Segir söluna á Íslandsbanka sukk og svínarí – „Spillingin gerist vart svæsnari“

Fyrr­verandi forsætis­ráðherra tjáir sig með afgerandi hætti á Facebook um Íslands­banka­söluna. „Það er ekki nóg með að skúrkar úr banka­hruninu hafi komist bakdyramegin inn heldur virðast dyr lána­stofnana hafa staðið þeim opnar til lántöku fyrir góssinu.“

Jóhanna Sigurðardóttir fyrrverandi forsætisráðherra Íslands.
Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Íslands. Mynd: EPA

„Salan í Íslands­banka er svo mikið sukk og svínarí að bæði þarf að leita leiða til að rifta henni og draga menn til ábyrgðar.“

Þetta skrifar Jóhanna Sigurðar­dóttir, fyrr­verandi formaður Samfylkingarinnar og forsætis­ráðherra, í stöðu­uppfærslu á Facebook í dag.

Hún segir að ekki sé nóg með að „skúrkar úr banka­hruninu“ hafi komist bakdyramegin inn heldur virðast dyr lána­stofnana hafa staðið þeim opnar til lántöku fyrir góssinu.

„Fjöldi kaupenda seldi strax og græddi milljarða á „einni nóttu“ af almanna­eign. Spillingin gerist vart svæsnari. Nú þarf að virkja lög um ráðherra­ábyrgð, sem Alþingi hefur heykst á að breyta þrátt fyrir kröfu rann­sóknar­nefndar Alþingis á banka­hruninu þar um.

Þeim lögum ætlaði mín ríkis­stjórn að láta breyta á árinu 2010 en fosætisnefnd Alþingis sagði að það væri verkefni Alþingis en ekki forsætis­ráðherra að leggja fram frumvarp þar að lútandi. Ég skora á Alþingi að breyta þegar í stað þessum lögum en frumvarp liggur fyrir um það frá Samfylkingunni og Pírötum,“ skrifar Jóhanna.

Margir selt sig niður að ein­hverju eða öllu leyti

Vísar Jóhanna í grein Kjarnans frá því fyrr í vikunni þar sem fram kom að alls væru 132 þeirra 207 fjár­­­festa sem fengu úthlutað hlutum í Íslands­­­banka í nýlegu lok­uðu útboði ekki lengur skráðir fyrir sama hlut og þeir fengu úthlut­að.

Margir þeirra hefðu selt sig niður að ein­hverju eða öllu leyti. Heim­ild­­ar­­menn Kjarn­ans innan banka­­kerf­is­ins segja að í flestum til­­vikum séu við­kom­andi ein­fald­­lega búnir að selja hlut­inn og leysa út hagn­að­inn af því að hafa fengið að taka þátt í útboð­inu með afslætti. Í ein­hverjum til­­vikum hafi verið fram­­virkir samn­ingar við þá og við­kom­andi fengið lán fyrir kaup­unum sem hafi svo verið gert upp strax á fyrstu dögum eftir að hægt var að selja að nýju. Það sem eftir sat lenti svo í vasa við­kom­andi fag­fjár­­­festis sem hreinn hagn­að­­ur.

Í öðrum til­­vikum hafi hlut­­ur­inn þó verið fluttur á vörslu­­reikn­inga í eign­­ar­­stýr­ingu við­kom­andi. Ómög­u­­legt er að sjá af hlut­haf­a­list­­anum hverjir færðu bréfin sín með þeim hætti og hverjir seldu. Velta með bréf í Íslands­­­banka, þar sem sem þau eru keypt og seld, dag­anna eftir að útboð­inu lauk var marg­­föld það sem hún var að með­­al­tali á dag frá ára­­mótum og fram að útboði. frá 23. mars og til 11. apríl höfðu um 152,6 millj­­ónir hluta skipt um eig­end­­ur. Það er um þriðj­ungur þess sem selt var í útboð­in­u.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár