Íhaldsamir þingmenn í Bretlandi neituðu að skrifa undir siðareglur

Fyrr­verandi forsætis­ráðherra Bretlands, David Cameron, reyndi fyrir þremur árum að koma á siða­reglum og breyta verk­ferlum til að vernda fórnar­lömb kynferðis­legs áreitis á þinginu. Þingmenn Íhalds­flokksins neituðu að skrifa undir reglurnar.

Breska þingið
Breska þingið Mynd: Breska þingið á Flickr

David Cameron, fyrr­verandi forsætis­ráðherra Bretlands, er sagður hafa reynt að fá þingmenn íhalds­afla á breska þinginu til að skrifa undir siða­reglur til að vernda starfs­fólk þingsins fyrir kynferðis­legu áreiti árið 2014. Þetta kemur fram í frétt The Indepentent.

Fyrrum forsætis­ráðherrann hafði reynt að fá alla flokka og talsmann þingsins, John Bercow, til að styðja tillögu sína þess efnis að rann­sakendur og starfs­fólk öðlist rétt til þess að sækjast eftir gerðar­dóms­úrskurði. Tilraun þessi gekk ekki upp vegna andstöðu frá eldri þing­mönnunum.

Graham Brady, þingmaður Íhalds­flokksins, viðurkennir í viðtali við blaðið að íhaldsami armur þingsins hafi verið á móti því að skrifa upp á siða­reglur. Að hans mati varðaði þetta alla flokka en ekki einungis þann íhaldsama.

Ástæða þess að þetta kemur upp á yfir­borðið núna er að núverandi forsætis­ráðherrann, Theresa May, er að reyna að koma á svipuðum reglum. Um allan heim hafa konur risið upp og sagt frá reynslu sinni af kynferðislegri áreitni. Frá slíkum málum hefur jafnvel verið greint á þingum víðsvegar um heim, þar á meðal í Bretlandi.

Hún telur að verklagið á þingingu varðandi ásakanir um kynferðis­lega áreitni sé óviðunandi og bitlaust. Hún segist ekki trúa því að þetta ástand geti verið umborið lengur. Það væri einfald­lega ósanngjart gagnvart starfs­fólki þingsins, sérstak­lega þar sem margir þar eru ungir að árum og í fyrsta starfi sínu eftir nám.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár