Inni í þinghúsinu voru óeirðarseggirnir við völd

Borgar­stjórinn vildi ekki liðsauka. Þing­lögreglan taldi viðbúnað nægilegan og alríkis­lögreglu­menn og þjóð­varðliðar létu lítið fyrir sér fara. Stórkostlegt vanmat á hættunni varð til þess að hundruð manna komust inn í þinghúsið með léttum leik.

Þau ruddust inn. Stukku yfir öryggis­girðingar sem komið hafði verið upp. Lítið mál. Ekkert mál. Svo gengu þau um ganga sjálfs Banda­ríkjaþings með fána sína, sum hver klædd furðu­fatnaði. Rétt eins og þau vissu að þannig myndu þau vekja athygli og undrun þeirra sem síðar fengju að sjá myndirnar.

Sumir fóru inn á skrif­stofur þingmanna. Komu sér þægilega fyrir við skrif­borðin. Flettu í gegnum blöð, mögulega trúnaðar­gögn. Skiptust á að setjast í stól þing­forseta í þing­salnum.

Tóku sjálfur. Voru hin rólegustu. Því inni í þing­húsinu voru þeir við völd.

Á meðan höfðu þingmenn og starfs­menn þingsins flúið undir jörðina. Þrætt sig með aðstoð lífvarða og lögreglu­manna í gegnum völundarhús ganga.

Þetta er sú birtingar­mynd sem margir hafa fengið af árásinni á Banda­ríkjaþing á miðvikudag. Inni í húsinu og fyrir utan kom þó til átaka. Einn lögreglu­maður lést. Einn úr innrásar­hópnum var skotinn til bana. Fimm hafa því týnt lífi vegna óeirðanna.

„Hvernig gat [lögreglunni] mistekist svona herfilega?“ segir öldunga­deildar­þing­maðurinn og repúblikaninn Lindsey O. Graham. „Þeir hefðu getað sprengt bygginguna í loft upp. Þeir hefðu getað drepið okkur öll.“

Fjölmargar spurningar hafa vaknað. Hvernig lifir maður það af að brjótast inn í miðstöð lýðræðis hins frjálsa heims? Enga nákvæma viðmiðun um viðbrögð yfirvalda er að finna, þetta hefur ekki áður átt sér stað.

Margir sem furða sig á því hvernig þetta gat gerst hafa deilt tísti bandaríska rapparans Noah Caine þar sem stendur við mynd af einum árásar­mannanna í stóli forseta öldunga­deildarinnar: Að komast hingað án þess að deyja er lifandi dæmi um forréttindi hvítra.

Innrás stuðnings­manna Donalds Trump í þinghúsið á miðvikudag afhjúpaði í besta falli gríðar­mikinn misbrest í öryggis­málum því þetta átti sér stað í höfuðborg Banda­ríkjanna, þar sem viðbúnaðar­stig var þegar hátt, og í sjálfu þing­húsinu, sem hefur yfir 2.000 manna sjálf­stæðu lögreglu­liði að ráða. Lögreglu­liði sem hefur það hlutverk að verja nokkrar byggingar og umhverfi þeirra. Lögreglulið sem er á pari við þau lið sem starfa í mörgum minni borgum og bæjum Banda­ríkjanna.

Hundruð manna tókst þó með að því er virðist lítilli fyrirhöfn, fyrst og fremst með fána­stangir og varnar­skildi að vopni, að brjótast inn fyrir varnar­línur lögreglunnar fyrir framan byggingarnar og svo alla leið inn í það og inn í þingsali hússins og skrif­stofur þingmanna.

En hvernig má það vera?

Það var ekki eins og mótmælin sem þúsundir stuðnings­manna forsetans fráfar­andi sóttu hefðu sprottið skyndi­lega upp. Þau höfðu verið skipulögð vikum saman og Trump sjálfur þegar um miðjan desember hvatt stuðnings­menn sína til að mæta á þau. Þetta var dagurinn sem þing­heimur átti að staðfesta – nú eða hafna – niður­stöðum forseta­kosninganna. Þá hafði Trump egnt stuðnings­menn sína í ræðu og riti (á Twitter) til að sætta sig ekki við „falska“ niður­stöðu kosninganna sem hann sagði, án nokkurra sönnunar­gagna, hafa verið „stolið“ af sér. Hann væri réttmætur sigurvegari og hefði unnið með miklum meirihluta.

Allir vissu það. Ekki síst andstæðingar hans.

Þegar rýnt er í upptökur og myndir af því sem fram fór við þinghúsið í fyrradag, og af nógu er að taka í þeim efnum, virðist í sumum tilvikum sem lögreglan hafi vart verið sýnileg, að minnsta kosti ekkert í líkingu við það sem hún var í fjölda­mótmælum sumarsins – þegar milljónir söfnuðust saman víðs vegar um Banda­ríkin og kröfðust réttlætis fyrir svarta í kjölfar morðsins á George Floyd. Í frétta­skýringu Washington Post, þar sem farið er yfir gjörðir lögreglunnar í upphafi óeirðanna, segir að svo virðist sem sumir lögreglu­menn hafi staðið aðgerða­lausir hjá á meðan múgurinn réðst til inngöngu í þinghúsið. Heimildar­menn dagblaðsins innan lögreglunnar segja að þing­lögreglunni og öðrum embættum sem eiga að tryggja lög og reglu undir þessum kringum­stæðum hafi mistekist. Þessir aðilar hafi vanmetið fjölda þeirra sem þátt tóku í mótmælunum og þann árásarhug sem margir voru í.

Annað sem vakið hefur athygli er að miðað við þá vitneskju að til fjölda­mótmæla myndi koma hafi þing­lögreglan verið illa undirbúin. Girðingum hafði verið komið upp við þinghúsið en þær voru lágar og ekkert mál að stökkva yfir þær. Þá voru lögreglu­mennirnir flestir í hefð­bundnum lögreglu­búningum – ekki óeirðar­búningum. Þeir voru klæddir til að fylgjast með mótmælum en ekki til að verjast innrás.

Í grein Washington Post, sem byggir á viðtölum við bæði lögreglu­menn og sérfræðinga aðra í löggæslu, vekja viðbrögð lögreglu­manna inn í húsinu einnig undrun. Svo virðist sem margir þeirra hafi staðið hjá og lítið brugðist við skaranum sem flæddi þar um ganga. Þetta eru atriði sem sérfræðingarnir telja sig sjá út frá mynd­böndum og myndum sem birtar hafa verið opinber­lega en formleg rannsókn á atburða­rásinni allri á auðvitað enn eftir að fara fram.

Annað sem hefur vakið mikla athygli er hversu fáir voru hand­teknir. Fólk sem hafði brotið sér leið inn í þinghúsið var rekið út úr því en var svo langflest frjálst ferða sinna. Í dag, föstudag, hefur komið á daginn að átökin milli lögreglu­manna og óróa­seggja utan og innan veggja þing­hússins hafi verið meiri en í fyrstu var talið og að minnsta kosti einn lögreglu­maður týndi lífi.

Hið meinta aðgerða­leysi einhverra lögreglu­manna á sér líklegast, að minnsta kosti að stórum hluta, þá skýringu að þeir áttu ekki von á þessu. Voru illa undir­búnir.

Og það skrifast á yfirvöld.

Steven Sund, lögreglu­stjóri þing­lögreglunnar, sagði að hún hefði undirbúið sig fyrir hörð mótmæli. En í staðinn hafi lið hans þurft að takast á við uppreisnar­menn sem sýndu af sér glæp­samlega hegðun.

Þrír yfirmenn þing­lögreglunnar sögðu af sér í gær, þeirra á meðal Sund. En ábyrgðin liggur einnig hærra í stjórn­kerfinu.

Hryllingsmynd í beinni

„Þetta er eins og að horfa á hryllings­mynd í beinni,“ segir Kim Dane, sem var yfirmaður þing­lögreglunnar á árinum 2012-2016. „Við æfum okkur og skipuleggjum á hverjum einasta degi til að koma í veg fyrir svona atburði. Hvernig þetta gerðist... ég skil það ekki.“

Dane bendir einnig á að það hafi komið sér á óvart hversu nálægt þing­húsinu lögreglan leyfði mótmælendum að koma þegar í upphafi. Þeir gátu staðið á tröppum þess. Þá furðar hann sig einnig á því að þeir sem komust inn hafi ekki þegar í stað verið hand­teknir.

Stuttu eftir að einn lögreglu­maður úr þing­lögreglunni hafði hleypt af skoti sem hæfði konu sem brotist hafði inn í þinghúsið í hálsinn tók lögreglan í Washington-borg yfir vettvanginn og það verkefni að koma óeirðar­seggjunum út úr byggingunni. „Það sem við gerðum var að endur­reisa lýðræðið fyrir öll Banda­ríkin,“ sagði Robert Contee, lögreglu­stjóri Washington-borgar í gær.

Aðrir sem þekkja til aðgerð­anna í þing­húsinu segja að þing­lögreglan hafi átt nóg með að tryggja öryggi þingmanna og starfs­manna þingsins. Hún hafi ekki haft mannafla til þess að fara í beinar og harðar aðgerðir gegn innrásar­liðinu, t.d. að handtaka fjölda manns. Með öðrum orðum: Allt fárið kom henni algjör­lega í opna skjöldu.

„Það átti enginn að vera svona nálægt þing­húsinu,“ sagði þingmaður repúblikana, Tim Ryan, á blaðamanna­fundi eftir innrásina en hann fer fyrir þingnefnd sem fer með fjár­veitingar til þing­lögreglunnar. Hann segir að fólk eigi að fá að mótmæla í nágrenni þing­hússins en ekki upp við það eins og gerðist í fyrradag. „Ég held að það sé alveg ljóst að það er hópur manna sem á eftir að verða atvinnu­laus bráðlega.“

Til að hafa það á hreinu...

Þegar stuðnings­menn Trumps tóku að streyma til Washington í byrjun vikunnar óttaðist borgar­stjórinn mest að þeir myndu vinna skemmdar­verk á torgi norður af Hvíta húsinu sem helgað hefur verið baráttu Black Lives Matter. Málin þróuðust þó á allt annan veg. Þing­lögreglan ber fyrst og fremst ábyrgð á þing­húsinu sjálfu og næsta nágrenni og þótt að mann­fjöldinn hafi vaxið í aðdrag­anda gærdagsins töldu yfirmenn hennar ekki þörf á aðstoð frá almennu lögreglunni í Washington. Einhver fjöldi alríkis­lögreglu­manna var í borginni en hafði verið beðinn að láta lítið á sér bera til að valda ekki óþarfa hræðslu meðal fólks.

Varnarmála­ráðuneytið heimilaði fyrirfram aðkomu 340 þjóð­varðliða að löggæslu í borginni á miðvikudag en með þeim skilyrðum að þeir myndu ekki bera skotvopn og tækju að sér stuðnings­verkefni eins og umferðar­stjórnun.

„Til að hafa það á hreinu þá er alríkis­hérað Columbiu [D.C.] ekki að óska eftir frekari alríkis­lögreglu­mönnum og hvetur ekki til liðs­styrks án samskipta við og eftir ráðleggingar frá [borgar­lögreglunni] ef slíkar áætlanir eru í bígerð,“ skrifaði borgar­stjórinn í bréfi til dómsmála­ráðuneytisins á þriðjudag.

Þegar fyrstu mótmælendurnir höfðu brotist inn í þinghúsið, með því að brjóta glugga með hlífðar­skjöldum sem þeir báru, opnuðu þeir dyr hússins fyrir öðrum. Þeir einfald­lega hleyptu skrílnum inn. Þá þegar var sent út neyðar­kall til annarra lögreglu­embætta og þau beðin um liðsstyrk. Við því var hins vegar ekki brugðist af krafti þegar í stað og langur tími leið raunar áður en t.d. þjóð­varðliðar voru kvaddir til. Þegar liðsauki barst voru þegar hundruð manna komin inn í þinghúsið og ástandið orðið óviðráðanlegt.

Fjöl­miðlar austan hafs og vestan hafa borið kennsl á óeirðar­seggina sem höfðu sig hvað mest í frammi. Sumir þeirra eru þekktir fulltrúar öfga hægri hópa eða talsmenn slíkra skoðana. Þessir hópar hafa margir hverjir lýst yfir stuðningi við Trump svo í raun ætti þátttaka þeirra í uppþotinu ekki að koma á óvart.

Einmana úlfar mynda hjörð

En það er eins og hún hafi komið lögreglu- og borgar­yfirvöldum á óvart. Skýringin felst, að mati Seyward Darby, ritstjóra tíma­ritsins Atavist Magazine og pistla­höfundar New York Times, í því að hingað til hefur verið litið á hvíta þjóðernis­sinna og aðra hægri öfgamenn sem marga ósamstæða hópa. Í fjöl­miðlum eru þeir kallaðir „einfarar“ eða „einmana úlfar“ þegar þeir fremja hermdar­verk. Á glæpi þeirra er svo litið sem „einstök tilvik“ – ekki skipulögð hryðju­verk. Mistökin felast í einmitt þessu; að samanlögð ógn hópanna hafi ekki verið metin. „Þeir geta ógnað og eru ógnandi og hér erum við svo stödd, í fyrstu viku ársins 2021, að fylgjast með óvelkominni sögulegri stund í Washington.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár