Boða til mótmæla – „Bjarna Ben burt, spillinguna burt“

Mótmælendur hyggjast hittast á Austur­velli á morgun og krefjast þess að einhverjar afleiðingar verði af Íslands­banka­sölunni.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Boðað hefur verið til mótmæla á morgun, föstudag, klukkan tvö þar sem þess er krafist að Íslands­banka­sölunni verði rift, stjórn Banka­sýslunnar víki og að Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahags­ráðherra fari úr embætti.

Á dagskrá mótmælanna kemur fram að Ólína Kjerúlf Þorvarðar­dóttir fyrr­verandi þingmaður Samfylkingarinnar, Atli Þór Fanndal framkvæmda­stjóri Íslands­­­deild­ar Tran­­sparency In­ternat­i­onal, Halldóra Mogensen þing­flokks­formaður Pírata og Davíð Þór Jónsson prestur muni taka til máls.

Þetta er ekki fyrstu mótmælin sem haldin hafa verið vegna málsins en um síðastliðna helgi var sölu á hlut ríkisins í Íslands­banka til fagfjárfesta einnig mótmælt á Austur­velli. Mótmælendur fóru fram á að ríkis­stjórnin í heild sinni segði af sér.

Samkvæmt Vísi var nokkur fjöldi fólks saman kominn en skipuleggjendur skutu á að um 600 manns hefðu verið viðstaddir mótmælin. Ræður voru fluttar til að mótmæla því að „almanna­eigur séu seldar á afslætti gegn vilja þjóðarinnar“.

Fram­sögumenn síðustu helgi voru Þorvaldur Gylfason prófessor, Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR, Ásta Lóa Þórs­dóttir þingmaður Flokks fólksins og Gunnar Smári Egilsson úr Sósíalista­flokki Íslands.

Margir hafa selt sig niður að einhverju eða öllu leyti

Mikil ólga hefur verið í samfélaginu eftir að ríkið seldi 22,5 prósenta hlutur í Íslands­banka með 2,25 milljarða króna afslætti í mars síðastliðnum.

Kjarninn greindi frá því í vikunni að alls væru 132 þeirra 207 fjár­festa sem fengu úthlutað hlutum í Íslands­banka í nýlegu lok­uðu útboði ekki lengur skráðir fyrir sama hlut og þeir fengu úthlut­að.

Margir þeirra hefðu selt sig niður að ein­hverju eða öllu leyti. Sam­an­lagt keyptu þessir aðilar fyrir um 18,7 millj­arða króna í útboð­inu þann 22. mars síð­ast­lið­inn en útboðs­gengið var 117 krónur á hlut sem var 4,1 pró­sent lægra en mark­aðs­gengi þess dags.

Heim­ild­ar­menn Kjarn­ans innan banka­kerf­is­ins segja að í flestum til­vikum séu við­kom­andi ein­fald­lega búnir að selja hlut­inn og leysa út hagn­að­inn af því að hafa fengið að taka þátt í útboð­inu með afslætti. Í ein­hverjum til­vikum hafi verið fram­virkir samn­ingar við þá og við­kom­andi fengið lán fyrir kaup­unum sem hafi svo verið gert upp strax á fyrstu dögum eftir að hægt var að selja að nýju. Það sem eftir sat lenti svo í vasa við­kom­andi fag­fjár­festis sem hreinn hagn­að­ur.

Í öðrum til­vikum hafi hlut­ur­inn þó verið fluttur á vörslu­reikn­inga í eign­ar­stýringu við­kom­andi. Ómögu­legt er að sjá af hlut­haf­alist­anum hverjir færðu bréfin sín með þeim hætti og hverjir seldu. Velta með bréf í Íslands­banka, þar sem sem þau eru keypt og seld, dag­anna eftir að útboð­inu lauk var marg­föld það sem hún var að með­al­tali á dag frá ára­mótum og fram að útboði. frá 23. mars og til 11. apríl höfðu um 152,6 millj­ónir hluta skipt um eig­end­ur. Það er um þriðj­ungur þess sem selt var í útboð­in­u.

Hægt er að lesa frekar um málið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár