Innflytjendur í Svíþjóð hafa ekki fellt úr gildi sænsk lög í tugum hverfa

Helgi Helgason, formaður Íslensku þjóðfylkingarinnar.
Helgi Helgason, for­maður Íslensku þjóð­fylk­ing­ar­innar. Mynd: RÚV/Skjáskot

Íslenska þjóð­fylk­ingin er stjórn­mála­flokkur sem vill sam­eina „þjóð­holla Íslend­inga“, berst fyrir hertri inn­flytj­enda­lög­gjöf og gegn fjöl­menn­ingu. Helgi Helgason, for­maður Íslensku þjóð­fylk­ing­ar­innar, sagði í leið­togaum­ræðum á RÚV á fimmtu­dag að stefna flokks­ins „bygg­ist fyrst og fremst á því hvað er að ger­ast í Evrópu og í lönd­unum í kringum okkur. Það vita allir hvernig ástandið er þar. Í Svíþjóð sér­stak­lega. Eins og þið hafið kannski tekið eftir því að sænska lög­reglan segir að það sé ekki hægt að fara inn í 25 hverfi, eða hvað það nú var, 20 eða 22 hverfi, vegna þess að þar eru inn­flytj­endur í meiri­hluta og þeir hafa ein­fald­lega gert þeim grein fyrir því að þar gildi ekki sænsk lög. Við viljum ekki að þetta ástand komi hingað til lands.“

Helgi var einnig í við­tali í nýjasta tölu­blaði Stund­ar­innar. Þar sagði hann að í Svíþjóð væru „fimm­tíu hverfi þar sem ekki gilda sænsk lög.“

Kjarninn ákvað að kanna hvort þær full­yrð­ingar sem Helgi setti fram í þætt­inum og í við­tal­inu við Stundina stæð­ust.

Skýrsla sænsku ríkislögreglunnar

Það er hægt að finna fjöl­margar síður á net­inu, og meira að segja hefð­bundna fjöl­miðla, sem halda því fram að í Svíþjóð séu 55 svokölluð „no-go“ svæði sem séu undir yfir­ráðum múslímskra glæpa­gengja sem sænska lög­reglan þori ekki inn á. Flestar þeirra eiga það sam­eig­in­legt að vera ein­hliða áróð­urs­síðursem tala fyrir hertum inn­flytj­enda­lögum, tak­mörkun á flótta­manna­straumi, gegn fjöl­menn­ingu og sér­stak­lega Islam með því að tala upp glæpa­tíðni og lög­leysu í inn­flytj­enda­hverfum víðs vegar um Evrópu.

Full­yrð­ing­arnar eiga rætur sínar að rekja til 29 blað­síðna skýrslu sem sænska rík­is­lög­reglan sendi frá sér í októ­ber 2014. Í skýrsl­unni segir að í land­inu séu 55 svæði þar stað­bundnir hópar glæpa­manna eru taldir hafa nei­kvæð áhrif á nær­sam­fé­lag sitt. Þessi svæði sé að finna í 22 borgum og bæjum í Svíþjóð og eiga það sam­eig­in­legt að vera talin standa illa að vígi félags­lega og efna­hags­lega í sam­an­burði við önnur svæði í land­inu. Hin glæp­sam­legu áhrif á umrædd svæði virð­ist, að mati sænsku rík­is­lög­regl­unnar, tengj­ast félags­legri stöðu þeirra frekar en ein­beittum vilja glæpa­manna til að ná völdum og stjórn á nær­sam­fé­lagi sínu.

Í skýrsl­unni er ekk­ert minnst á „no go“ svæði og í henni er ekki fjallað um múslima né Islam einu orði. Þar segir að þeir glæpa­hópar sem finn­ist á svæð­unum sem um ræðir séu ekki vel skipu­lagðir heldur sé frekar um óform­lega hópa ung­menna að ræða. Lagt er til að sýni­leiki og við­vera lög­reglu verði aukin á þeim til að byggja upp traust mili lög­reglu og nær­sam­fé­lag­anna sem hún starfar í.

Skýrslan fékk nýtt líf þegar norska rík­is­sjón­varpið NRK fjall­aði um hana og sér­stak­lega þrjú hverfi sem til­tekin eru í henni, Rinkenby, Tensta og Husby, sem eru öll úthverfi Stokk­hólms þar sem margir inn­flytj­endur og afkom­endur þeirra búa. Þar var rætt við lög­reglu­menn og hag­fræð­ing sem sagði stöð­una í hverf­unum til marks um að stjórn­völdum hefði mis­tek­ist að aðlaga inn­flytj­endur að sænsku sam­fé­lagi. Í miðju við­tali við hann veitt­ist hópur ung­menna að starfs­mönnum NRK svo þau þurftu að flýja frá kaffi­húsi þar sem það fór fram.

Þeir sem halda því fram að sænska lög­reglan hræð­ist ákveðin hverfi í land­inu vísa einnig til þáttar sem ástr­alska útgáfa 60 Minutes frétta­skýr­inga­þátt­ar­ins gerði í vor. Í honum fór frétta­maður ásamt tökuliði inn í Rinkenby. Í þætt­inum sést hvernig hópur grímu­klæddra ungra manna ræðst að tökulið­inu með því að keyra utan í einn þeirra, með höggum og steinkasti. Í þætt­inum er lög­reglan kölluð á vett­vang og en einn lög­reglu­maður mælir með því við tökuliðið að hún fylgi þeim ekki inn á torg í hverf­inu til að auka lík­urnar á því að það geti unnið vinn­una sína.

Hægt er að sjá mynd­band af þætt­inum hér:

Ekki sýnileg glæpaalda með auknum flóttamannastraumi

Svíþjóð tók við 163 þús­und flótta­mönnum árið 2015, sem var met­fjöldi. Því hefur einnig verið haldið fram að glæpum í Svíþjóð hafi fjölgað mikið sam­hliða auknum flótta­manna­straumi inn í landið. Í tölum sem sænsk stofnun sem ein­beitir sér að glæpafor­vörnum (e. The Swedish National Council for Crime Prevention) birti í jan­úar síð­ast­liðnum kom hins vegar fram að til­kynntum nauðg­unum hefði fækkað um tólf pró­sent á milli áranna 2014 og 2015 og smá­þjófn­uðum um tvö pró­sent.

Í annarri úttekt stofn­un­ar­innar sést að hót­anir, áreitni, lík­ams­árásir og rán voru hlut­falls­lega færri í Svíþjóð árið 2014 en þau voru árið 2005. Kyn­ferð­is­legar árásir og til­kynnt svik voru hlut­falls­lega eilítið fleiri. Heilt yfir hefur tíðni glæpa sem framdir eru í Svíðþjóð lækkað frá árinu 2005.

Í umfjöllun vef­mið­ils­ins thelocal.se frá því í febr­úar á þessu ári sagði blaða­full­trúi sænsku lög­regl­unnar, Lars Byström, að hvorki ferða­menn né íbúar Stokk­hólms ættu að finn­ast þeir vera í nokk­urri hættu í borg­inni. Að hans mati væri borgin nokkuð örugg. Í nið­ur­stöðum nýrrar rann­sóknar, sem birtar voru í hinu virta fræði­riti Lancet, kom fram að Svíþjóð er í þriðja sæti í heim­inum þegar kemur að því að upp­fylla þau heilsu­m­ark­mið sem Sam­ein­uðu þjóð­irnar setja aðild­ar­ríkjum sínum. Þau snú­ast meðal ann­ars um ofbeldi og félags­leg jafn­ræði. Ísland er í fyrsta sæti list­ans.

Þá steig Mats Karlsson, lög­reglu­varð­stjóra í Malmö þar sem mik­ill fjöldi inn­flytj­enda og flótta­manna býr, fram fyrr á þessu ári og sagði að þeir glæpir sem komi inn á borð lög­regl­unnar þar séu ekk­ert verri en ann­ars staðar í Svíþjóð. Hann hafn­aði því einnig algjör­lega að það væru svæði í Malmö sem lög­reglan forð­ist og gagn­rýndi erlenda fjöl­miðla fyrir að draga upp bjag­aða mynd af borg­inni og þá sér­stak­lega hvað varðar sam­skipti inn­flytj­enda og flótta­manna við lög­reglu.

Niðurstaða staðreyndarvaktarinnar

Það er rangt að sænska lög­reglan hafi sagt að hún fari ekki inn í 20-25 hverfi í land­inu vegna þess að þar séu „inn­flytj­endur í meiri­hluta“. Það er líka rangt að í Svíþjóð séu fimm­tíu hverfi þar sem ekki gilda sænsk lög. Auk þess liggja fyrir tölu­legar stað­reyndir um að glæpa­tíðni sé á nið­ur­leið í land­inu og að þar sé einna best í heim­inum að búa út frá mæli­kvörðum sem Sam­ein­uðu þjóð­irnar setja fram.

Það er hins vegar rétt að veist hafi verið af frétta­mönnum sem voru að fjalla um stöðu þriggja hverfi í útjaðri Stokk­hólms og að frétt NRK hafi komið fram lög­reglu­kona færi helst ekki inn í umrædd hverfi án þess að vera vopnuð og í skot­heldu vesti. Í mál­flutn­ingi for­manns Íslensku þjóð­fylk­ing­ar­innar er öllu ofan­greindu blandað saman í full­yrð­ingu sem stenst ekki nán­ari skoðun.

Það er því nið­ur­staða Stað­reynd­ar­vakt­ar­innar að Helgi Helgason hafi dregið rangar álykt­anir af tölum sem fram hafa verið settar af sænsku rík­is­lög­regl­unni og þeim fréttum sem sagðar hafa verið af skýrslu hennar frá því í októ­ber 2014. Hann fór því með fleipur með full­yrð­ingu sinni í leið­toga­þætti RÚV á fimmtu­dag og í við­tali við Stundina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár