Hagvöxtur Kína sá lægsti í 27 ár

Hagvöxtur í Kína er 6,3 prósent það sem af er ári. Aukin einka­neysla, fjár­festingar í húsnæði og innviðum drífa hagkerfið áfram.

Það sem af er ári hefur hagkerfi Kína vaxið um 6,3 prósent sem er í samræmi við 6 til 6,5 prósent hagvaxtar­markmið kínverskra stjórn­valda árið 2019. Hagvöxtur á seinni ársfjórðungi var 6,2 prósent miðað við 6,4 prósent á þeim fyrri. Þetta kemur fram í frétt Xinhua, kínversks ríkis­miðils.

The New York Times bendir á að hagvöxturinn sé sá lægsti í 27 ár. Bent er á að viðskipta­stríð Kína við Banda­ríkin gæti verið að hægja á hagvexti Kína. Enn fremur geti kólnandi heims­hagkerfi hægt á útflutningi Kína, til að mynda til Evrópu og öðrum Asíu­ríkjum.

Samkvæmt talsmanni Hagstofu Kína er hagvöxtur Kína almennt stöðugur þrátt fyrir kólnandi heims­hagkerfi og er Kína enn það hagkerfi sem stækki hvað hraðast. Innlend neysla heldur áfram að aukast ásamt fjár­festingum og sölu á þjónustu, að því er kemur fram í frétt Xinhua.

Einkaneysla eykst

Garðyrkju­ræktun jókst um 3,9 prósent sem hefur aldrei verið meiri og hefur einka­neysla aukist um 8,4 prósent það sem af er ári. Atvinnu­leysi í júlí stendur nú í 5,1 prósentum sem er 0,1 prósentu­stiga aukning frá mánuðinum áður. Atvinnu­leysi meðal fólks á aldrinum 25 til 59 ára er 4,6 prósent.

Fjár­festingar í húsnæði hafa aukist um 15,8 prósent það sem af er ári og er það 0,5 prósentu­stiga lækkun frá því í fyrra. Miklar fjár­festingar eru í húsnæði í borgum vegna þeirra gífurlegu mann­flutninga sem hafa átt sér stað í Kína úr sveitum í borgir á síðustu árum og áratugum.

Gífurlegum fjárhæðum varið í innviði

Kínversk yfirvöld fjárfesta nú gífur­legum fjárhæðum í að byggja upp innviði sína og fjárfesta í innviðum annarra landa. Það er hluti af innviða- og fjár­festinga­verkefni forseta Kína, Xi Jinping, sem nefnist Belti og braut.

Með aukinni innviða­byggingu í bæði nær- og fjær­ríkjum Kína mun flutninga­geta aukast, þar með muni viðskipti Kína við önnur ríki aukast. Ýmsir fræðimenn hafa bent á að Kína vilji verða tækni­væddara og auka þróun ýmissa héraða sinna. Einka­neyslu þurfi einnig að auka til að halda uppi hagvexti ríkisins og muni þar að auki styrkja gjald­miðil ríkisins.

Stærra net hafna í Indlands­hafi mun einnig tryggja Kína aðgengi að sjóleiðum sem er bráð­nauðsynlegt fyrir ríki eins og Kína sem byggir sinn efnahag að mestu á útflutningi.

Matarkostnaður 29 prósent útgjalda

Hvað varðar

neyslu

kínversks almennings í borgum er um 29 prósent alls kostnaðar kostnaður við mat og 23 prósent kostnaður við húsnæði. Þar á eftir fer um 13 prósent í samgöngur og 10 prósent í skemmtun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár