Talskona Stígamóta stígur til hliðar

Utan­aðkomandi vinnustaða­sálfræðingur verður fenginn til þess að taka út vinnu­umhverfið á Stíga­mótum eftir yfir­lýsingu Thelmu Ásdísar­dóttur um að níu fyrr­verandi starfs­menn Stígamóta taki undir frásögn Helgu Baldvins­dóttur Bjargar af einelti og andlegu ofbeldi á vinnu­staðnum.

Stígur til hliðar
Stígur til hliðar Guðrún Jóns­dóttir tals­kona Stíga­móta stígur til hliðar á meðan vinnu­staða­sál­fræð­ingur tekur út starfs­um­hverfið á Stíga­mótum.

Guðrún Jóns­dóttir, talskona Stígamóta, stígur til hliðar eftir yfir­lýsingu níu fyrr­verandi starfs­manna sem sögðust trúa frásögn Helgu Baldvins­dóttur Bjargar af einelti og andlegu ofbeldi á Stíga­mótum þegar hún starfaði þar, vegna þess að þeir höfðu sambærilega reynslu af störfum á vettvangi Stígamóta. 

Frá þessu var greint í yfir­lýsingu samtak­anna á Facebook fyrr í dag. Þar segir að stjórn og starfs­hópur Stígamóta taki yfir­lýsingu hópsins alvarlega og að þegar hafi verið haft samband við Vinnu­eftirlitið sem gaf ráð um ábyrgar leiðir við meðferð málsins. Til standi að gera úttekt utan­aðkomandi fagaðila á starfs­umhverfi Stígamóta. Vinnustaða­sálfræðingur mun taka verkefnið að sér. Á meðan stígur Guðrún til hliðar en Steinunn Gyðu- og Guðjóns­dóttir tekur við hennar hlutverki.  

Áður höfðu stjórn og starfs­hópur fundað án Guðrúnar og komist að þeirri niður­stöðu að innan hópsins ríkti fullt traust til hennar. Í kjölfarið var send út yfir­lýsing þess efnis að reynsla þeirra væri önnur, en þeim þætti leitt að Helga hefði upplifað samstarfið með þessum hætti.

Thelma Ásdísar­dóttir, fyrr­verandi starfs­kona Stígamóta, sendi yfir­lýsingu í gær um að níu ónafn­greindir fyrr­verandi starfs­menn tækju undir reynslu Helgu Baldvins­dóttur og væru að minnsta kosti sumir þeirra tilbúnir að stíga fram. 

„Í kjölfarið af pistli Helgu Baldvins Bjargar viljum við lýsa því yfir að við trúum henni enda höfum við allar sambærilega reynslu af því að starfa á vettvangi Stígamóta. Við skorum hér með á framkvæmdahóp Stígamóta til þess að taka á málinu af ábyrgð og fagmennsku,“ sagði í yfir­lýsingunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár