Verðbólgan mælist nú 7,6 prósent – Ekki verið meiri í meira en tólf ár

Húsnæðis­kostnaður, matur og drykkur, nýir bílar og bensín hækkuðu í verði í síðasta mánuði. Verð á flug­fargjöldum dróst hins vegar saman. Verðbólga hefur ekki mælst jafn mikil á Íslandi frá því í apríl 2010.

Verð á flugfargjöldum lækkaði um 6,9 prósent milli mánaða. Aðrar hækkanir gerðu það hins vegar að verkum að verðbólgan hélt áfram að rísa.
Verð á flug­far­gjöldum lækk­aði um 6,9 pró­sent milli mán­aða. Aðrar hækk­anir gerðu það hins vegar að verkum að verð­bólgan hélt áfram að rísa. Mynd: Þórður Snær Júlíusson

Vísitala neyslu­verðs, sem mælir verðbólgu, hækkaði um 0,77 prósent í maí. Tólf mánaða hækkun hennar mælist nú 7,6 prósent en ársverð­bólgan mældist 7,2 prósent í síðasta mánuði. Án húsnæðis­liðarins væri verð­bólgan 5,5 prósent.

Í tilkynningu á vef Hagstofu Íslands segir að verð á mat og drykk hafi hækkað um 0,9 prósent í síðasta mánuði, kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði hafi hækkað um 2,3 prósent og verð á nýjum bílum um 2,1 prósent. Þá hafi verð á bensíni og olíu hækkað um 2,9 prósent en verð á flug­fargjöldum lækkaði um 6,9 prósent.

Í þjóð­hagsspá Greiningar Íslands­banka, sem birt var fyrr í mánuðinum, var því spáð að verð­bólgan myndi fara í 8,4 prósent í lok sumars en fara svo lækkandi.

Til að takast á við verð­bólguna hefur Seðla­banki Íslands hækkað stýri­vexti nokkuð skarpt. Þeir voru 0,75 prósent í fyrravor en eru nú 3,75 prósent. Búist er við því að vextirnir verði hækkaðir enn meira á næsta stýri­vaxtarfundi sem fram fer snemma í júní.

Gylfi Zoega, hag­fræði­pró­fessor og ytri með­limur í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans, skrifaði grein í Vísbendingu fyrr í maímánuði þar sem hann sagði að á næstu mán­uðum væri „nauð­syn­legt að virkir vextir Seðla­bank­ans hækki nægi­lega mikið til þess að raun­vextir hans verði jákvæðir að nýju“, sem þýðir að stýri­vextir bank­ans þyrftu að verða hærri en mæld verð­bólga í land­inu.

Í greininni benti hann á að raun­vextir væru neikvæðir og þótt afborganir af lánum hækki samhliða hærra vaxta­stigi þá sé raunvirði óverðtryggðra lána að lækka um rúmlega sjö prósent á ári við þessar aðstæður. „Hækk­andi verð­bólgu­vænt­ingar gætu valdið því að kraf­ist verði hærri launa í haust til þess að bæta launa­fólki upp bæði verð­bólgu þessa árs og vænt­an­lega verð­bólgu á næsta ári. Þessar launa­hækk­anir fara síðan út í verð­lag sem kallar á enn aðrar launa­hækk­an­ir. Slík víxl­verkun launa og verð­lags getur varað í árarað­ir. Þegar svo seðla­bankar reyna ná tökum á verð­bólg­unni þá krefst slíkt atvinnu­leysis með til­heyr­andi hörm­ungum fyrir þá sem fyrir því verða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár