Ritstjóri Markaðarins segir forystufólk verkalýðshreyfinganna popúlista

Bylt­ing­ar­fólk sem ekki ber hag venju­legs launa­fólks fyrir brjósti tók yfir verka­lýðs­hreyf­ing­arnar, skrifar Hörður Ægisson í leið­ara Frétta­blaðs­ins.

Popúlistar í verkalýðshreyfingunni
Popúlistar í verka­lýðs­hreyf­ing­unni Hörður Ægisson, rit­stjóri Mark­að­ar­ins, vandar verka­lýðs­hreyf­ing­unni ekki kveðj­urnar í leið­ara Frétta­blaðs­ins í dag.

For­ystu­fólk stærstu verka­lýðs­hreyf­inga lands­ins eru í besta falli popúlistar, bylt­ing­ar­fólk sem ekki ber hag hins venju­lega launa­manns fyrir brjósti. Þær leiðir sem umrætt for­ystu­fólk talar fyrir munu valda miklum skaða fyrir íslenskt efna­hags­líf, heim­ilin í land­inu og íslensk fyr­ir­tæki.

Þetta skrifar Hörður Ægisson, rit­stjóri Mark­að­ar­ins sem er við­skipta­hluti Frétta­blaðs­ins, í leið­ara Frétta­blaðs­ins í dag. Í leið­ar­anum rekur Hörður að árið 2014 hafi blikur verið á lofti í íslensku efna­hags­lífi þar sem raun­gengi krón­unnar hafi mælst undir með­al­tali og verð­bólga hafi verið um fjögur pró­sent á sama tíma. Nú, fjórum árum síðar hafi kaup­máttur launa auk­ist um ríf­lega 30 pró­sent, vextir hafi lækkað og Íslend­ingar upp­lifi eitt mesta hag­sæld­ar­skeið frá lýð­veld­is­stofnun.

Ástæð­urnar fyrir þessu góða gengi, skrifar Hörður, eru meðal ann­ars vöxtur í ferða­þjón­ustu og „ein­stak­lega vel heppnuð áætlun stjórn­valda við afnám hafta“. Það sæti því undrun að for­ystu­menn verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar reyni ekki að eigna sér hlut í þessum mikla árangri. „Þess í stað er tónn­inn sá að þorri launa­fólks hafi setið eftir og því eigi nú að fara fram með glóru­lausar kröfur um tug­pró­senta launa­hækk­anir á almennum vinnu­mark­aði. Allt er þetta með miklum ólík­indum. Það er eins og að vera staddur í ein­hverri hlið­ar­ver­öld þegar því er haldið fram, von­andi gegn betri vit­und, að hægt sé að ráð­ast í slíkar launa­hækk­anir á einu bretti án þess að eitt­hvað láti undan – við núver­andi aðstæður geta afleið­ing­arnar aldrei orðið aðrar en aukin verð­bólga eða stór­fellt atvinnu­leysi.“

Byltingaröfl tóku yfir verkalýðshreyfingarnar

Hörður heldur svo áfram og skrifar að laun á Íslandi séu þau næst­hæstu meðal OECD-ríkj­anna. Kaup­máttu hafi, mælt í erlendri mynt, meira en tvö­fald­ast frá árinu 2010. Áhyggjur af því að miklar launa­hækk­anir sem samið var um í kjara­samn­ingum 2015 myndu leiða til verð­bólgu­skots hafi ekki orðið að veru­leika. Hins vegar hljóti öllum að vera ljóst að staða efna­hags­mála á Íslandi sé þannig nú að ekki sé mögu­legt að end­ur­taka þann leik.

„Stærstu verka­lýðs­hreyf­ingar lands­ins voru teknar yfir, án mik­illar mót­stöðu, af bylt­ingaröflum sem þykj­ast bera fyrir brjósti vel­ferð hins venju­lega launa­manns í kom­andi kjara­samn­inga­lotu. Ekkert gæti verið jafn fjarri sanni. Stað­reyndin er sú að for­ystu­menn sam­tak­anna eru í besta falli popúlistar sem tala fyrir gam­al­kunnum leiðum sem munu valda miklum skaða fyrir íslenskt efna­hags­líf og um leið hags­muni heim­ila og fyr­ir­tækja nái þær fram að ganga. Það eru hags­munir allra sem vilja byggja upp raun­veru­lega hag­sæld til lengri tíma á grund­velli lágrar verð­bólgu, stöðugs gengis og lægri vaxta að koma í veg fyrir þá nið­ur­stöðu. Takist það ekki er vá fyrir dyrum.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár