Maðurinn sem Biden þarf að semja við

Sá þingmaður sem talinn er verða með mest ítök í öldunga­deild Banda­ríkjaþings á komandi misserum er demó­kratinn Joe Manchin frá Vestur-Virginíu. Ætli demó­kratar að ná 51 atkvæði með sínum málum þarf að komast að samkomu­lagi við hann.

Nafn Joe Manchin verður það fyrsta sem flýgur upp í huga fréttamanna þegar umdeild þingmál eru lögð fyrir öldungadeild Bandaríkjaþings. Íhaldssamasti demókratinn mun hafa mikið um að segja hvort þau komist í gegn.
Nafn Joe Manchin verður það fyrsta sem flýgur upp í huga frétta­manna þegar umdeild þing­mál eru lögð fyrir öld­unga­deild Banda­ríkja­þings. Íhalds­samasti demókrat­inn mun hafa mikið um að segja hvort þau kom­ist í gegn. Mynd: EPA

Þegar ljóst varð 6. janúar að tveir demó­kratar hefðu verið kjörnir sem fulltrúar Georgíu­ríkis í öldunga­deild Banda­ríkjaþings beindist athygli strax að manni sem heitir Joe Manchin og situr fyrir sama flokk í öldunga­deildinni, sem fulltrúi Vestur-Virginíu.

Þegar úrslit lágu fyrir byrjaði nafn þing­mannsins að „trenda“ á Twitter og honum lýst í fjöl­miðlum sem einum sigurvegara auka­kosninganna í Georgíu, þrátt fyrir að þar hefði hann ekki tekið neinn þátt. Ástæðan er sú að hann er almennt talinn íhalds­samasti öldunga­deildar­þingmaður Demókrata­flokksins, sem hefur nú nauma stjórn í öldunga­deildinni.

Í frétta­skýringu Vox frá 6. janúar segir að núna á næstu dögum, þegar Joe Biden tekur við lyklunum að Hvíta húsinu og atkvæða­vægið í öldunga­deildinni færist demó­krötum í vil, muni fyrsta nafnið á vörum frétta­manna verða Joe Manchin, þegar umdeild mál koma fyrir þingið.

„Hvað finnst Joe Manchin um þetta?“ munu frétta­menn hugsa, enda ljóst að áherslur Manchin og frjáls­lyndari arms Demókrata­flokksins ganga ekki alltaf hönd í hönd og hann hefur starfað töluvert „yfir ganginn“ með kollegum sínum úr röðum repúblikana síðan hann settist í öldunga­deildina árið 2010.

Frá því að úrslitin í Georgíu­ríki urðu ljós hefur brandari gengið um á Twitter um að Vestur-Virginía muni njóta góðs af því vogarafli sem þing­maðurinn mun hafa í öldunga­deildinni. Taki í raun stakka­skiptum og verði mjög fram­tíðarleg í hvívetna, eins og sjá má:

Demókrati sem er fulltrúi stuðningsmanna Trumps

Að öllu gamni slepptu er Joe Manchin er gott dæmi um marg­breyti­leikann sem finna má í því tveggja flokka kerfi sem Bandaríkja­menn búa við. Að vera fram­bjóðandi demókrata í Vestur-Virginíu, þar sem 68,2 prósent atkvæða féllu Donald Trump í vil í byrjun nóvember, er hreinlega ekki alveg það sama og að vera demókrati í ríkjunum sem kusu Biden. Einungis í Wyoming-ríki hlaut Trump hærra hlutfall atkvæða en í Vestur-Virginíu.

Þrátt fyrir að Repúblikana­flokkurinn hafi átt góðu gengi að fagna í Vestur-Virgínu undan­farin ár og áratugi hefur Manchin náð að halda embætti sínu allt frá 2010, en áður en hann varð þingmaður hafði hann verið ríkis­stjóri frá árinu 2005, sem fulltrúi Demókrata­flokksins.

Byssur, þungunarrof og kol

Manchin er ósammála ýmsu sem Demókrata­flokkurinn hefur gert að áherslu­atriðum á landsvísu í forsetatíð Trumps. Til dæmis hefur hann stutt hann byggingu veggsins á landa­mærunum við Mexíkó og lagst alfarið gegn ákalli sumra demókrata um að draga úr fjár­framlögum til lögreglunnar.

Nýlega lýsti hann því yfir að honum þætti algjör þvæla að greiða út 2.000 dollara til allra Bandaríkja­manna í stuðnings- og örvunar­greiðslur vegna áhrifa heims­faraldursins.

„Ég veit ekki hvaðan í fjáranum þessir 2.000 dollarar munu koma. Ég sver til Guðs að ég veit það ekki. Það eru 400 milljarðar dollara til viðbótar,“ hafði Washington Post eftir Manchin um daginn.

Kola­vinnsla og -nýting er honum líka mikið hjartans mál enda mikil­vægur atvinnu­vegur í heima­ríkinu Vestur-Virginíu. Það stemmir illa við þær grænu áherslur sem Biden boðaði í kosninga­baráttunni og hyggst hrinda í framkvæmd.

Í félags­legum málefnum er hann líka langan veg frá áherslum frjáls­lyndari demókrata; hann er á móti hjóna­böndum hinsegin fólks, hefur beitt sér gegn réttindum kvenna til þungunar­rofs og vill verja stjórnar­skrár­bundinn rétt Bandaríkja­manna til þess að ganga með skotvopn. Andstöðu við þessi mál setur hann á oddinn, þegar hann sækir umboð kjósenda í Vestur-Virgínu.

Talið er öruggt að Manchin muni sjá til þess að Biden komi dómara- og embættis­manna­skipunum sínum og fjárhags­áætlunum í gegn með 48 atkvæðum demókrata og þeirra tveggja óháðu þingmanna sem kjósa með demó­krötum í öldunga­deildinni. Hvað einhverjar róttækar kerfis­breytingar varðar er hins vegar ólíklegt að Biden fái stuðning Manchin.

Vestur-Virginíu­maðurinn hefur til dæmis lýst þeirri afstöðu sinni að hann komi ekki til með að styðja laga­setningu sem miðar að því að einfaldur meirihluti dugi til þess að koma flestri almennri laga­setningu í gegnum öldunga­deildina. Í dag þarf almennt 60 atkvæði til þess að mál hljóti þar brautar­gengi, sem tryggir minni­hlutanum mikið vægi, ólíkt því sem er í fulltrúa­deildinni.

Manchin gæti því orðið Biden-stjórninni eilítið erfiður og eflaust mun þurfa að leita verulegra mála­miðlana við hann og aðra íhalds­samari þingmenn Demókrata­flokksins í öldunga­deildinni, til þess að koma málum í gegn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár