Einkareksturinn í heilsugæslunni: Heilsugæslan verði að „fyrsta viðkomustaðnum“ í heilbrigðiskerfinu

Velferðar­ráðuneyti Kristjáns Þórs Júlíussonar svarar spurningum um einka­rekstur innan heilsu­gæslunnar á höfuð­borgar­svæðinu. Segjast hafa kynnt sér vel þær breytingar sem gerðar hafa verið á heilsu­gæslunni í Svíþjóð. Markmið er meðal annars að gera heilsu­gæsluna að álitlegri vinnustað fyrir heilbrigðis­starfsfólk.

Heilsugæslan virki betur sem sía fyrir sérhæfðari heilbrigðisþjónustu
Heilsu­gæslan virki betur sem sía fyrir sér­hæfð­ari heil­brigð­is­þjón­ustu Svör vel­ferð­ar­ráðu­neytis Kristján Þórs Júl­í­us­sonar má skilja sem svo að ráðu­neytið vilji gera heilsu­gæsl­una á höfu­borg­ar­svæð­inu að sams konar síu fyrir sér­hæfð­ari heil­brigð­is­þjón­ustu og í öðrum löndum í kringum okkur, eins og til dæmis Svíþjóð. Mynd: Pressphotos.biz - (Geirix)

„Eins og áður segir er ekki búið að finna rekstrar­aðila. Væntanlega verður sá háttur hafður á að auglýst verði eftir aðilum sem áhuga­samir eru um heilsugæslu­rekstur og geta sýnt fram á að þeir séu færir um að uppfylla kröfur í samræmi við kröfu­lýsingu,“ segir í svörum frá heilbrigðis­ráðuneyti Kristjáns Þórs Júlíussonar velferðar­ráðherra við spurningum Stundarinnar um þann aukna einka­rekstur sem til stendur að hefja innan heilsu­gæslunnar á höfuð­borgar­svæðinu og hvernig til standi að finna þá rekstrar­aðila sem eiga að reka heilsu­gæslu­stöðvarnar nýju sem til stendur að opna á næsta ári.

Stundin sendi fjórar spurningar til velferðar­ráðuneytisins um þær breytingar innan heilsu­gæslunnar á höfuð­borgar­svæðinu sem til stendur að ráðast í en spurningarnar voru liður í umfjöllun blaðsins um einka­rekstrar­væðingu á heilsu­gæslunni á höfuð­borgar­svæðinu.

Stærsta breytingin innan heilsu­gæslunnar er hins vegar ekki sú að opnaðar verði nýjar einka­reknar heilsu­gæslu­stöðvar heldur sú grundvallar­breyting á greiðslu­fyrir­komulagi sem breytingarnar fela í sér. Með breytingunum er verið að reyna að samræma greiðslu­fyrir­komulagið þannig að fjármagn frá Sjúkra­tryggingum Íslands fylgi sjúkra­tryggðum skjólstæðingi stofnunarinnar á milli heilsu­gæslustöðva, allt eftir því hvaða stöð hann ákveður að nota. Ef skjólstæðingurinn notar ríkis­rekna heilsu­gæslustöð fer fjár­magnið sem fylgir honum þangað en ef  skjólastæðingurinn notar einka­rekna stöð þá fylgir fjár­magnið honum þangað.

Ætla má að með þessum breytingum á greiðslu­fyrir­komulagi muni samkeppni innan heilsu­gæslunnar á höfuð­borgar­svæðinu aukast, ekki síst þegar ljóst er að heilsu­gæslu­stöðvum á höfuð­borgar­svæðinu mun fjölga. Þannig má ætla að þær heilsu­gæslu­stöðvar sem bjóða bestu þjónustuna og ná til sín sem flestum sjúkra­tryggðum viðskipta­vinum muni vaxa og dafna á meðan óvinsælli stöðvar koma til með að eiga í erfið­leikum. 

Í svari frá heilbrigðis­ráðuneyti Kristjáns Þórs segir meðal annars um markmið breytinganna að markmiðið sé að heilsu­gæslan verði fyrsti viðkomu­staður fólks sem leitar sér að þjónustu í heilbrigðis­kerfinu: „Væntingarnar í hnotskurn eru að kröfu­lýsing fyrir heilsu­gæslu og breytt fyrir­komulag fjár­mögnunar, auki gæði þjónustu heilsu­gæslunnar, bæti aðgengi að henni, geri heilsu­gæsluna að þeim fyrsta viðkomu­stað í heilbrigðis­kerfinu sem lengi hefur staðið vilji til. Þess er vænst að sveigjanleiki skapist í rekstri sem leiði m.a. til betri nýtingar fjár og mannafla, auki aðkomu fleiri fagstétta í samræmi við fjöl­breytt viðfangs­efni og ólíkar þarfir þeirra sem þangað leita. Markmiðið með breytingunum er að heilsu­gæslan verði í ljósi alls þessa að áhuga­verðum og eftir­sóttum vinnustað.“  Þannig má meðal annars segja að heilbrigðis­ráðuneytið vilji gera heilsu­gæsluna að þeirri síu yfir í sérhæfðari heilbrigðis­þjónustu sem hún er í löndunum í kringum okkur, meðal annars í Svíþjóð en breytingarnar hér á landi eru að sænskri fyrirmynd að vissu leyti. 

Spurningar Stundarinnar og svör velferðar­ráðuneytisins fylgja hér á eftir.

Spurning: „Komið hefur fram að til standi að opna þrjár nýjar heilsu­gæslu­stöðvar á höfuð­borgar­svæðinu. Er búið að finna rekstrar­aðila til að reka þessar stöðvar? Hvað þarf slíkur rekstrar­aðili að sýna fram á til að fá verkefnið?“ 

Svar: „Stefnt er að opnun nýrra stöðva á höfuð­borgar­svæðinu á næsta ári en ekki hefur verið tekin ákvörðun um fjölda þeirra né stað­setningu. Unnið er að gerð ýtarlegrar kröfu­lýsingar sem gilda á jafnt um allar heilsu­gæslu­stöðvar á höfuð­borgar­svæðinu, hvort sem þær eru reknar af hinu opinbera eða af einka­aðilum. Til þess að áhuga­samir rekstrar­aðilar geti átt þess kost að hefja rekstur nýrrar stöðvar verða þeir að sýna fram á að þeir geti uppfyllt umrædda kröfu­lýsingu sem tekur til fjölmargra þátta, er lúta að rekstri, húsnæði, aðbúnaði, mönnun, tækja­búnaði, gæðum þjónustu o.s.frv.“

2. Spurning: „Ef ekki er búið að finna rekstrar­aðila til að sjá um þjónustuna mun þá fara fram útboð á henni, það er að segja til að finna rekstrar­aðila? Heilbrigðis­þjónusta er hins vegar ekki útboðs­skyld þannig að ráðuneytið þarf ekki að fara þá leið. Þar af leiðandi er ekki úr vegi að spyrja hvernig rekstrar­aðilarnir verði fundnir ef ráðuneytið hefur ekki gert það nú þegar?

Svar: „Eins og áður segir er ekki búið að finna rekstrar­aðila. Væntanlega verður sá háttur hafður á að auglýst verði eftir aðilum sem áhuga­samir eru um heilsugæslu­rekstur og geta sýnt fram á að þeir séu færir um að uppfylla kröfur í samræmi við kröfu­lýsingu.“ 

3. Spurning: „Hverju vill velferðar­ráðuneytið ná fram með því að breyta greiðslu­fyrir­komulaginu innan heilsu­gæslunnar þannig að tekið verði upp sams konar kerfi - vårdval - og í Svíþjóð?“ 

Svar: „Væntingarnar í hnotskurn eru að kröfu­lýsing fyrir heilsu­gæslu og breytt fyrir­komulag fjár­mögnunar, auki gæði þjónustu heilsu­gæslunnar, bæti aðgengi að henni, geri heilsu­gæsluna að þeim fyrsta viðkomu­stað í heilbrigðis­kerfinu sem lengi hefur staðið vilji til. Þess er vænst að sveigjanleiki skapist í rekstri sem leiði m.a. til betri nýtingar fjár og mannafla, auki aðkomu fleiri fagstétta í samræmi við fjöl­breytt viðfangs­efni og ólíkar þarfir þeirra sem þangað leita. Markmiðið með breytingunum er að heilsu­gæslan verði í ljósi alls þessa að áhuga­verðum og eftir­sóttum vinnustað.“ 

4. Spurning: „Hefur velferðar­ráðuneytið kynnt sér skýrslu sem sænska ríkisendurskoðuninin vann um afleiðingar og kosti og galla "vårdvalsins" í fyrra?  Þessi skyrsla er auðvitað ekki einhlít þar sem fleiri skýrslur finnast sem komast að öðrum niður­stöðum en hún er samt útgefin af þessari ríkis­stofnun og hefur því vissulega talsverða vigt. Hér er ég fyrst og fremst að velta því upp hversu gagnrýnin skoðun á þessari aðferð við að veita þjónustu í heilsu­gæslu hafi farið fram og þá einnig hvort hún henti Íslandi og íslenskum aðstæðum?“ 

Svar: „Já, velferðar­ráðuneytið þekkir þá skýrslu sem hér er vísað til og hefur kynnt sér efni hennar og það er rétt sem kemur fram í spurningunni hér að framan að niður­stöðurnar sem þar koma fram eru ekki einhlítar. Ráðuneytið hefur einnig kynnt sér skýrslu sem fjallar um innleiðingu breytinga í heilsu­gæslu í Västra Götalands þar sem brugðist er við skýrslu sænsku ríkis­endur­skoðunarinnar.Ráðuneytið hefur farið yfir skýrslu sænsku ríkis­endur­skoðunarinnar, ekki síst með tilliti til þeirra athugasemda sem beinast að því fyrir­komulagi sem viðhaft hefur verið á umræddu svæði í Svíþjóð. Í skýrslunni koma fram ýmsir þættir sem taldir eru hafa leitt til bættrar þjónustu, svo sem bætt aðgengi að heilsu­gæslunni, jafnt varðandi símsvörun og komur á heilsu­gæsluna. Heilsu­gæslu­stöðvum hefur fjölgað og færst nær mörgum íbúanna ofl. Þeir ágallar sem upp eru taldir í skýrslunni, svo sem lakari samfella í þjónustu og misjöfn aðsókn sjúklinga­hópa hafa leitt til þess að í nálgun ráðuneytisins er lögð sterk áhersla á þessa þætti, bæði með því að öllum sé tryggður fastur heimilis­læknir og einnig tryggð þjónusta fleiri stétta heilbrigðis­starfsfólks heilsu­gæslunnar með því að einstaklingurinn verði einnig skráður á ákveðinn þjónustuhóp með hliðsjón af þörfum hans. Sænska ríkis­endur­skoðunin leggur m.a. fram þær tillögur í samantekt sinni að greiðslu­fyrir­komulag verði gert eins einfalt og mögulegt er auk þess sem hún leggur til að verkefni heilsu­gæslunnar verði ekki skilgreind of vítt. Ráðuneytið telur sig hafa tekið fullt tillit til þessara ábendinga í mótun sinni á breyttu rekstrar­fyrir­komulagi heilsu­gæslunnar.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkra­trygginga með einka­rekstri í heilbrigðis­kerfinu

Willum Þór Þórsson heilbrigðis­ráðherra hefur staðið fyrir stór­aukinni einka­væðingu í heilbrigðis­kerfinu frá því að hann tók við starfinu. Eftirlit með þeim fjármunum sem fara frá ríkinu til einka­aðila hefur samhliða því ekki verið aukið. Willum Þór svaraði spurningum um meðal annars á Alþingi um miðjan mánuðinn.
Fréttir

Hjúkrunar­heimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu

Frá árinu 2009 hefur hjúkrunar­heimilið Sóltún fengið tæplega 20 milljarða króna frá íslenskra ríkinu. Um 90 prósent af tekjum Sóltúns koma frá ríkinu. Eigendurnir hafa tekið á þriðja milljarð króna út úr rekstrinum með því að selja fasteignir og lóðir og lækka hlutafé fyrir­tækisins. Allur reksturinn byggir hins vegar á umdeildum samningi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár