Bjarni ætlar að hætta í stjórnmálum tapi hann fyrir Guðlaugi Þór í formannskjöri

Bjarni Benediktsson mun hætta afskiptum af stjórn­málum lúti hann í lægra haldi fyrir Guðlaugi Þór Þórðar­syni í formanns­kjöri á lands­fundi flokksins um næstu helgi.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

„Ef að mínum tíma sem formanni lýkur í þessu kjöri þá er mínum tíma í stjórn­málum bara lokið. Það er ekkert flóknara en það.“

Þetta sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis­flokksins og fjármála- og efnahags­ráðherra, á Sprengis­andi í Bylgjunni í morgun.

Fastlega er gert ráð fyrir að Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslags­ráðherra, muni greina frá ákvörðun sinni á fundi í Valhöll eftir hádegi að hann ætli að fara fram gegn Bjarna í formanns­kjöri Sjálfstæðis­flokksins á lands­fundi flokksins sem fram fer um næstu helgi.

Bjarni og Guðlaugur Þór töluðu saman í morgun en Bjarni sagði Guðlaug verða að „eiga sitt móment“ þegar hann var inntur eftir svari hvort Guðlaugur ætli að bjóða sig fram gegn honum. „Það er í lagi mín vegna,“ sagði Bjarni og átti þá við að Guðlagur greini sjálfur frá ákvörðun sinni.

Bjarni hefur gegnt formennsku í flokknum í 13 ár og greindi frá því í ágúst að hann sækist áfram eftir að leiða Sjálfstæðis­flokkinn.

Lands­fundur Sjálfstæðis­flokksins fer fram næstu helgi og er sá fyrsti frá því í mars 2018. Tvö þúsund landsfundar­fulltrúar, víða að á landinu, eiga sæti á fundinum og hafa kosninga­rétt í kjöri til formanns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár