Mynd: Samsett/Eyþór Árnason

Guðlaugur Þór horfir til þess að fella Bjarna

Eitt verst geymda leynd­ar­mál í íslenskum stjórn­málum er að Guð­laugur Þór Þórð­ar­son hefur metnað til þess að verða for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Það er raun­veru­legur mögu­leiki á því að for­manns­slagur verði í stærsta flokki lands­ins, Sjálf­stæð­is­flokki, á lands­fundi hans fyrstu helg­ina í nóv­em­ber. Verði af honum munu takast á tvær fylk­ingar sem hafa átt í inn­byrðis átökum um ítök og áhrif árum saman, án þess að hafa barist á um æðstu emb­ættin í flokknum.

Um er að ræða þá fylk­ingu sem fylgir Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, að málum og þá sem hverf­ist í kringum Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins frá árinu 2009.

Það er eitt verst geymda leynd­ar­mál íslenskra stjórn­mála að Guð­laugur Þór hefur lengi haft metnað til þess að verða for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Fylking hans hefur tek­ist hart á við hina þegar valið hefur verið á fram­boðs­lista flokks­ins í síð­ustu tveimur borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum og í próf­kjör­inu fyrir síð­ustu þing­kosn­ingar. Færa má rök fyrir því að fylk­ing Guðlaugs Þór hafi sigrað í tveimur af þeim lotum, fyrir kosn­ing­arnar 2018 og 2021, og haft ívið betur í þeirri þriðju, þegar próf­kjör ákvað lista flokks­ins fyrir síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar.

Þeir unnu gegn mér, þeir töpuðu

Þessi átök hafa senni­lega aldrei opin­ber­ast jafn skýrt og í ræðu sem Guð­laugur Þór hélt fyrir stuðn­ings­menn sína eftir að hafa haft betur í próf­kjörs­slag við Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur í Reykja­vík í aðdrag­anda síð­ustu þing­kosn­inga. Í þeim slag náði Guð­laugur Þór að verða odd­viti flokks­ins í höf­uð­borg­inni og helsti póli­tíski sam­herji hans, Diljá Mist Ein­ars­dóttir, náði þriðja sæt­inu á kostnað Hildar Sverr­is­dóttur, sem er hluti af fylk­ingu flokks­for­yst­unnar líkt og Áslaug Arna.

Í ræð­unni sagði Guð­laugur Þór meðal ann­ars að mark­visst hefði verið unnið gegn sér í próf­kjör­inu. „Þið skulið alveg átta ykkur á því að við höfum kannski haldið að þetta væri til­tölu­lega ein­falt að því leyt­inu til að sá sem hér stendur hefur mælst vin­sæl­asti ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, eini Sjálf­stæð­is­mað­ur­inn sem hefur unnið erf­ið­asta kjör­dæmi okk­ar, Reykja­vík norð­ur, ekki einu sinni, heldur þrisvar. Samt sem áður var lögð ein­hver gríð­ar­lega mikil áhersla á það að sjá til þess að sá sem hér stend­ur, og það er ekki bara ég, heldur þið, myndi ekki fá að vera áfram odd­viti. Þið sáuð til þess að allir þeir sem unnu gegn því, að þeir töp­uð­u.“

Engum dylst að „þeir“ sem unnu gegn Guðlaugi Þór og töp­uðu eru fylk­ingin sem studdi Áslaugu Örnu, og styður Bjarna Bene­dikts­son. Á meðan að hann flutti ræð­una heyrð­ust stuðn­ings­menn kalla „los­aðu þig við Bjarna“ og kalla til Guð­laugs Þórs: „for­mað­ur­inn“.

Margir bjuggust við því að Bjarni væri að stíga sinn hinsta dans

Guð­laugur Þór hefur hins vegar valið að sýna þol­in­mæði í for­mennsku­metn­aði sínum og sagt út á við að hann styðji for­yst­una eins og hún er. Taktíkin hefur gengið út á að reyna að bíða for­mann­s­tíð Bjarna Bene­dikts­sonar af sér.

Heim­ild­ar­menn Kjarnans sem tóku þátt í síð­ustu rík­is­stjórn­ar­myndun segja að í þeim hafi ýmsir innan sam­starfs­flokk­anna, Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks, fengið á til­finn­ing­una að Bjarni ætl­aði að stíga sinn hinsta dans í póli­tík á þessu kjör­tíma­bili. Til­færsla Þórdísar Kol­brúnar R, Gylfa­dóttur, sem Bjarni er tal­inn styðja sem eft­ir­mann sinn á for­manns­stóli, í utan­rík­is­ráðu­neytið þótti vís­bend­ing um þetta og að Bjarni ætl­aði sér að skipta við hana um ráðu­neyti áður en kjör­tíma­bilið yrði á enda.

Flestar bolla­legg­ing­arnar voru á þann veg að það myndi ger­ast í kringum fyrsta lands­fund Sjálf­stæð­is­flokks­ins frá því í mars 2018, sem hefst eftir rúma viku. Þá myndi Bjarni hætta sem for­maður og styðja Þórdísi Kolbrúnu. Af því varð þó ekki. Bjarni til­kynnti í ágúst að hann ætl­aði að sækj­ast eftir áfram­hald­andi for­mennsku.

Við það þurfti Guð­laugur Þór, sem verður 55 ára í des­em­ber og hefur setið á þingi frá árinu 2003, að end­ur­meta aðferð­ar­fræði sína.

Nýr ráðherrakapall boðaður

Ákvörðun um það hvort Guð­laugur Þór ætl­aði að taka slag­inn við Bjarna, og láta reyna á hvort hann hefði stuðn­ing til að leiða Sjálf­stæð­is­flokk­inn, varð enn meira aðkallandi fyrr í þessum mán­uði.

Þegar rík­is­stjórnin var mynduð greindi Bjarni Bene­dikts­son frá því að Jón Gunn­ars­son, eini ráð­herra flokks­ins sem er ekki odd­viti, myndi sitja sem dóms­mála­ráð­herra í að hámarki 18 mán­uði en að odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, Guðrún Haf­steins­dóttir, myndi svo taka við honum. Jón lét hins vegar í það skína í við­tali við Hring­braut 13. októ­ber að hann vildi vera ráð­herra lengur og að ekki væri ákveðið að hann myndi stíga til hliðar til að rýma fyrir Guðrúnu.

Guðrún brást við í ýmsum við­tölum með að segja að málið væri ákveðið og að hún myndi taka við Jóni á næstu mán­uðum.

Þann 19. októ­ber síð­ast­lið­inn lét Bjarni hins vegar hafa eftir sér að það væri ekki úti­lokað að Jón Gunn­ars­son myndi halda áfram sem dóms­mála­ráð­herra þegar breyt­ingar yrðu gerðar á ráð­herra­liði flokks­ins á næsta ári. Það stæði þó enn til að Guðrún kæmi inn í rík­is­stjórn­ina, senni­lega snemma á næsta ári.

Svikalogn getur breyst í sviptibyl

Stuðn­ings­menn Guðlaugs Þórs tóku þessum vend­ingum ekki fagn­andi. Fyrir liggur að ráð­herrum verður ekki fjölgað meir, enda þeir tólf sem stendur. Ef Jón situr áfram þegar Guðrún á að koma inn í rík­is­stjórn­ina þá þarf ein­hver annar að víkja. Nokkuð borð­leggj­andi þykir að Bjarni taki ekki ráð­herra­emb­ætti af Þórdísi Kolbrúnu, vara­for­manni flokks­ins, né Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur, enda um að ræða tvær helstu von­ar­stjörnur hans arms í flokknum og nána sam­herja hans. Sá sem yrði lát­inn víkja yrði senni­lega Guð­laugur Þór.

Búið er að lofa Guðrúnu Hafsteinsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokks í Suðurkjördæmi, ráðherraembætti á næstu mánuðum. Upphaflega átti Jón Gunnarsson að víkja fyrir henni. Nú er það með öllu óljóst hver það verður.
Búið er að lofa Guðrúnu Haf­steins­dóttur, odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks í Suð­ur­kjör­dæmi, ráð­herra­emb­ætti á næstu mán­uðum. Upp­haf­lega átti Jón Gunn­ars­son að víkja fyrir henni. Nú er það með öllu óljóst hver það verður.

Hingað til hefur fylk­ing hans gengið út frá því að þau séu nægi­lega sterk til að það sé ekki hægt að ganga fram hjá Guðlaugi Þór við útdeil­ingu ráð­herra­emb­ætta án þess að svika­lognið sem ríkt hefur í flokknum breytt­ist í svipti­byl.

Heim­ildir Kjarnans herma að sam­hliða hafi ýmsir farið að skora á Guðlaug Þór að láta til skarar skríða og bjóða sig fram til for­manns. Óform­legur und­ir­bún­ingur undir slíkt hafi auk þess haf­ist með því að tryggja stuðn­ing lands­fund­ar­full­trúa víða að á land­inu ef til for­manns­kjörs kæmi. Það væri ein­fald­lega ekki hægt að vona að Bjarni myndi halda Guðlaugi Þór áfram á ráð­herra­stóli með end­ur­nýjað umboð.

Morgunblaðið ýtir málum af stað

Á þriðju­dag, 25. októ­ber, fóru svo að ber­ast meld­ingar frá fólki innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins til fjöl­miðla um að Guð­laugur Þór ætl­aði í for­manns­fram­boð. Þær meld­ingar bár­ust helst frá fólki sem styður hina fylk­ing­una í flokknum og fólk í kringum Guðlaug Þór kann­að­ist ekki við að slík ákvörðun hefði verið tekin. Að því sögðu þá hefur sama fólk gengið að því vísu að Guð­laugur Þór myndi á ein­hverjum tíma sækj­ast eftir for­mennsku. Spurn­ingin væri ekki hvort heldur hvenær. Þær aðstæður sem hefðu skyndi­lega skap­ast á síð­ustu vikum gætu flýtt þeim áformum.

Morg­un­blaðið birti svo frétt dag­inn eftir, 26. októ­ber, sem skrifuð er af Andrési Magn­ús­syni, rit­stjórn­ar­full­trúa blaðs­ins sem hefur mikil tengsl við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Í frétt­inni sagði að „und­an­farna daga hafa verið miklir orða­sveimir um hugs­an­legt fram­boð Guð­laugs, sem m.a. hefur verið tengt umdeildu vali á lands­fund­ar­full­trúum í stöku félag­i.“

Við birt­ingu frétt­ar­innar færð­ist kast­ljósið á Guðlaug Þór. Hann þurfti að játa því eða neita því hvort hann ætl­aði fram eða ekki.

Sagði marga hafa miklar áhyggjur af stöðu flokksins

Guðlaugi Þór tókst að kom­ast hjá því í svara fyr­ir­spurnum um málið í gær. Stuðn­ings­menn hans fund­uðu svo með honum í Sjálf­stæð­is­hús­inu í Graf­ar­vogi, heima­velli Guðlaugs Þórs, í gær­kvöldi. Hátt í hund­rað manns mættu á fund­inn. Við­mæl­endur Kjarnans segja að lík­urnar á fram­boði hafi auk­ist við ákvörðun Morg­un­blaðs­ins að birta frétt sína um málið á þriðju­dag og að við­brögðin sem Guð­laugur Þór og helstu stuðn­ings­menn hans hafi fengið við henni hafi verið mikil.

Þá er það mat margra þeirra að staða Bjarna sé erfið um þessar mundir vegna mál­efna ÍL-sjóðs og að hún geti mögu­lega orðið enn erf­ið­ari vegna yfir­vof­andi skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um söl­una á Íslands­banka, sem fram­kvæmd var af Banka­sýslu rík­is­ins, stofnun sem heyrir undir ráðu­neytið Bjarna og lýtur stjórn sem Bjarni skipar. Þá meta þeir sem svo að upp­safnað óþol sé í garð Bjarna í flokknum vegna fjölda erf­iðra mála sem hann hefur ratað í á und­an­förnum árum og vegna þess að hann sinni gras­rót flokks­ins lítið.

Hansk­arnir voru svo teknir af í morgun í við­tölum við Vísi. Í fyrsta við­tal­inu sem Guð­laugur Þór tjáði sig um mögu­legt for­mennsku­fram­boð beindi hann athygl­inni að fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í for­mann­s­tíð Bjarna og sagði marga í flokknum hafa miklar áhyggjur af stöðu hans.

Í þeim hefur flokk­ur­inn mest fengið 29 pró­sent fylgi árið 2016. Í hin þrjú skiptin sem Bjarni hefur leitt Sjálf­stæð­is­flokk­inn í gegnum kosn­ingar hefur hann fengið þrjár verstu nið­ur­stöður sínar í sög­unni, og fylgið verið á bil­inu 23,7 til 25,2 pró­sent. Fyrr á þessu kjör­tíma­bili mæld­ist fylgi flokks­ins svo í fyrsta sinn undir 20 pró­sentum í þjóð­ar­púlsi Gallup. Flokk­ur­inn hefur ein­ungis einu sinni fengið undir 30 pró­sent fylgi í þing­kosn­ingum utan þess tíma sem Bjarni hefur leitt hann og hug­mynd margra flokks­manna um hann er að hann eigi að vera skýr val­kostur fyrir 30-40 pró­sent kjós­enda.

Guðlaugur Þór þyrfti að spyrja hvernig honum hafi gengið að ná í fylgi

Guð­laugur Þór sagði að það væri ekki hægt að sætta sig við að vera rúm­lega tutt­ugu pró­sent flokkur. „Það er ekki Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sem ég gekk í. Það hefur ekk­ert breyst að sú hug­mynda­fræði sem við stöndum fyrir er best. Það er ekk­ert að henni. Við þurfum að líta til þess hvernig við getum náð betri árangri.“ Hann bætti við að yfir­lýs­ingar Bjarna um breytta ráð­herra­skipan hefðu komið á óvart og að þær væru ekki í sam­ræmi við það sem for­mað­ur­inn hefði áður sagt. „Ég held það skipti máli að hafa enga óvissu í þessu.“

Bjarni svar­aði í við­tali við sama miðil og sagði að hver þyrfti að líta sér nær. „Til dæmis odd­vit­inn í Reykja­vík í þessu til­viki: hvernig hefur mér gengið að afla flokknum fylgis í borg­inni, í mínu kjör­dæmi? Ég get svo sem sagt fyrir mitt leyti að fylgi við flokk­inn hefur verið ágætt þar sem ég hef verið að leiða. Svo getur bara hver svarað fyrir sig.“

Odd­vit­inn í borg­inni er Guð­laugur Þór, sem leiddi í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður í síð­ustu kosn­ingum.

Áslaugu Örnu gekk betur en Guðlaugi Þór í fyrrahaust

Það er rétt að Bjarna hefur gengið betur að afla fylgis í sínu kjör­dæmi en Guðlaugi Þór í því sem hann leiðir. Þannig fékk Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn 30,9 pró­sent atkvæða í Suð­vest­ur­kjör­dæmi í fyrra­haust á meðan að Guð­laugur Þór náði ein­ungis í 20,9 pró­sent atkvæða í Reykja­vík Suður. Áslaug Arna, sem tap­aði fyrir Guðlaugi Þór í próf­kjörs­bar­átt­unni í Reykja­vík, leiddi flokk­inn í Reykja­vík Suður og náði í 22,8 pró­sent atkvæða, sem skil­aði þremur þing­mönnum á móti tveimur úr kjör­dæmi Guðlaugs Þórs. Áslaug Arna náði þar að ná sama hlut­falli atkvæða og í kosn­ing­unum 2017 í kjör­dæmi sínu á meðan að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tap­aði fylgi í Reykja­vík norður.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir hefur háð harðar baráttur við Guðlaug Þór Þórðarson í gegnum tíðina og áframhaldandi ráðherraseta Jóns Gunnarssonar er ein helsta ástæða þess að mögulega er formannsslagur framundan í Sjálfstæðisflokknum.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir hefur háð harðar bar­áttur við Guðlaug Þór Þórð­ar­son í gegnum tíð­ina og áfram­hald­andi ráð­herra­seta Jóns Gunn­ars­sonar er ein helsta ástæða þess að mögu­lega er for­manns­slagur framundan í Sjálf­stæð­is­flokknum.

Á móti getur Guð­laugur Þór bent á að í síð­ustu könnun á því til hvaða ráð­herra kjós­endur bera mest traust til, sem Maskína birti seint í apríl, hafi hann komið best út allra ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þar sögð­ust 30,7 pró­sent aðspurðra treysta Guðlaugi Þór en 35,8 pró­sent van­treysta honum. Þórdís Kolbrún kom skammt á hæla hans og naut trausts 29,7 pró­sent aðspurðra en 35,8 sögð­ust van­treysta henni. Alls sögð­ust 21,7 pró­sent treysta Áslaugu Örnu en 52,3 pró­sent að þau van­treystu henni. Flokks­for­mað­ur­inn Bjarni Bene­dikts­son naut ein­ungis trausts 18,3 pró­sent kjós­enda en 70,7 pró­sent sögð­ust van­treysta honum. Jón Gunn­ars­son, sá ráð­herra sem Bjarni vill halda í rík­is­stjórn­inni, var svo sá ráð­herra sem fæstir treystu, eða 17,8 pró­sent. Rúmur helm­ingur van­treystir Jóni.

Bjarni til í slaginn

Guð­laugur Þór sagði í áður­nefndu við­tali við Vísi að hann ætl­aði ekki til­kynna um for­manns­fram­boð í fjöl­miðlum. Hann myndi til­kynna Bjarna það fyrst. Heim­ildir Kjarnans herma að til standi að menn­irnir tveir fundi í dag eða á morgun og að loknum þeim fundi muni ákvörðun liggja fyrir. Til að Guð­laugur Þór fari ekki fram þurfi Bjarni að sann­færa hann um að staða hans í rík­is­stjórn­inni sé trygg og jafn­vel að hann eigi leið inn í áhrifa­meira ráðu­neyti.

Að sama skapi segja ýmsir stuðn­ings­menn Bjarna að þeir fagni því að Guð­laugur Þór sé loks­ins að taka í gikk­inn og láta vaða. Löngu tíma­bært sé að láta á það reyna hvort hann hafi þann stuðn­ing sem hann telur sig hafa. Fylk­ingin í kringum for­mann­inn er þegar farin að hafa sam­band við lands­fund­ar­full­trúa til að athuga með stuðn­ing ef af verður. Bent hefur verið á að Bjarni hafi tví­vegis tekið harða slagi um for­manns­emb­ættið, fyrst við Kristján Þór Júl­í­us­son 2009 og svo aftur við Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur 2011. Í bæði skiptin hafi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn verið í stjórn­ar­and­stöðu. Síðan 2013, þrátt fyrir sögu­lega lágt fylgi, hafi flokk­ur­inn hins vegar alltaf verið í rík­is­stjórn. Þrátt fyrir að staða flokks­ins á sveit­ar­stjórn­ar­stíg­inu hafi veikst kosn­ing­unum fyrr á þessu ári er hann enn með lang­flesta kjörna full­trúa allra flokka á því stígi.

Í við­tali við Dagmál á mbl.is sem birt var í dag sagði Bjarni að for­maður ætti ekki emb­ættið. „Maður þarf að vinna fyrir end­ur­nýj­uðu umboði á milli funda og maður þarf að koma á fund­inn með sýn fyrir flokk­inn inn í fram­tíð­ina. Það á við um þennan fund eins og alla aðra.“

Hann teldi hins vegar óhyggi­legt að hræra í flokks­for­yst­unni eins og sakir standa, með flokk­inn í rík­is­stjórn og eitt ár búið af kjör­tíma­bil­inu. End­ur­nýjað stjórn­ar­sam­starf við Vinstri græn og Fram­sókn­ar­flokk­inn hafi ekki síst byggst á góðu trausti milli for­ystu­manna flokk­anna. Það væri límið í rík­is­stjórn­inni. Það yrði því að koma í ljós ef breyt­ingar í for­yst­unni myndu hafa árif á rík­is­stjórn­ar­sam­starfið.

Í við­tali við RÚV í kvöld boð­aði Bjarni svo að Jón Gunn­ars­son muni fara úr rík­is­stjórn til að hleypa Guðrúnu Haf­steins­dóttur að. Og kúventi þar þeim áformum sem hleyptu yfir­stand­andi atburða­rás, sem gæti endað með for­manns­slag, af stað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár