum,“ sagði hún við Birgittu Jóns­dóttur í umræðum á Alþingi í dag.

Birgitta Jóns­dóttir hafði gert að umtals­efni ummæli sem Hanna Katrín lét falla í Silfrinu um helgina. Hélt Hanna Katrín því fram að fylgistap Viðreisnar og Bjartrar framtíðar mætti meðal annars rekja til þess að stjórnar­andstaðan hefði lagt áherslu á að „heimfæra góðu verkin upp á Sjálfstæðis­flokkinn“ og að „gera hag hans mikinn þarna og að sama skapi draga úr störfum hinna stjórnar­flokkanna“.

Birgitta vitnaði í pistil eftir blaða­manninn Atla Þór Fanndal þar sem rýnt er í ummæli Hönnu Katrínar og samstarfs­flokkar Sjálfstæðis­flokksins gagn­rýndir fyrir að hafa gefið eftir helstu stefnumál sín. 

„Mig langar í ljósi þessa að spyrja hátt­virtan þingmann hvað það sé nákvæmlega sem við þingmenn stjórnar­andstöðunnar höfum gert til að ausa lofi á Sjálfstæðis­flokkinn. Hvað ætlar hátt­virtur þingmaður að gera til að bregðast við því vantrausti sem hefur komið fram í skoðana­könnunum undan­farið, annað en að beina fingri að einhverjum öðrum?“ spurði Birgitta. 

Hanna Katrín þakkaði Birgittu fyrir tækifærið til að útskýra ummæli sín. „Þetta er rétt eftir mér haft. Misskilningurinn er hins vegar sá að ég var alls ekkert að kvarta. Þetta var bara viðurkenning. Þetta er eins og að vera tekin úr umferð í hand­boltanum í gamla daga,“ sagði hún og tók fram að hún hefði aðeins nefnt þetta í fram­hjáhlaupi í sjónvarps­þættinum. Þá taldi hún upp verkefni sem ríkis­stjórnin væri að vinna að þökk sé Viðreisn, svo sem breytingar á laga­umhverfi mjólkur­iðnaðarins, endur­skoðun búvöru­samnings og innleiðingu jafn­launa­vottunar, og benti á að kjör­tímabilið væri einungis nýfarið af stað. 

„Ætíð spyrt okkur við Sjálfstæðis­flokkinn, 
sem litla bróður, sem litla valda­lausa aðilann,
að við höfum gengist honum á hönd“

„Öll þessi mál eru unnin með hagsmuni almennings að leiðar­ljósi. Öll voru þau uppi á borðinu í kosninga­baráttunni,“ sagði Hanna Katrín. Á þessum tíma­punkti kallaði Birgitta fram í fyrir henni og spurði hvort Viðreisn hefði verið kosin til að draga vagn Sjálfstæðis­flokksins. Hanna Katrín svaraði: „Þið hafið endalaust notið þess, svo ég svari því nú til, og það er ekki hægt annað en að fara bara í umræðu ykkar í fjöl­miðlum almennt, ætíð spyrt okkur við Sjálfstæðis­flokkinn, sem litla bróður, sem litla valda­lausa aðilann, að við höfum gengist honum á hönd og svo framvegis. Þú hlýtur að þekkja orðræðuna vegna þess að þú hlýtur að vera ein af skipuleggjendunum. En þannig er þetta.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár