Ekki sammála um að Ísland sé spillingarbæli

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar deildu ekki sömu sýn á Ísland á Alþingi í dag.

Bjarni Benediktsson og Logi Einarsson.
Bjarni Bene­dikts­son og Logi Ein­ars­son. Mynd: Samsett

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, tók­ust á í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag.

Logi sagði að hann ótt­að­ist að Ísland væri að teikn­ast upp sem spill­ing­ar­bæli í augum umheims­ins. „Skemmst er að minn­ast að Ísland lenti á gráum lista vegna skeyt­ing­ar­leysis gagn­vart pen­inga­þvætti og þar er Ísland á meðal ell­efu ann­arra ríkja og Namibía er ekki meðal þeirra. Þá muna ein­hverjir eftir Panama­skjöl­unum þar sem rík­asti hluti þjóð­ar­innar kom eignum sínum undan til þess að forð­ast skatt­greiðslur sem almenn­ingur þarf að inna af hendi. Loks má minna á 10 ára afmæli Hrunsins þegar gráð­ugir fjár­glæfra­menn komu land­inu næstum því í þrot og allar spill­ing­ar­flétt­urnar í kringum það.“

Hann sagði að eitt fyr­ir­tæki væri nú að rústa orð­spori Íslend­inga ef sakir reyn­ist sannar – þetta væri óboð­leg hegðun gagn­vart fátæk­asta fólki í Afríku. Þar vísar hann í svo­kallað Sam­herj­a­mál sem hefur verið áber­andi í fjöl­miðlum síð­ustu daga síðan Kveiks-þátt­ur­inn og umfjöllun Stund­ar­innar birt­ist um málið.

Logi spurði Bjarna hvort hann hefði áhyggjur af því að fyr­ir­tæki sem treyst hefði verið til að nýta sam­eig­in­lega auð­lind þjóð­ar­innar bregð­ist því trausti og þeim skyldum með jafn afger­andi hætti og nú væri að teikn­ast upp og gæti lengt veru Íslend­inga á gráa lista FATF.

„Telur hæst­virtur ráð­herra að svo mik­ill auður geti safn­ast hjá einu fyr­ir­tæki að það geti skapað bæði orð­spor­s­vanda og kerf­is­á­hættu fyrir heila þjóð og haft áhrif á önnur útflutn­ings­fyr­ir­tæki?“ spurði Logi. Að lokum spurði hann ráð­herr­ann hvort hann myndi styðja það að láta aukið fé til hér­aðs­sak­sókn­ara og rík­is­skatt­rann­sókn­ar­stjóra til að upp­lýsa þessi mál.

„Engin innistæða fyrir svona dramatískum orðum“

Bjarni svar­aði og sagði að honum fynd­ist það alvar­legt mál þegar for­maður stjórn­mála­flokks stigi í pontu Alþingis og teldi það rétta lýs­ingu á Íslandi að því væri líkt við spill­ing­ar­bæli.

„Ég tel að það sé engin inni­stæða fyrir svona dramat­ískum orðum og þess­ari lýs­ingu á land­inu okkar. Og að það sé algjör­lega með ólík­indum í til­efni af því máli sem við ætlum að taka alvar­lega og láta við­eig­andi stofn­anir rann­saka og kom­ast til botn um hvernig málum er háttað í þessu til­viki að þá vil ég miklu frekar færa fram í umræð­una þá sýn á þetta mál að sýn umheims­ins á Ísland og sýn okkar Íslend­inga hvers konar þjóð við erum – í hvers konar landi við búum – ræðst ekki af ein­stökum svona málum heldur hvernig við tökum á þeim. Hvort við tökum þeim alvar­lega, hvort stjórn­völd bregð­ast við, hvort við höfum stofn­anir til þess að taka á málum – rann­saka, ákæra og dæma þegar það á við – en ekki af ein­hverjum ótrú­legum útlegg­ingum Sam­fylk­ing­ar­fólks sem ég hef fengið að fylgj­ast með núna síð­asta sól­ar­hring­inn um að rót alls vanda þessa máls liggi í sjálfu fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu sem er mært um allan heim fyrir að færa íslensku þjóð­inni umfram verð­mæti af nýt­ingu auð­lindar borið saman við aðrar þjóðir. Betri nýt­ingu á hverjum fiski. Meiri verð­mæta­sköpun fyrir hvern fisk dreg­inn á land,“ sagði ráð­herr­ann.

Hann sagði að að sjálf­sögðu hefði hann áhyggjur af Sam­herj­a­mál­inu. Að sjálf­sögðu hefði hann áhyggjur af orð­spori Íslend­inga sem gæti beðið hnekki vegna þessa máls. „En það ræðst af því hvernig við tökum á mál­inu hvernig úr því spil­ast. Og ef eft­ir­lits­stofn­anir þurfa aukið fé þá munu þær fá aukið fé.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár