Svandís boðar breytingu frá stefnu Bjarna: Grænmetið verði ódýrara en gosdrykkir dýrari

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra boðar end­ur­komu syk­ur­skatts í breyttri mynd. Hærri skattar á syk­ur­vörur verði nýttir til að ívilna græn­meti. Syk­ur­neysla er mest á Íslandi af öllum Norð­ur­lönd­unum.

Svandís Svavarsdóttir
Svandís Svav­ars­dóttir Mynd: Pressphotos

Tæpum fjórum árum eftir að Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra aflagði syk­ur­skatt­inn svo­kall­aða sem leiddi af sér veru­lega verð­lækkun á sykruðum mat­vælum boðar Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra að inn­leiða beri hærri skatt á gos­drykki og lækka skatta á græn­meti. 

Svandís kynnti í dag fyrir rík­is­stjórn­inni til­lögur Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins um breyt­ingar á sköttum á mat­væli til að styðja við lýð­heilsu. Þar kom fram að „syk­ur­neysla sé mjög mikil hér á landi, hún sé yfir ráð­lagðri hámarks­neyslu meðal ungs fólks og barna og í sam­an­burði við hinar Norð­ur­landa­þjóð­irnar sé neysla á sykruðum gos­drykkjum og syk­ur­ríkum vörum mest hér á landi.“ 

„Fjár­munir sem koma inn séu nýttir til að lækka álögur á græn­meti og ávexti.“

Leiðin sem Svandís og Land­lækn­is­emb­ættið leggja til er að færa gos­drykki úr 11 pró­sent skatt­þrepi virð­is­auka­skatts í 24 pró­sent, eins og almenn skatt­heimta á við um. Þá er lagt til að vöru­gjöld á gos­drykki verði end­ur­reist.

Rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna hækk­aði skatta á syk­ur­vörur 1. mars 2013, en rík­is­stjórn undir for­ystu Bjarna Bene­dikts­sonar og Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar aft­ur­kall­aði breyt­ing­arnar. 

Á sama tíma voru skattar á græn­meti og önnur mat­væli hækk­aðir um 4 pró­sentu­stig, úr 7 pró­sentum í 11 pró­sent. Svandís, ásamt emb­ætti land­læknis sem er stutt af Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­inni WHO, leggur til öfuga þróun, að ríkið stuðli að því að verð á græn­meti lækki en verð á syk­ur­vörum hækki.

Bjarni og Sig­mundurVirð­is­auka­skattur á mat­væli var hækk­aður í tíð Bjarna Bene­dikts­sonar og Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, en verð lækkað á sykruðum mat­vælum með aflétt­ingu vöru­gjalda á þau.

„Fjár­munir sem koma inn séu nýttir til að lækka álögur á græn­meti og ávexti. Eyrna­merkja ætti hluta af álög­unum fyrir starf á sviði heilsu­efl­ingar eins og gert er með gjöld á tóbak og áfengi. Þannig geta stjórn­völd skapað aðstæður sem hvetja til heil­brigð­ari lifn­að­ar­hátta og aukið jöfnuð til heilsu,“ segir í kynn­ingu á til­lög­unum.

Í til­kynn­ingu á vef heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins segir Svandís „mik­il­vægt að stjórn­völd fjalli um til­lögur Embættis land­læknis“ og vísar til stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks.

„Þetta var ein­fald­lega enn einn skatt­ur­inn á íslensk heim­ili sem er tíma­bært að afnema.“

Afnám syk­ur­skatts­ins á sínum tíma var rök­stutt af fjár­mála­ráðu­neyti Bjarna Bene­dikts­sonar með því að skatt­ur­inn hefði lítil sem engin áhrif á neyslu og að þörf væri á því að ein­falda virð­is­auka­skatts­kerfið.

„Rétt er að taka fram að með afnámi syk­ur­skatts­ins er ekki verið að taka neina afstöðu með syk­ur­neyslu, síður en svo. Stað­reyndin er sú að þetta gjald leggst ein­fald­lega með þriggja millj­arða þunga á íslensk heim­ili. Þetta gjald, sem komið var á undir for­merkjum neyslu­stýr­ingar eða í bún­ingi lýð­heilsu­m­ark­miða, hefur engan veg­inn náð þeim til­gangi og var aldrei lík­legt til þess. Þetta var ein­fald­lega enn einn skatt­ur­inn á íslensk heim­ili sem er tíma­bært að afnema. Það munum við gera með þeim til­lögum sem liggja fyrir þing­inu til hags­bóta fyrir heim­ilin í land­inu,“ sagði Bjarni í umræðu um stefnu­ræðu for­sæt­is­ráð­herra árið 2014.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár