Telur nauðsynlegt að vextir Seðlabankans verði hærri en verðbólgan á næstu mánuðum

Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði og nefndar­maður í peninga­stefnu­nefnd Seðla­bankans, segir í grein í Vísbendingu að það sé nauðsynlegt að raun­vextir á Íslandi verði jákvæðir á næstu mánuðum. Hann segir einnig að nú sé tími til sátta á vinnu­markaði.

Gylfi Zoega prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands.
Gylfi Zoega pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands. Mynd: Skjáskot/RÚV

Gylfi Zoega, hagfræði­prófessor og ytri meðlimur í peninga­stefnu­nefnd Seðla­bankans, segir að á næstu mánuðum sé „nauðsynlegt að virkir vextir Seðla­bankans hækki nægilega mikið til þess að raun­vextir hans verði jákvæðir að nýju“, sem þýðir að stýri­vextir bankans þyrftu að verða hærri en mæld verðbólga í landinu.

Eftir síðustu vaxta­hækkun eru vextir Seðla­bankans 3,75 prósent en verðbólga 7,2 prósent, samkvæmt nýjustu mælingu Hagstofunnar. „Það hversu mikið nafn­vextir munu þurfa að hækka fer þá eftir þróun verðbólgu,“ skrifar Gylfi í grein sem birtist í nýjasta tölublaði Vísbendingar.

Þar gerir prófessorinn hagstjórn eftir kórónu­veiru­faraldurinn að umtals­efni og ræðir einnig um komandi kjara­samninga­gerð. Varðandi kjara­samningana segir Gylfi að mikilvægt sé að aðilar vinnu­markaðs sýni ábyrgð „með því að taka þjóðhagslegar afleiðingar kjara­samninga til greina við gerð þeirra.“

„Á vinnu­markaði er samið um skiptingu þjóðar­tekna á milli fjármagns og launa. Ósætti leiðir þá til ófriðar sem yfirleitt endar í því að laun hækka meira en fram­leiðni sem síðan veltur út í verðlag. Auðvelt er að benda launþega­hreyfingunni á að stilla kaup­kröfum í hóf en einnig verður að gera þær væntingar til eigenda fjármagns að stilla eigin væntingum í hóf,“ skrifar Gylfi.

„Nú er tími til að sættast!“

Hann segir auðvelt að benda á hvernig væri best að bregðast við þeim aðstæðum sem nú blasa við og nefnir aukið aðhald ríkis­fjármála, hækkandi vexti Seðla­bankans og raunvexti útlána banka og lífeyris­sjóða, auk þess sem að aðilar vinnu­markaðar komi sér saman um hóflegar launa­hækkanir sem samræmist lægri verðbólgu.

„En hvernig er útlitið þegar þetta er skrifað? Sumir leiðtogar launþega hrópa hástöfum þegar vextir hækka í 3,75% þótt raun­vextir séu neikvæðir og raunvirði óverðtryggðra lána að lækka um rúmlega 7% á ári. Jafnframt er ekki að heyra enn sem komið er að vilji sé til sátta á vinnu­markaði í haust. Á fjármagns­hlið vinnu­markaðarins er heldur ekki að heyra sáttatón. Eigendur margra stórra skráðra fyrir­tækja greiða sér milljarða í arð. Mörg þessara fyrir­tækja starfa við skilyrði fákeppni í krónu­hagkerfinu þar sem hagnaður stafar ekki að fullu af því að stjórn­endur hafi tekið áhættu í ákvörðunum eða komið með nýjungar í rekstri, svo vægt sé til orða tekið. Fréttir berast einnig af háum launa­greiðslum stjórn­enda margra af þessum fyrir­tækjum. Þótt þessar launa­greiðslur skipti litlu máli í þjóð­hagslegu samhengi þá gefa þær tóninn fyrir hinn almenna vinnu­markað,“ skrifar Gylfi.

Hann bætir því við að skortur á samstöðu og samhæfingu peninga­stefnu og ríkis­fjármála myndi líklega hafa í för með sér að vextir seðla­banka verði að hækka meira en annars væri nauðsynlegt á þessu ári og því næsta. „Ófriður á vinnu­markaði og miklar launa­hækkanir myndi kalla á enn meiri vaxta­hækkanir. Nú er tími til að sættast!“ skrifar Gylfi.

Í greininni segir hann að verðbólga gæti enn hækkað á næstunni og að þau sem eldri eru geti auðveldlega gert sér í hugarlund hvernig mál gætu þróast á neikvæðan hátt næstu misseri.

„Hækkandi verðbólgu­væntingar gætu valdið því að krafist verði hærri launa í haust til þess að bæta launa­fólki upp bæði verðbólgu þessa árs og væntanlega verðbólgu á næsta ári. Þessar launa­hækkanir fara síðan út í verðlag sem kallar á enn aðrar launa­hækkanir. Slík víxlverkun launa og verðlags getur varað í áraraðir. Þegar svo seðla­bankar reyna ná tökum á verð­bólgunni þá krefst slíkt atvinnu­leysis með tilheyrandi hörmungum fyrir þá sem fyrir því verða,“ skrifar Gylfi.

Hann fjallar einnig um verðbólgu og vexti í öðrum ríkjum og nefnir sérstak­lega að þrátt fyrir vaxandi verðbólgu séu seðla­bankavextir enn lágir í Banda­ríkjunum, Bretlandi, Svíþjóð, Danmörku og Noregi.

„Allar líkur eru á því að vaxta­hækkanir hafi byrjað of seint og verið of litlar í þessum löndum sem síðan kallar á hærri vexti og meiri samdrátt á næstu árum. Mistökin frá áttunda áratugnum hafa þá verið endur­tekin,“ skrifar Gylfi.

Hægt er að lesa grein Gylfa Zoega í heild sinni með því að gerast áskrifandi að Vísbendingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár