Telur málflutning þingmanna Samfylkingarinnar pólitíska spillingu

Þingmaður Sjálfstæðis­flokksins skýtur föstur skotum að þing­mönnum Samfylk­ing­ar­innar og segir orðræðu þeirra ekkert annað en aðför að réttar­ríkinu.

Brynjar Níelsson
Brynjar Níelsson Mynd: Bára Huld Beck

„Orðræða sumra stjórn­málamanna í umræðunni er í mínum huga ekkert annað en aðför að réttar­ríkinu og með góðum rökum má kalla það pólitíska spillingu.“

Þetta segir Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, á Facebook-síðu sinni í dag.

Þar fjallar hann um þátt Kveiks, þar sem fram komu ásakanir um alvarleg brot Samherja, og segir Brynjar að þátturinn hafi eðlilega kveikt upp neikvæðar tilfinningar lands­manna. Hann segir að þegar slíkt gerist hoppi Samfylkingin strax á vagn sýndar­mennskunnar og slái í hvert sinn eigið met.

„Auðvitað kom breytinga­tillaga við fjárlögin frá Samfylkingunni um aukið fé til skatt­rannsóknar­stjóra og héraðs­saksóknara án þess að nokkur krafa hafi komið frá embættunum auk þess sem auknu fé hefur verið varið til rannsókna á peninga­þvætti og skatts­vikum. Síðan kom krafa um kyrr­setningu allra eigna Samherja án þess að laga­skilyrði væru fyrir því auk þess að það myndi valda félaginu, hundruðum fjöl­skyldna og þjóðinni allri verulegu tjóni. Reynt var að blanda saman við þetta mál fiskveiði­stjórnunar­kerfinu og gráa lista FATF í pólitískum tilgangi. Kæmi ekki á óvart að Samfylkingin gæti skráð sýndar­mennskuna í þessu máli í heimsmetabók Guinness,“ skrifar Brynjar.

Vonar að „þessu fólki“ verði ekki falið mikilvægt vald í framtíðinni

Hann segir að Íslendingar hafi stofnanir til að rannsaka mál og ákæra og dæma eftir atvikum. Mikilvægt sé að þessar stofnanir fái að vinna sitt verk án upphrópana og sýndar­mennsku stjórna­málamanna og telur Brynjar að landinn verði að læra af reynslunni í þeim efnum.

„Svo er ég alltaf jafn undrandi á að kjörnir fulltrúar leggi sérstaka áherslu á í málflutningi sínum að sverta Ísland um allan heim. Er Samfylkingin kominn fram úr Pírötum í þeim efnum. Vona innilega að þessu fólki verði ekki falið mikilvægt vald í fram­tíðinni til að gæta hagsmuna þjóðarinnar,“ skrifar hann að lokum.

Ósammála um hvort Ísland væri spillingarbæli

Kjarninn greindi frá því Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, hefðu tekist á í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í gær.

Logi sagði að hann ótt­að­ist að Ísland væri að teikn­ast upp sem spill­ing­ar­bæli í augum umheims­ins.

Bjarni svar­aði og sagði að honum fynd­ist það alvar­legt mál þegar for­maður stjórn­mála­flokks stigi í pontu Alþingis og teldi það rétta lýs­ingu á Íslandi að því væri líkt við spill­ing­ar­bæli.

Vill að eignir Samherja verði frystar

Helga Vala Helga­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, sagði í stöðu­upp­færslu á Face­book í fyrradag að í hennar huga kæmi ekk­ert annað til greina en að eignir Sam­herja yrðu frystar núna strax á meðan á rann­sókn stæði. „Um er að ræða rann­sókn á mögu­legu mútu­broti, pen­inga­þvætti og skatta­laga­brot­um. Hér er ekki um ein­hverja sjoppu að ræða heldur millj­arða­fyr­ir­tæki með umtals­verð umsvif í fjölda ríkja og skatta­skjóls­svæð­u­m.“

Hún minnti auk þess á að eignir dæg­ur­laga­hljóm­sveit­ar­innar Sig­ur­rósar hefðu verið frystar vegna rann­sóknar á meintum skatta­laga­brotum hljóm­sveit­ar­með­lima sem varð­aði nokkra tugi eða hund­ruð millj­óna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár