Blaðraði í átta og hálfan tíma gegn velferðar- og loftslagspakka Biden

Kevin McCarthy leiðtogi repúblikana í fulltrúa­deild Banda­ríkjaþings sló met í nótt er hann talaði í 8 klukku­stundir og 32 mínútur í þeim tilgangi að tefja framgang velferðar- og loftslags­mála­löggjafar Biden-stjórn­ar­innar.

Kevin McCarthy setti málþófsmet í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í nótt.
Kevin McCarthy setti mál­þófs­met í full­trúa­deild Banda­ríkja­þings í nótt. Mynd: EPA

Leiðtogi repúblikana í fulltrúa­deild Banda­ríkjaþings, Kevin McCarthy, setti nýtt met í morgun, er hann lauk við lengstu þingræðu sem haldin hefur verið í fulltrúa­deildinni svo langt aftur sem heimildir herma.

Þegar hann steig úr ræðustóli klukkan tíu mínútur yfir 5 að staðar­tíma í Washington hafði hann talað fram og til baka gegn laga­frumvarpi demókrata um aukin fjárútlát til velferðar- og loftslags­mála í heilar 8 klukku­stundir og 32 mínútur.

Með málþófi sínu náði McCarthy að koma í veg fyrir að gengið yrði til atkvæða um þessa umfangs­miklu löggjöf Biden-stjórnarinnar í gærkvöldi, en allir þingmenn Repúblikana­flokksins í fulltrúa­deildinni eru á móti málinu. Atkvæða­greiðsla fór hins vegar fram í dag – og málið var samþykkt.

Fyrra met sem heimildir eru til um, að minnsta kosti aftur til ársins 1909, átti Nancy Pelosi, þáverandi leiðtogi demókrata í fulltrúa­deildinni og nú forseti fulltrúa­deildarinnar.

Hún talaði árið 2018 í rúmar átta stundir gegn þáverandi áætlunum Trump-stjórnarinnar þess efnis að fella á brott landvistar­leyfi hundruð þúsunda einstaklinga sem komið höfðu ólöglega til Banda­ríkjanna á barns­aldri.

Pelosi nýtti sér þá, rétt eins og McCarthy nú, heimild sem leiðtogar flokkanna og forseti fulltrúa­deildarinnar hafa í þing­sköpum til þess að tala eins lengi og þeir vilja. Í umfjöllunum bandarískra miðla er þetta kallað „töfra­mínútu-venjan“.

Málið færist til Manchin og félaga í öldungadeildinni

Við samþykkt fulltrúa­deildarinnar á frumvarpi Biden-stjórnarinnar, sem felur í sér 1,85 billjóna dala útgjöld til velferðar- og loftslags­mála á næsta áratug, færist málið í hendur Öldunga­deildarinnar.

Þrátt fyrir að búið sé að skera fyrir­huguð útgjöld vegna frum­varpsins niður um rúman helming, ekki síst vegna deilna innan Demókrata­flokksins um hversu miklu fé skuli verja til þessara mála, er enn óvíst um afdrif þess þar.

Þing­mennirnir Joe Manchin og Kyrsten Sinema hafa talað eindregið fyrir því að frum­varpið verði allt minnkað að sniðum og dregið verði úr útgjöldum, en Joe Biden Bandaríkja­forseti hefur þó lýst því yfir að hann hafi trú á því að þau tvö og aðrir þingmenn demó­kratar muni veita þessari útgáfu stuðning sinn.

Allir þingmenn Demókrata­flokksins í öldunga­deildinni þurfa að samþykkja frum­varpið til þess að það eigi möguleika og það þýðir að þau Manchin og Sinema hafa í reynd neitunar­vald gagnvart öllum efnis­atriðum þess.

Joe Manchin hefur látið eftir sér hafa að hann sé ekki ánægður með allt það sem er í frum­varpinu eins og það lítur út í dag. Hann segist til dæmis ekki sáttur með að leiða í lög fjögurra vikna langt launað fæðingar­orlof fyrir alla Bandaríkja­menn í frumvarpi sem ekki njóti stuðnings repúblikana – og telur að það eigi að taka það út fyrir sviga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár