Guðlaugur Þór býður sig fram til formanns gegn Bjarna

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, ætlar að bjóða sig fram sem for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins gegn Bjarna Bene­dikts­syni, sitj­andi for­manni til þrettán ára, á lands­fundi flokks­ins um næstu helgi.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hélt opinn fund í Valhöll í dag þar sem hann tilkynnti um framboð sitt til formanns Sjálfstæðisflokksins.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, hélt opinn fund í Valhöll í dag þar sem hann til­kynnti um fram­boð sitt til for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Skjáskot: Vísir

For­manns­slagur verður í Sjálf­stæð­is­flokknum, stærsta flokki lands­ins, á lands­fundi hans um næstu helgi. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son til­kynnti í hádeg­inu að hann ætli að bjóða sig fram gegn Bjarna Bene­dikts­syni, sitj­andi for­manni.

„Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn á ekki að vera stærsti flokk­ur­inn, hann á alltaf að vera langstærsti flokk­ur­inn,“ sagði Guðaugur Þór þegar hann ávarp­aði stuðn­ings­fólk sitt í Valhöll í hádeg­inu þegar hann til­kynnti um fram­boðið. Guð­laugur Þór, sem verður 55 ára í des­em­ber, hefur setið á þingi frá árinu 2003 og gegnir nú emb­ætti umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra. Bjarni hefur verið for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins frá 2009 og hefur í tvígang fengið mót­fram­boð, árið 2010 þegar Pétur Blöndal bauð sig fram og ári seinna þegar Hanna Birna Krist­jáns­dóttir bauð sig fram gegn honum.

Bjarni hefur gefið það út að tapi hann fyrir Guðlaugi Þór í for­manns­kjör­inu ætli hann að hætta í stjórn­málum. „Ef að mínum tíma sem for­manni lýkur í þessu kjöri þá er mínum tíma í stjórn­málum bara lok­ið. Það er ekk­ert flókn­ara en það,“ sagði Bjarni á Sprengisandi á Bylgj­unni í morgun.

Trúir því að flokkurinn geti gert betur

„Ég ein­arð­lega trúi því að við getum gert betur,“ sagði Guð­laugur Þór í Silfrinu á RÚV í morgun og lagði áherslu á að Sjálf­stæð­is­flokk­inn verði aftur sú breið­fylk­ing sem hún hefur verið. Friðjón Frið­jóns­son, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, var einnig gestur í Silfrinu og sagði fram­boð Guðlaugs „til­efni til ákveð­ins óvinafagn­aðar“ og fór ekki leynt með það að hann styður sitj­andi for­mann.

[links]Framboð hefur legið í loft­inu en það er lík­lega eitt verst geymda leynd­ar­mál íslenskra stjórn­mála að Guð­laugur Þór hefur lengi haft metnað til þess að verða for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Síðasta þriðju­dag, 25. októ­ber, bár­ust meld­ingar frá fólki innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins til fjöl­miðla um að Guð­laugur Þór ætl­aði í for­manns­fram­boð. Þær meld­ingar bár­ust helst frá fólki sem styður hina fylk­ing­una í flokknum og fólk í kringum Guð­laug Þór kann­að­ist ekki við að slík ákvörðun hefði verið tek­in.

Morg­un­blaðið birti svo frétt dag­inn eft­ir, 26. októ­ber, sem skrifuð er af Andr­ési Magn­ús­syni, rit­stjórn­ar­full­trúa blaðs­ins sem hefur mikil tengsl við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Í frétt­inni sagði að „und­an­farna daga hafa verið miklir orða­sveimir um hugs­an­­legt fram­­boð Guð­laugs, sem m.a. hefur verið tengt umdeildu vali á lands­fund­­ar­­full­­trúum í stöku félag­i.“

Guð­laugur Þór komst hjá því að mestu svara fyr­ir­spurnum um for­manns­fram­boð í vik­unni en í sam­tali við Vísi á fimmtu­dag beindi hann athygl­inni að fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í for­mann­s­tíð Bjarna og sagði marga í flokknum hafa miklar áhyggjur af stöðu hans.

Átök tveggja fylkinga

Nú þegar það liggur fyrir að hann ætlar að sækj­ast eftir for­manns­emb­ætt­inu er ljóst að tvær fylk­ingar innan flokks­ins munu takast á, fylk­ingar sem hafa átt í inn­byrðis átökum um ítök og áhrif árum sam­an án þess að hafa barist á um æðstu emb­ættin í flokkn­um.

Um er að ræða þá fylk­ingu sem fylgir Guð­laugi Þór að málum og þá sem hverf­ist í kringum Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins frá árinu 2009.

Fylk­ing Guðlaugs Þórs hefur tek­ist hart á við hina þegar valið hefur verið á fram­boðs­lista flokks­ins í síð­ustu tveimur borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum og í próf­kjör­inu fyrir síð­ustu þing­kosn­ing­ar. Færa má rök fyrir því að fylk­ing Guð­laugs Þór hafi sigrað í tveimur af þeim lot­um, fyrir kosn­ing­arnar 2018 og 2021, og haft ívið betur í þeirri þriðju, þegar próf­kjör ákvað lista flokks­ins fyrir síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar.

Hingað til hefur Guð­laugur Þór valið að sýna þol­in­mæði í for­mennsku­metn­aði sínum og sagt út á við að hann styðji for­yst­una eins og hún er. Taktíkin hefur gengið út á að reyna að bíða for­mann­s­tíð Bjarna Bene­dikts­sonar af sér.

En þegar Bjarni til­kynnti í ágúst að hann ætl­aði að sækj­ast eftir áfram­hald­andi for­mennsku þurfti Guð­laugur Þór að end­ur­meta aðferða­fræði sína. Það hefur hann nú gert og mun hann etja kappi við Bjarna um emb­ætti for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins á lands­fundi flokks­ins sem fer fram næstu helgi.

Lands­fund­ur­inn sá fyrsti frá því í mars 2018. Tvö þús­und lands­fund­ar­full­trúar, víða að á land­inu, eiga sæti á fund­inum og hafa kosn­inga­rétt í kjöri til for­manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár