Segist ekki hafa boðist til að hætta við framboð gegn því að fá fjármálaráðuneytið

Harka er hlaupin í formanns­slaginn í Sjálfstæðis­flokknum. Innherji heldur því fram að Guðlaugur Þór hafi gert kröfur um verða fjármála­ráðherra gegn því að bjóða sig ekki fram, en að Bjarni Benediktsson hafi hafnað því. Ósatt, segir Guðlaugur Þór.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra. Mynd: Skjáskot: Vísir

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslags­ráðherra, segir full­yrðingar sem settar eru fram í frétt Innherja, undirvefs á Vísi sem fjallar um efnahagsmál og viðskipti, þess efnis að hann hafi gert kröfur til Bjarna Benedikts­sonar, fjármála- og efnahags­ráðherra, í skiptum fyrir að hætta við formanns­framboð í Sjálfstæðis­flokknum, vera ósannar.

Í frétt Innherja sagði að Guðlaugur Þór Þórðarson hefði greint Bjarna frá því að hann væri tilbúinn að sleppa því að bjóða sig fram gegn honum á lands­fundi Sjálfstæðis­flokks um komandi helgi ef Bjarni myndi eftirláta honum fjármála- og efnahags­ráðuneytið. Þessi krafa á að hafa verið sett fram á fundum sem þeir áttu á fimmtudag og föstudag í síðustu viku.

Guðlaugur Þór hafnar þessi í færslu á Facebook í dag. Þar segir hann Bjarna hafa vitað af áhyggjum hans um stöðu mála í flokknum. „Ég er alltaf að hugsa um flokkinn minn og tel engan einn mann stærri en flokkinn. Það er rétt að við Bjarni hittumst, hann bauð mér í fjármála­ráðuneytið á fimmtudags­kvöldi og á heimili sitt á föstu­daginn var. Þar ræddum við að sjálfsögðu stöðuna sem upp var komin, en öllum má vera ljóst að hann hafði áhyggjur af henni.“

Aðrar full­yrðingar í frétt Innherja séu þó rangar. „Það er allsendis ósatt að á þessum fundum hafi ég gert einhverjar kröfur til Bjarna Benedikts­sonar í skiptum fyrir að hætta við formanns­framboð.“

Ýmsar útgáfur af því sem fram fór á fundum fyrir helgi

Guð­laugur Þór til­kynnti í hádeg­inu í gær að hann myndi bjóða sig fram gegn Bjarna á komandi lands­fundi. Framboðið hafði legið í loftinu í nokkra daga og spurst hafði út að mennirnir tveir hefðu fundað undir lok síðustu viku til að kanna hvort önnur lausn væri á stöðunni en formanns­slagur.

Afar mismun­andi sögur fara af þeim fundum. Þeir sem styðja Guðlaug Þór segja að þar hafi Bjarni lagt fram mála­miðlunar­tillögur sem auki áhrif Guðlaugs Þórs í flokknum, eða að hann hafi samþykkt ýmsar kröfur sem Guðlaugur Þór hafi gert um stóla og stöður. Þeir sem styðja Bjarna segja aðra sögu. Þá sem sögð var í frétt Innherja, að Guðlaugur Þór hefði gert kröfur um ráðuneytið og embætti innan flokksins en að Bjarni hefði hafnað þeim.

Guð­laugur Þór, sem verður 55 ára í des­em­ber, hefur setið á þingi frá árinu 2003 og gegnir nú emb­ætti umhverf­is-, orku- og lofts­lags­ráð­herra. Bjarni hefur verið for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins frá 2009 og hefur í tvígang fengið mót­fram­boð síðan þá, árið 2010 þegar Pétur Blöndal bauð sig fram og ári seinna þegar Hanna Birna Krist­jáns­dóttir bauð sig fram gegn hon­um.

Bjarni hefur gefið það út að tapi hann fyrir Guð­laugi Þór í for­manns­kjör­inu ætli hann að hætta í stjórn­málum. „Ef að mínum tíma sem for­­manni lýkur í þessu kjöri þá er mínum tíma í stjórn­­­málum bara lok­ið. Það er ekk­ert flókn­­ara en það,“ sagði Bjarni á Sprengis­andi á Bylgj­unni í gærmorg­un.

Átök tveggja fylk­inga

Ljóst er að tvær fylk­ingar innan flokks­ins munu takast á, fylk­ingar sem hafa átt í inn­­­byrðis átökum um ítök og áhrif árum sam­an án þess að hafa barist á um æðstu emb­ættin í flokkn­­um.

Um er að ræða þá fylk­ingu sem fylgir Guð­laugi Þór að málum og þá sem hverf­ist í kringum Bjarna.

Fylk­ing Guð­laugs Þórs hefur tek­ist hart á við hina þegar valið hefur verið á fram­­boðs­lista flokks­ins í síð­­­ustu tveimur borg­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ingum og í próf­­kjör­inu fyrir síð­­­ustu þing­­kosn­­ing­­ar. Færa má rök fyrir því að fylk­ing Guð­laugs Þór hafi sigrað í tveimur af þeim lot­um, fyrir kosn­­ing­­arnar 2018 og 2021, og haft ívið betur í þeirri þriðju, þegar próf­­kjör ákvað lista flokks­ins fyrir síð­­­ustu borg­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ing­­ar.

Hingað til hefur Guð­laugur Þór valið að sýna þol­in­­mæði í formennsku­metnaði sínum og sagt út á við að hann styðji for­yst­una eins og hún er. Taktíkin hefur gengið út á að reyna að bíða for­­mann­s­­tíð Bjarna Bene­dikts­­sonar af sér.

En þegar Bjarni til­­kynnti í ágúst að hann ætl­­aði að sækj­­ast eftir áfram­hald­andi for­­mennsku þurfti Guð­laugur Þór að end­ur­meta aðferða­fræði sína. Það hefur hann nú gert og mun hann etja kappi við Bjarna um emb­ætti for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins á lands­fundi flokks­ins sem fer fram næstu helgi.

Lands­fund­ur­inn sá fyrsti frá því í mars 2018. Tvö þús­und lands­fund­ar­full­trú­ar, víða að á land­inu, eiga sæti á fund­inum og hafa kosn­inga­rétt í kjöri til for­manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár