„Þögn ráðherra yfir páskahátíðina mun ekki kæfa kröfur um svör“

Þing­maður Við­reisnar segir að for­sæt­is­ráð­herra og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra þurfi að svara spurn­ingum um það hvort þau hafi vitað af áhyggjum við­skipta­ráð­herra varð­andi Íslands­banka­söl­una og geti þar af leið­andi ekki verið á flótta undan fjöl­miðlum.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar.
Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir þing­maður Við­reisnar segir að það ríki þögn á stjórn­ar­heim­il­inu eftir að Lilja Alfreðs­dóttir við­skipta­ráð­herra setti fram „póli­tíska stríðs­yf­ir­lýs­ingu“ gagn­vart Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra með orðum um að fjár­mála­ráð­herra ætti að axla póli­tíska ábyrgð á því hvernig sala á fjórð­ungs­eign­ar­hluta rík­is­ins í Íslands­banka fór fram.

Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu þing­manns­ins á Facebook í dag.

„Við­skipta­ráð­herra beindi gagn­rýni sinni einnig að for­sæt­is­ráð­herra, sem situr í ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál með við­skipta­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra. Þar seg­ist við­skipta­ráð­herra hafa greint frá áhyggjum sínum vegna þeirrar aðferða­fræði sem beita átti við söl­una. For­sæt­is­ráð­herra svarar bara að engin bókun liggi fyrir en segir ekk­ert um hvað var rætt á fundum þeirra þriggja,“ skrifar Þorbjörg.

Mjög stór orð

Þorbjörg spyr hvaða áhrif það hefði þegar við­skipta­ráð­herra segir að það sé því miður „fátt sem kemur á óvart í þessu máli og hver útkoman varð“ eða þegar hún bætir í og segir að „það muni koma meira í ljós í þessu máli á kom­andi dögum“.

„Þau orð gefa ekki bara til kynna að skoð­ana­munur hafi verið milli hennar og fjár­mála­ráð­herra, heldur að hún hafi talið ástæðu til að ætla að illa færi. Þessi orð ráð­herr­ans eru mjög stór og til marks um að hún telji frek­ari upp­lýs­ingar um málið verði öðrum ráð­herrum erf­iðar,“ skrifar hún.

Þá telur hún að það skipti þess vegna máli að fram komi hvað hafi verið rætt á ráð­herra­fundi um efna­hags­mál og hvernig umræður hafi verið á rík­is­stjórn­ar­fundum.

„Það liggur fyrir að við­skipta­ráð­herra bók­aði ekk­ert um afstöðu sína, en það vekur athygli að hvorki for­sæt­is­ráð­herra né fjár­mála­ráð­herra hafi tjáð sig um umræður á þessum fundum. Varaði við­skipta­ráð­herra þau við því að illa kynni að fara? Hverjar voru áhyggjur hennar og varn­að­ar­orð?“ spyr hún.

Mikilvægt að fá fram fundargerðir ríkisstjórnar og ráðherranefnda

Þorbjörg telur að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra þurfi að svara spurn­ingum þar um og geti ekki verið á flótta undan fjöl­miðlum. „Hags­munir almenn­ings kalla á að upp­lýst verði hvernig sú ákvörðun var tekin innan rík­is­stjórn­ar­innar að selja aðeins völdum hópi fjár­festa. Það er þess vegna sem svo mik­il­vægt er að fá fram fund­ar­gerðir rík­is­stjórnar og ráð­herra­nefndar til að varpa ljósi á aðdrag­anda söl­unnar og umræður um hvernig átti að haga söl­unni.“

Hún segir enn­fremur að ábyrgð Lilju hafi einnig mikla þýð­ingu og vísar í siða­reglur ráð­herra þar sem fjallað er um upp­lýs­inga­gjöf ráð­herra til almenn­ings. Í siða­regl­unum segir að ráð­herra eigi ekki að leyna upp­lýs­ingum sem varða almanna­hag nema lög bjóði eða almanna­hags­munir krefj­ist þess að öðru leyti. Ráðherra beri að hafa frum­kvæði að birt­ingu slíkra upp­lýs­inga sé hún í almanna­þágu.

Lilja upplýsti Alþingi ekki um áhyggjur sínar

Bendir Þorbjörg á að fyrir liggi að við­skipta­ráð­herra upp­lýsti Alþingi ekki um áhyggjur sínar um aðferða­fræði við sölu á rík­is­eign upp á tugi millj­arða. „En ræddi hún áhyggjur sínar á rík­is­stjórn­ar­fundi? Hvað sagði við­skipta­ráð­herra þing­mönnum Fram­sókn­ar­flokks­ins? Og getur virki­lega verið að for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins hafi ekki heyrt varn­að­ar­orð vara­for­manns síns?“ spyr hún.

„Siða­reglur ráð­herra eru skýrar um upp­lýs­inga­gjöf sem varða almanna­hag og frum­kvæði ráð­herr­ans þar um. Skyldur ráð­herr­ans gagn­vart Alþingi eru enn rík­ari. Almenn­ingur heyrði ekki af þessum áhyggjum og varn­að­ar­orðum við­skipta­ráð­herra fyrr en eftir söl­una og eftir að þung umræða hófst. Þá steig við­skipta­ráð­herra fram og tal­aði um mik­il­vægi þess að „hafa vaðið fyrir neðan sig“.

Sú ákvörðun ráð­herr­ans að greina þingi ekki frá áhyggjum sínum í svo stóru máli er auð­vitað sér­stök svo ekki sé fastar að orði kveðið. Ekki síst þegar litið er til hennar eigin orða um mat á því hvað þarna var í upp­sigl­ingu. Fyr­ir­komu­lag við sölu í þriðja stærsta hluta­fjár­út­boð Íslands­sög­unnar var áhyggju­efni við­skipta­ráð­herr­ans. Hvorki Alþingi né almenn­ingur fékk þó að heyra af því að innan rík­is­stjórn­ar­innar voru áhyggjur ræddar og sjón­ar­miðum þar um komið „skýrt á fram­færi“ að sögn við­skipta­ráð­herra. Þennan aðdrag­anda verður að upp­lýsa,“ skrifar hún og lýkur færsl­unni á því að segja að þögn ráð­herra yfir páska­há­tíð­ina muni ekki kæfa kröfur um svör.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár