Launahækkanir forstjóra „ógeðslegt misrétti“

Lægstu taxtar hækka um 9.500 krónur næstu mán­að­ar­mót. Laun for­stjóra Lands­virkj­unar hækk­uðu um 800 þús­und krónur á mán­uði á síð­asta ári. Vil­hjálmur Birg­is­son verka­lýðs­leið­togi segir að stöðva verði mis­skipt­ing­una.

Launahækkanir forstjóra „ógeðslegt misrétti“
Segir þró­un­ina sorg­lega Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness, segir launa­hækk­anir til handa for­stjórum stærstu fyr­ir­tækja sorg­legar og „ógeðs­legt mis­rétti“.

Lægstu kaup­taxtar á Íslandi hækka um 9.500 krónur á mán­uði um næstu mán­að­ar­mót. Á síð­asta ári hækk­uðu laun sumra æðstu stjórn­enda fyr­ir­tækja í land­inu, þar á meðal rík­is­fyr­ir­tækja, um 200 þús­und á mán­uði og allt upp í einnar millj­óna krónu hækkun. Þannig hækk­aði for­stjóri Lands­virkj­unar, sem er að fullu í eigu íslenska rík­is­ins, um 800 hund­ruð þús­und krónur á mán­uði og laun for­stjóra Isavia, sem einnig er í rík­i­s­eigu, um 400 hund­ruð þús­und krónur á mán­uði. Verka­lýðs­leið­togi segir að um „ógeðs­legt mis­rétti“ sé að ræða.

Athygli vakti í síð­ustu viku þegar Björn Óli Hauksson, for­stjóri Isavia, viðr­aði áhyggjur sínar af kom­andi kjara­við­ræðum og því að farið yrði fram með miklar kaup­kröfur í þeim. Slíkt gæti skaðað sam­keppn­is­hæfni Kefla­vík­ur­flug­vallar, sem Isavia á og rekur. Líkt og Stundin greindi frá í gær hækk­uðu laun Björns Óla hins vegar um 400 þús­und krónur á mán­uði milli áranna 2016 og 2017 og á árs­fundi félags­ins var ákveðið að hækka laun stjórn­ar­manna Isavia um 15 þús­und krónur á mán­uði. Það er 5.500 krónum meiri hækkun en sú hækkun lægstu kaup­taxta sem kemur til fram­kvæmda um næstu mán­að­ar­mót. Sú 9.500 króna hækkun er enn fremur fyrir fulla vinnu á mán­uði en stjórn­ar­seta í stjórn Isavia er fjarri því að vera full vinna.

Segir þróunina sorglega

Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness, segir þær launa­hækk­anir sem for­stjórar íslenskra fyr­ir­tækja hafi tekið til sín á síð­asta ári, sem og þær launa­hækk­anir sem kjara­ráð hafi ákveðið að veita æðstu stjórn­endum rík­is­ins, sorg­legar og það einkum í sam­hengi við launa­þróun venju­legs verka­fólks. „Lág­marks­laun á Íslandi fara úr 280 þús­und og upp í 300 þús­und 1. maí næst­kom­andi. Lægstu taxtar eru hins vegar mun lægri, þeir fara úr 257 þús­und krónum rúmum og upp í 267 þús­und tæpar. Þó má ekk­ert fyr­ir­tæki greiða lægra en 300 þús­und krónur fyrir fullan mánuð. Það má hins vegar færa svokölluð vakta­álög og aðrar bón­us­greiðslur, mæt­inga­bónus eða eitt­hvað þvíum­líkt, inn í þessa lág­marks taxta þannig að þeir nái 300 þús­und krónum. Það er sem­sagt ekki heim­ilt að borga fólki eftir ber­stríp­uðum taxta. Ef atvinnu­rek­and­inn borgar enga bónusa eða álags­greiðslur þá ber atvinnu­rek­enda skylda til að greiða mis­mun­inn upp í 300 þús­und krónur. Það væri samt að mínu mati mun betra ef lág­marks­taxtar væru jafn­háir lög­bundnum lág­marks­launum.“

Skiljanlegt að fólk hrökkvi við

Á sama tíma og lægstu taxtar hækka sem sagt um 9.500 krónur hafa margir for­stjórar íslenskra fyr­ir­tækja og ráða­menn hækkað um allt frá 200 þús­und krónur og allt upp í eina milljón króna á mán­uði. Þannig hækk­aði for­stjóri N1 í launum um 1 milljón króna á mán­uði og hefur eftir hækk­un­ina 5 millj­ónir í mán­að­ar­laun. Vil­hjálmur hefur að und­an­förnu viðað að sér upp­lýs­ingum um hækkun hæstu launa og birt þær, svo sem sjá má hér. „Ég hef verið að draga saman þessar upp­lýs­ingar til að vekja athygli á þessu ógeðs­lega mis­rétti sem er í íslensku þjóð­fé­lagi. Samtök atvinnu­lífs­ins, Seðla­banki Íslands, fjár­mála­ráðu­neytið og bara stjórn­völd almennt tala um mik­il­vægi þess að ná hér hóf­stilltum kjara­samn­ingum í kom­andi kjara­við­ræðum. Á sama tíma erum við að sjá fjölda fólks sem er að taka til sín þetta frá 200 þús­und krónur og upp í einam milljón króna á mán­uði í launa­hækk­anir.“

Vil­hjálmur segir að fólk hrökkvi skilj­an­lega við þegar þessar launa­hækk­anir eru settar fram og í sam­hengi við laun almennra laun­þega. „Lægstu taxtar eiga að hækka um rúmar 9.000 krónur um næstu mán­að­ar­mót, í sam­an­burði við þessar brjál­æð­is­legu hækk­anir. Svo tala atvinnu­rek­endur og stjórn­völd um að það hafi tek­ist að hækka lægstu laun sér­stak­lega. Árið 2000 var lægsti taxti á íslenskum vinnu­mark­aði 71 þús­und krónur á mán­uði. Í dag er hann kom­inn upp í þessar 266 þús­und krónur, eða verður það um næstu mán­að­ar­mót, hefur sem sagt hækkað um 195 þús­und krónur á 18 árum. Á 18 árum. Við erum að horfa á stjórn­endur í atvinnu­líf­inu taka til sín 200 þús­und króna hækkun og allt upp í eina milljón á einu ári.“

Vilja krónutöluhækkanir og þrepaskiptan persónuafslátt

Vil­hjálmur segir að stöðva verði síaukna mis­skipt­ingu í sam­fé­lag­inu og það sé ótækt að laun þeirra sem lang­hæst hafi þau fyrir hækki með sömu pró­sentu­tölu og laun þeirra lægst laun­uðu. Með því muni bilið milli ríkra og fátækra bara halda áfram að aukast.  „Kjarni máls­ins er að notkun á pró­sentu­hækk­unum kjara er, að þær eru aflgjafi mis­skipt­ingar og órétt­lætis. Það þarf að fara að not­ast við krónu­tölu­hækk­arnir við hækkun launa. Það er ekk­ert eðli­legt við að fimm pró­senta launa­hækkun, til dæmis, skilar þeim sem hefur kannski fjórar millj­ónir í laun 200 þús­und króna hækkun. Á meðan skilar fimm pró­senta hækkun þeim sem hefur 300 þús­und krónur í mán­að­ar­laun 15 þús­und króna hækkun. Svo er sagt að báðir aðilar hafi fengið sömu launa­hækkun. Þetta er auð­vitað frá­leitt og launa­bilið milli efsta og lægsta lags sam­fé­lags­ins heldur áfram að aukast og aukast og verðu á end­anum stjarn­fræði­legt. Það er engin laun­ung á því að við verka­lýðs­leið­tog­arnir sem höfum verið að ræða saman að und­an­förnu, for­ystu­fólk Eflingar, VR, Fram­sýnar og Verka­lýðs­fé­lags Akraness, leggjum áherslu á það að hér verði í kom­andi kjara­samn­ingum gerð til­raun um að samið verði í formi krónu­tölu­hækk­ana. Það verði gert með sann­gjörnum hætti og reynt að láta þessi orð, sem menn eru alltaf að slá sér á brjóst með, um að lægstu laun hafi hækkað meira en önnur verða að alvöru veru­leika.“

Vil­hjálmur segir jafn­framt að það sé alveg ljóst í sínum huga að taka beri upp þrepa­skiptan per­sónu­af­slátt, það verði gerð krafa um það í kjara­samn­ingum. „Menn sem hafa þetta þrjár millj­ónir og upp í tíu millj­ónir í laun á mán­uði, þeir hafa bara ekk­ert við per­sónu­af­slátt að gera. Ef það er hægt að skerða til dæmis barna­bætur vegna launa þá er borð­legggj­andi að hægt sé að skerða per­sónu­af­slátt á hátekju­fólk.“

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár