Spá því að stýrivextir fari í fimm prósent og verðbólgan verði 8,4 prósent í lok sumars

Greining Íslands­banka spáir því að raunverð íbúða hækki um 13,1 prósent í ár á sama tíma og kaup­máttur launa dragist saman um 0,6 prósent. Nú vantar starfs­fólk í mann­aflsfrekar greinar og það mun að uppistöðu koma erlendis frá.

Spáin gerir ráð fyrir því að ferðamenn geti orðið allt að 1,6 milljón í ár.
Spáin gerir ráð fyrir því að ferða­menn geti orðið allt að 1,6 milljón í ár. Mynd: Bára Huld Beck

Stýri­vextir fara yfir fimm prósent fyrir lok þessa árs og verð­bólgan fer hæst í 8,4 prósent í lok sumars. Vextir munu byrja að lækka, í litlum skrefum, frá miðju næsta ári og verða við 4,5 prósent í lok árs 2024. Verð­bólgan verður áfram hjá á næsta ári, 5,9 prósent að meðaltali, en lækkað niður í 3,9 prósent árið eftir það.

Hagvöxtur í ár verður fimm prósent eftir 7,1 prósent samdrátt 2020 og hóflegan 4,3 prósent vöxtu úr þeirri stöðu í fyrra. Hann verður svo mun hægari á næstu tveimur árum þar á eftir, 26 til 2,7 prósent. Útflutningur í ár mun aukast um 20 prósent vegna þess að bati ferða­þjónustunnar mun drífa áfram vöxt í útflutningi og fjöldi ferða­manna verða allt að 1,6 milljónir í ár, eða tæplega 70 prósent af þeoim fjölda sem kom hingað á metárinu 2018. Atvinnu­leysið heldur samhliða áfram að lækka, verður 4,4 prósent í ár og lækkar niður í 3,7 prósent að meðaltali á næsta ári. Samhliða gæti orðið skortur á vinnuafli.

Krónan mun styrkjast um fimm prósent frá apríl 2022 og til loka árs 2024 og auknar erlendar fjár­festingar lífeyris­sjóða og áfram­haldandi inngrip Seðla­banka Íslands á gjaldeyris­markað munu vega gegn viðskipta­afgangi og sterkri erlendri stöðu.

Þetta eru helstu fregnirnar í nýrri þjóð­hagsspá Greiningar Íslands­banka sem birt var í morgun.

Íbúðamarkaðurinn var „tæmdur“

Í spánni er meðal annars fjallað ítarlega um stöðuna á íbúða­markaði og sagt að enn sé mikil eftir­spurnar­spenna þar. Raunverð íbúða hækkaði um ríflega tíu prósent árið 2021 og umtals­vert meira en kaup­máttur launa. Helstu ástæður þess voru hagstætt lána­umhverfi og góð staða heimil­anna, að mati Íslands­banka.

Það sé þó greining að ekki hafi verið byggt nóg til að anna þessari miklu eftir­spurn sem er til staðar. „Þrátt fyrir að framboð anni ekki eftir­spurninni hefur mikið verið byggt undan­farin tvö ár ef marka má gögn Hagstofunnar. Metfjöldi nýrra íbúða kom inn á markaðinn árið 2020 eða um 3.800 íbúðir en á síðasta ári fækkaði þeim nokkuð eða í um 3.200 sem þó er töluvert yfir meðaltali síðastliðinna ára.“

Ljóst sé að enn ríki verulegt ójafnvægi milli framboðs og eftir­spurnar, það eru miklu fleiri sem vilja kaupa en sem vilja selja. „Í raun má segja að markaðurinn hafi verið tæmdur en auglýstum eignum til sölu hefur fækkað um nær 70 prósent frá upphafi faraldursins enda hefur framboð af íbúðum til sölu aldrei mælst jafn lítið. Enn eru engin merki þess að eftir­spurn fari dvínandi en bæði er meðal­sölutími íbúða í sögulegu lágmarki um þessar mundir og töluverður fjöldi íbúða að seljast yfir ásettu verði.“

Raunverð íbúða hækkar skarpt en kaupmáttur dregst saman

Í þjóð­hagsspánni segir að Íbúðaverð hafi þegar hækkað um átta prósent að nafnvirði fyrstu fjóra mánuði ársins. Samkvæmt spá Íslands­banka mun raunverð íbúða hækka um 13,1 prósent í ár á sama tíma og kaup­máttur launa dregst saman um 0,6 prósent. Því er bilið milli kaup­máttar og raunverðs að breikka skarpt en þetta verður í fyrsta sinn í meira en áratug sem kaup­máttur launa dregst saman.

Þetta hefur leitt til þess að íbúðaverð er orðið afar hátt í sögulegu samhengi og þær aðgerðir sem Seðla­bankinn hefur gripið til vegna þessa hafa ekki virkað sem skyldi. Greining Íslands­banka telur að eina lausnin til að hefta hækkandi íbúðaverð sé einfald­lega að byggja meira.

Og það er verið að byggja meira. Nýleg talning Samtaka iðnaðarins og Húsnæðis- og mannvirkja­stofnunar sýnir að nú séu um sjö þúsund nýjar íbúðir í byggingu á landinu öllu. Þar af eru um fimm þúsund á höfuð­borgar­svæðinu og vonast er til að töluverður fjöldi þessara íbúða komi inn á markaðinn fyrir árslok. „Vonandi er það nóg til að anna bæði uppsafnaðri þörf sem þegar er til staðar en einnig lýðfræðilegri þróun,“ segir í spánni.

Nýtt starfsfólk mun koma að utan

Atvinnu­leysi rauk upp í kórónu­veiru­faraldrinum og stjórn­völd þurftu að grípa til stórtækra aðgerða til að mæta stöðu þess stóra hóps sem missti vinnuna vegna hans. Almennt atvinnu­leysi mæld­ist mest í jan­úar 2021, 11,6 pró­sent, og heild­ar­at­vinnu­leysi að með­töldum þeim sem enn voru á hluta­bótum í þeim mán­uði var 12,8 pró­sent.

Samkvæmt könnun Gallup fyrir Seðla­bankann og SA meðal 400 stærstu fyrir­tækja landsins telja um 40 prósent stjórn­enda nú að skortur sé á starfs­fólki, ekki síst í byggingar­starfsemi og ferða­þjónustu. Vanda­málið sem atvinnu­lífið stendur frammi fyrir hefur því snúist algjör­lega við. Fyrir rúmu ári vantaði störf fyrir fólk, nú vantar fólk í störfin.

Í þjóð­hagsspá Íslands­banka segir að fjöldi starfa sé nú orðinn meiri en fyrir faraldur en samsetning þeirra hafi líka breyst. „Nú eru um 20 prósent færri starfandi í ferða­þjónustu og tengdum greinum en fyrir faraldurinn. Það er því ljóst að það verður stór áskorun fyrir fyrirtæki í þessum geirum að ráða inn starfs­fólk á næstu misserum. Stór hluti starfs­fólks í þessum greinum hefur komið frá öðrum löndum og útlit er fyrir að þeim muni fjölga áfram samhliða bata í efnahags­kerfinu.“

Því má búast við að fjöldi erlendra ríkis­borgara sem búa á Íslandi haldi áfram að aukast. Þeir voru 56.100 í lok mars eða 14,8 prósent allra íbúa landsins. Til saman­burðar voru erlendir ríkis­borgarar hérlendis 21.900 í lok mars 2013, eða 6,8 prósent lands­manna. Þeim hefur því fjölgað um 34.200 á níu árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár