Óeirðirnar í Washington: Frá upphafi til enda

Trump tók sér góðan tíma í að kalla út liðsstyrk við lögreglu­mennina sem höfðu ekkert í skrílinn sem braust inn í þinghúsið í Washington í gær. Hersingin hafði þrammað að húsinu undir herópi leiðtoga síns.

Þær eru margar furðulegu myndirnar sem birst hafa í kjölfar innbrotsins í þinghúsið. Hér stormar einn uppreisnarseggur með suðurríkjafána um ganga og annar situr sallarólegur í sófa, með loðskinn um sig.
Þær eru margar furðu­legu mynd­irnar sem birst hafa í kjöl­far inn­brots­ins í þing­húsið. Hér stormar einn upp­reisn­ar­seggur með suð­ur­ríkja­fána um ganga og annar situr sall­ar­ó­legur í sófa, með loðskinn um sig. Mynd: EPA

„Land okkar hefur þurft að þola nóg. Við munum ekki sætta okkur við þetta lengur og um það snýst þetta allt saman. Svo ég vitni í eftirlætis orðin sem þið í raun funduð upp: Við ætlum að stöðva þjófnaðinn.“

Þessi orð Donalds Trump fráfar­andi Bandaríkja­forseta, sem hann lét falla á útifundi með þúsundum stuðnings­manna sinna í garði við Hvíta húsið í gær, útifundi undir yfir­skriftinni „Björgum Banda­ríkjunum“, voru það veganesti sem hersingin tók með sér er hún gekk fylktu liði að þing­húsinu í Washington. Í kjölfarið hófst fordæma­laus atburðarás sem endaði með dauða fjögurra manna.

Hér að neðan er atburða­rásin í hnotskurn.

Klukkan 6 í gærmorgun

Þúsundir stuðnings­manna Trumps undirbúa sig fyrir útifund með forsetanum í nágrenni Ellipse, 20 hektara garðs sunnan við Hvíta húsið. Margir höfðu þegar safnast saman um nóttina. Trump hafði sjálfur hvatt til mótmæla á Twitter þann 19. Desember þegar hann skrifaði: Stór mótmæli í D.C. 6. Janúar. Mætið! Þetta verður villt!“

Klukkan 10

Útifundurinn, undir slag­orðinu „Björgum Banda­ríkjunum“ hefst formlega með því að synir Trumps, Eric og Donald Jr., ávarpa mann­fjöldann. Rudy Guiliani, lögmaður forsetans fráfar­andi, ávarpaði einnig hópinn. Rétt fyrir hádegi var komið að Trump sjálfum að halda ræðu. „Að þessu loknu munum við ganga þarna niður eftir, ég verð þarna með ykkur, við ætlum að ganga þarna niður að þing­húsinu og við ætlum að hvetja okkar kjark­miklu þingmenn.“

Ræða Trump stóð yfir í rúmlega klukku­stund. Að henni lokinni hófst fjölda­ganga að þing­húsinu.

Klukkan 13 í gærdag

Þing­fundur beggja deilda banda­ríkjaþings hófst í þingsal fulltrúa­deildarinnar. Efni fundarins var stað­festing á úrslitum forseta­kosninganna í nóvember og þar með stað­festing á því að Joe Biden var rétt kjörinn forseti.

Klukkan 13.10

Aðeins fáum mínútum eftir að þing­fundurinn hófst hóf lögreglan að glíma við æsta stuðnings­menn Trumps fyrir framan þinghúsið. Trump, sem hafði skömmu áður lofað að slást í hóp mótmælenda gerði það ekki heldur fór beint inn í Hvíta húsið og fylgdist með atburða­rásinni í sjón­varpinu.

Klukkan 13.26

Lögreglu­menn úr sérstakri sveit þing­hússins rýma nokkrar byggingar sem því tilheyra, m.a. skrifstofu­byggingar.

Klukkan 13.33

Tilkynning berst um að óeirðar­seggir hafi komist inn í þann hluta þing­hússins sem aðskilur þingsali fulltrúa­deildar og öldunga­deildar.

Klukkan 13.40

Muriel Bowser, borgar­stjóri Washington, fyrir­skipar útgöngu­bann sem taka átti gildi fjórum klukku­stundum síðar. Lögreglan óskar eftir auknum mannafla á vettvang.

Klukkan 13.46

Elaine Luria, þingmaður Repúblikana, skrifar á Twitter að þing­salurinn hafi verið rýmdur eftir að tilkynning barst um sprengju utan við þinghúsið. „Stuðnings­menn forsetans eru að reyna að brjótast inn í þinghúsið og ég heyri eitthvað sem líkist byssu­skotum.“

Klukkan 14.11

Árásar­menn ná að brjóta sér leið í gegnum varnar­línur lögreglunnar vestan við þinghúsið. Um svipað leyti fara margir þeirra að klifra yfir veggi umhverfis húsið.

Klukkan 14.22

Fréttir berast af því að Mike Pence, vara­forseti Banda­ríkjanna, sé meðal þeirra sem lögreglan hafi fylgt út úr þing­salnum. Tveimur mínútum eftir að sú frétt berst skrifar Trump á Twitter:

„Mike Pence skorti hugrekkið til að gera það sem hefði átt að gera til að verja land okkar og stjórnar­skrá, að gefa ríkjunum tækifæri til að votta leið­réttingu [á kosninga­úrslitunum], ekki þessi fölsuðu og ónákvæmu sem þeir hafa áður beðið um vottun á. Banda­ríkin krefjast sann­leikans!“

Klukkan 14.38

Trump tístir á ný og skrifar: „Vinsam­lega virðið lögregluna okkar. Hún er sannarlega með okkur á bandi í landinu okkar. Haldið friðinn!“

Klukkan 14.39

Myndir eru birtar af því þegar uppreisnar­seggirnir brjóta rúður í gluggum sjálfs þing­hússins. Fimm mínútum seinna er tilkynnt um að byssu­skotum hafi verið hleypt af í sal fulltrúa­deildarinnar. Greint er frá því í fréttum að hópur manna hafi komist inn í salinn.

Margt gerist á næstu mínútum. Hver þing­maðurinn á fætur öðrum upplýsir um stöðuna á samfélags­miðlum. Að þeir hafi þurft að setja upp sérstaka hlífðar­skildi fyrir andlit, sem í er gasgríma, áður en þingsalir voru rýmdir og þeim komið í öruggt skjól. Rétt fyrir kl. 15 fara að berast myndir af uppreisnar­mönnunum sitjandi í pontu í þingsal öldunga­deildarinnar. „Ég hef aldrei komið hingað inn,“ hrópar kona til mann­fjöldans utan við þinghúsið, eftir að hún hafði náð að brjóta sér leið inn í húsið. „Við eigum þinghúsið. Við eigum ykkur!“

Nokkrir úr innrásar­liðinu fóru inn á skrif­stofur þingmanna og einn þeirra kom sér fyrir á skrif­stofu Nancy Pelosi, forseta fulltrúa­deildarinnar. „Við munum ekki hætta!“ stóð á miða sem hann lagði á skrifborð hennar.

Klukkan 15.13

Trump skrifar enn einu sinni á Twitter: „Ég bið alla í bandaríska þing­húsinu að halda friðinn. Ekkert ofbeldi! Munið, VIÐ erum flokkur laga og reglna – virðið lögin og okkar frábæra fólk í bláu. Takk fyrir!“

Dóttir hans, Ivanka, deilir tísti föður síns og ávarpar óeirðar­seggina sem „föður­landsvini“. Hún eyðir tístinu seinna.

Klukkan 15.21

CBS-sjónvarps­stöðin greinir fyrst fjölmiðla frá því að kona hafi orðið fyrir skoti í þing­húsinu og að ástand hennar sé alvarlegt. Lögreglan tilkynnti síðar að hún hefði látist.

Klukkan 15.25

Meira en klukku­tíma eftir að fólkið ruddist fyrst inn í þinghúsið tekst lögreglu að koma því út úr húsa­kynnum öldunga­deildarinnar.

Klukkan 15.36

Þjóð­varðlið 1.100 manna er loks hvatt á vettvang til að aðstoða lögregluna. Trump beið í margar klukku­stundir frá upphafi ólátanna að kalla það út. Heimildir CNN herma að hann hafi í fyrstu neitað að gera það, jafnvel eftir að ljóst var að vopnaðir menn hefðu brotið sér leið inn í þinghúsið sjálft. Í sumar hikaði hann ekki við að kalla slík lið til aðstoðar lögreglu í að minnsta kosti 23 ríkjum, alls um 17 þúsund manna aukalið. Það var í tengslum við mótmæli Black lives matter.

Um svipað leyti eru fréttir að berast af því að lögreglu­menn hafi særst í átökum við uppreisnar­mennina.

Klukkan 16.15

Joe Biden ávarpar þjóðina í sjónvarpi og segir atburðina „fordæma­lausa árás“ og hvetur Trump til þess að bregðast við.

Klukkan 16.17

Trump birtir einnar mínútu langt myndband á Twitter þar sem hann segir m.a.: „Ég veit að þið finnið sársauka. Ég veit að þið eruð sár. Kosningunum var stolið af okkur. Við unnum með yfir­burðum og allir vita það, aðallega andstæðingarnir. En þið verðið að fara heim núna. Við verðum að halda friðinn. Við verðum að hafa lög og reglu. Svo farið heim. Við elskum ykkur, þið eruð mjög sérstök í okkar huga. Ég veit hvernig ykkur líður. En farið heim og farið heim í friði.“

Einhverjum tístum forsetans um óeirðirnar hefur verið eytt af reikningi hans. Þá ákvað Twitter í nótt að loka fyrir nýjar færslur frá Trump.

Klukkan 20 í gærkvöldi

Þingmenn halda fundi sínum áfram eftir að árásar­mennirnir höfðu verið fjar­lægðir úr þing­húsinu.

Þeir staðfesta nokkru síðar niður­stöðu kosninganna: Joe Biden er rétt­kjörinn forseti Banda­ríkjanna.

Fjórir létust í átökunum í nótt. Tugir voru hand­teknir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár