Bjarni Benediktsson: „Svigrúm til launahækkana er orðið lítið sem ekkert“

Fjár­mála­ráð­herra segir rík­is­stjórn­ina ekki ætla að láta segja sér fyrir verkum í kom­andi kjara­við­ræðum. Fer hörðum orðum um áherslur verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar.

Bjarni Benediktsson: „Svigrúm til launahækkana er orðið lítið sem ekkert“

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra gagn­rýnir verka­lýðs­hreyf­ing­una harð­lega í við­tali sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í dag og segir margar af kröfu­gerðum verka­lýðs­for­ingja ekki eiga heima í kjara­við­ræðum. „Menn láta ekki segja sér fyrir verkum. Fæstar af þessum yfir­lýs­ingum snúa að því sem á að ræða við samn­inga­borðið,“ er haft eftir Bjarna. „Kjara­við­ræður á almenna mark­aðnum snú­ast um kaup og kjör en eiga ekki að snú­ast um sífellda kröfu­gerð á stjórn­völd.“

Bjarni segir svig­rúm til launa­hækk­ana minna en áður. „Það liggur fyrir, og hefur legið lengi fyrir, að svig­rúm til launa­hækk­ana er orðið lítið sem ekk­ert,“ segir hann. Þá nefnir Bjarni að það standi yfir vinna við að lækka neðra skatt­þrepið í tekju­skatts­kerf­inu, en eins og Stundin hefur áður fjallað um myndi slík lækkun skila þeim sem eru með meira en 835 þús­und króna heild­ar­laun á mán­uði þrisvar sinnum meiri skatta­lækkun en fólki á lág­marks­launum. Bjarni setur þó þann fyr­ir­vara að rík­is­stjórnin ætli að huga vel að sam­spili bóta­kerfa og skatt­þrepa. 

Fjár­mála­ráð­herra gefur lítið fyrir umræðu um að ákvarð­anir kjara­ráðs hafi skapað ósætti á vinnu­mark­aði. „Launa­þróun þeirra sem heyra undir kjara­ráð er þrátt fyrir alla umræð­una sam­bæri­leg við bæði almenna og opin­bera mark­að­inn,“ segir Bjarni og full­yrðir jafn­framt að lögð hafi verið fram gögn sem sýni að „kjörnir full­trúar sem síð­ast voru hækk­aðir á kjör­dag 2016 séu komnir á sama ról undir lok þessa árs og aðrir hópar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár