Atvikið í Svíþjóð var umfjöllun á Fox News

Hryðju­verkin í Svíþjóð sem Donald Trump minntist á í nýlegri ræðu áttu sér aldrei stað. Nú segir Trump að hann hafi verið að vísa í sjónvarps­umfjöllun um glæpa­aukningu vegna fjölgunar innflytjenda. Glæpa­tíðni hefur haldist nær óbreytt í Svíþjóð í áratug.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Donald Trump, forseti Banda­ríkjanna, segir að yfir­lýsing hans um það sem hefði gerst í Svíþjóð fyrir helgi hafi verið vísun í umfjöllun sem hafði verið sýnd á sjónvarps­stöðinni Fox News og fjallaði um innflytjendur og Svíþjóð. Þetta kemur fram í stöðu­uppfærslu á Twitter sem forsetinn setti inn í gærkvöldi.

Í ræðu sem Trump hélt á fundi með stuðnings­mönnum sínum í Flórída nefndi hann Svíþjóð, Þýskaland, París, Nice og Brussel sem dæmi um staði sem Bandaríkja­menn ættu að horfa á til að átta sig á hvers konar ástand væri í heiminum. Á öllum þessum stöðum, að Svíþjóð undan­skildu, hafa verið framin hryðju­verk á undan­förnum árum.

Svíar stóðu hins vegar eftir á gati og málið vakti mikla athygli á samfélags­miðlum. Þar var gert stólpa­grín að yfir­lýsingu Trump, enda engin hryðju­verk framin í Svíþjóð á föstudag. Carl Bildt, fyrr­verandi forsætis­ráðherra Svíþjóðar, spurði á Twitter hvað Trump hefði eiginlega verið að reykja.

Sænskum stjórn­völdum var ekki jafn skemmt og kröfðust svara. Margot Wallström, utan­ríkis­ráðherra Svíþjóðar, brást m.a. við með því að krækja inn á færslu um að „post truth“ hefur verið valið orð ársins af Oxford orða­bókinni árið 2016. Hún setti einnig inn færslu á Twitter þar sem hún krækti inn í ræðu sem hún flutti í sænska þinginu í síðustu viku. Í ræðunni sagði Wallström að ríki þurfi að ræða við hvort annað, ekki bara um hvort annað, til að virða skuld­bindingar og leyfa hugmyndum að keppa við hvora aðra. Virkt lýðræði og uppbyggileg samvinna milli ríkja feli einnig í sér að vísindi, stað­reyndir og fjöl­miðlar séu virt. Sömuleiðis að viska hvors ríkis fyrir sig sé viðurkennd.

Í tilkynningu sem Hvíta húsið sendi frá sér á vef sínum í gærkvöldi sagði að Trump hefði ekki verið að tala um sérstakt atvik í Svíþjóð heldur fjölgun afbrota og ýmissa atvika.

Nú er komið í ljós að Trump var að vísa til umfjöllunar sem hann sá á sjónvarps­stöðinni Fox News á föstudag.

Þá var sýnd umfjöllun sem innihélt m.a. viðtal við kvikmynda­gerðar­manninn Ami Horowitz, sem heldur því fram að hluti innflytjenda sem Svíþjóð hafi tekið við hafi rík tengsl við glæpa­starfsemi. Í umfjölluninni sagði Horowitz m.a. að Svíþjóð hafi orðið fyrir fyrstu hryðjuverka­árásinni af hendi múslímsk hryðju­verkamanns fyrir skemmstu og að landið sé að fá að finna fyrir því sem sé að eiga sér stað víða um Evrópu nú þegar. Horowitz sagði einnig að Svíar reyndu oft að fela tilvist þessara glæpa.

The Guardian telur að Horowitz hljóti að vera að vísa í sjálfsmorðs­árás sem sænskur ríkis­borgari, fæddur í Írak, framdi í Stokk­hólmi árið 2010, ári áður en borgara­styrjöld brast á í Sýrlandi og Líbýu sem gerði það að verkum að gríðar­legu fjöldi fólks flúði miðausturlönd í leit að öryggi og betra lífi í Evrópu og víðar.

Ekki sýni­leg glæpa­alda með auknum flótta­manna­straumi

Sví­þjóð tók við 163 þús­und flótta­mönnum árið 2015, sem var metfjöldi. Því hefur einnig verið haldið fram að glæpum í Sví­þjóð hafi fjölgað mikið sam­hliða auknum flótta­manna­straumi inn í land­ið. Í tölum sem sænsk stofnun sem ein­beitir sér að glæpafor­vörnum (e. The Swedish National Council for Crime Prevention) birti í jan­úar 2016 kom hins vegar fram að til­kynntum nauðg­unum hefði fækkað um tólf pró­sent á milli áranna 2014 og 2015 og smá­þjófn­uðum um tvö pró­sent.

Í annarri úttekt stofn­un­ar­innar sést að hót­an­ir, áreitni, lík­ams­árásir og rán voru hlut­falls­lega færri í Sví­þjóð árið 2014 en þau voru árið 2005. Kyn­ferð­is­legar árásir og til­kynnt svik voru hlut­falls­lega eilítið fleiri. Heilt yfir hefur tíðni glæpa sem framdir eru í Sví­þjóð lækkað frá árinu 2005.

Í umfjöllun vef­mið­ils­ins thelocal.se frá því í febr­úar 2016 sagði blaða­full­trúi sænsku lög­regl­unn­ar, Lars Byström, að hvorki ferða­menn né íbúar Stokk­hólms ættu að finn­ast þeir vera í nokk­urri hættu í borg­inni. Að hans mati væri borgin nokkuð örugg. Í nið­ur­stöðum nýrrar rann­sókn­ar, sem birtar voru í hinu virta fræði­riti Lancet, kom fram að Sví­þjóð er í þriðja sæti í heim­inum þegar kemur að því að upp­fylla þau heilsu­m­ark­mið sem Sam­ein­uðu þjóð­irnar setja aðild­ar­ríkjum sín­um. Þau snú­ast meðal ann­ars um ofbeldi og félags­leg jafn­ræði.

Kjarninn birti Staðreynda­vakt um yfir­lýsingar um aukið ofbeldi í Svíþjóð vegna fjölgunar flótta­manna í aðdrag­anda síðustu þing­kosninga hérlendis. Niður­staða hennar var að yfir­lýsingar þess efnis væru fleipur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár