Enga bókun að finna um sérstaka afstöðu neins ráðherra til sölu á Íslandsbanka

Lilja Alfreðs­dóttir hefur sagt að hún hafi ekki verið hlynnt þeirri aðferð­ar­fræði sem beitt var við sölu á hlut í Íslands­banka og að hún hafi komið þeim sjón­ar­miðum skýrt á fram­færi. Ekkert var bókað um þá afstöðu í fund­ar­gerðum ráð­herra­nefndar.

Þrír ráðherrar úr ríkisstjórninni sitja í ráðherranefnd um efnahagsmál. Þau eru Katrín Jakobsdóttir, Bjarni Benediktsson og Lilja Alfreðsdóttir.
Þrír ráð­herrar úr rík­is­stjórn­inni sitja í ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál. Þau eru Katrín Jak­obs­dóttir, Bjarni Bene­dikts­son og Lilja Alfreðs­dóttir. Mynd: Bára Huld Beck

For­sæt­is­ráðu­neytið telur sér ekki heim­ilt að afhenda fund­ar­gerðir ráð­herra­nefndar um efna­hags­mál og end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins þar sem þær séu und­an­þegnar upp­lýs­inga­rétti sam­kvæmt upp­lýs­inga­lögum. Þar er vísað til greinar sem segir að réttur almenn­ings til aðgangs að gögnum taki ekki til fund­ar­gerða rík­is­ráðs og rík­is­stjórnar, minnis­greina á ráð­herra­fundum og gagna sem tekin hafa verið saman fyrir slíka fundi.

Þetta kemur fram í svari þess við fyr­ir­spurn Kjarnans þar sem óskað var eftir afriti af öllum fund­ar­gerðum ráð­herra­nefndar um efna­hags­mál og end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins þar sem fjallað er um sölu á hlutum íslenska rík­is­ins í Íslands­banka frá því að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur tók við völdum síðla árs 2017 og fram til dags­ins í dag.

Í svar­inu sagð­ist ráðu­neytið hins vegar vilja upp­lýsa að rætt var um sölu­með­ferð á eign­ar­hlutum rík­is­ins í Íslands­banka á fjórum fundum ráð­herra­nefndar um efna­hags­mál og end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins; 27. jan­úar 2021, 4. maí 2021, 4. febr­úar 2022 og 1. apríl 2022.

Í fund­ar­gerðum þeirra funda er ekki að finna neina bókun um sér­staka afstöðu ráð­herra til sölu­með­ferð­ar­innar.

Í nefnd­inni sitja Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Lilja Alfreðs­dóttir, ferða­mála- við­skipta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra.

Lilja sagði í Morg­un­­blað­inu í dag að hún hefði ekki verið hlynnt þeirri aðferða­fræði sem var beitt við sölu á 22,5 pró­­sent hlut í Íslands­­­banka 22. mars síð­­ast­lið­inn. Hún hafi viljað almennt útboð, en ekki að bréf­in yrðu seld til val­ins hóps fjár­­­­­festa. Lilja, sem er einn þriggja ráð­herra rík­­is­­stjórnar sem situr í ráð­herra­­nefnd um efna­hags­­mál og end­­ur­­skipu­lagn­ingu fjár­­­mála­­kerf­is­ins, seg­ist hafa komið þeim sjón­­­ar­miðum sínum skýrt á fram­­færi í aðdrag­anda útboðs­ins. „Ég hef alltaf talið skyn­­­sam­­­legt að taka lít­il og hæg­fara skref. Hafa vaðið fyr­ir neðan sig. Ekki ein­blína á verð, held­ur gæði fram­­tíð­­ar­­eig­enda. Önnur leið var hins veg­ar val­in og því miður er fátt sem kem­ur á óvart í þessu máli og hver út­kom­an varð.“

Katrín sagði í við­tali við vef Frétta­blaðs­ins fyrr í dag að hvorki Lilja né nokkur annar ráð­herra hafi óskað að færa neitt til bókar um sölu­ferli á hlut Íslands­banka þegar málið var rætt í rík­is­stjórn og ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál.

Salan tekin fyrir á fjórum fundum

Fyrst var sölu­með­ferðin til umfjöll­unar á fundi ráð­herra­nefnd­ar­innar 27. jan­úar í fyrra þegar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra lagði fram og kynnti minn­is­blað um ákvörðun um að hefja sölu­með­ferð á eign­ar­hlutum rík­is­ins í Íslands­banka. Í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans segir að í fund­ar­gerð þess fundar komi fram að málið hafi verið rætt í ráð­herra­nefnd­inni.

Rúmum þremur mán­uðum síðar, 4. maí 2021, lagði Bjarni svo fram og kynnti annað minn­is­blað um sölu­með­ferð eign­ar­hluta rík­is­ins í Íslands­banka og glærur frá Banka­sýslu rík­is­ins um sama efni. Í fund­ar­gerð ráð­herra­nefnd­ar­innar kemur fram að málið hafi verið rætt. Síðar í saman mán­uði var ráð­ist í sölu á 35 pró­sent hlut í Íslands­banka á 55,3 millj­arða króna og bank­inn í kjöl­farið skráður á markað snemma í júní sama ár.

Sala á hlutum í bank­anum var svo aftur til umræðu á fundi sem fór fram 4. febr­úar síð­ast­lið­inn, fyrir rúmum tveimur mán­uðum. Þar lagði Bjarni fram og kynnti loka­drög að skýrslu um sölu­með­ferð eign­ar­hluta rík­is­ins í Íslands­banka. Í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans segir: „Í óstað­festri fund­ar­gerð kemur m.a. fram að málið hafi verið rætt í ráð­herra­nefnd­inni og ákveðið hafi verið að leggja skýrsl­una fyrir á næsta rík­is­stjórn­ar­fundi. Fjármála- og efna­hags­ráð­herra lagði einnig fram og kynnti minn­is­blað um fram­hald á sölu eign­ar­hluta rík­is­ins í Íslands­banka ásamt grein­ar­gerð. Málið var rætt og ákveðið að leggja það fyrir á næsta rík­is­stjórn­ar­fundi.“

22,5 pró­­sent hlutur í Íslands­­­banka var svo seldur í lok­uðu útboði með til­boðs­fyr­ir­komu­lagi þann 22. mars 2022 fyrir 52,65 millj­arða króna. Verðið var 4,1 pró­sent undir mark­aðsvirði á þeim tíma sem þýðir að þeir 207 aðilar sem fengu að kaupa gerðu það á verði sem var 2,25 millj­örðum krónum undir mark­aðsvirði þess tíma. Kostn­aður við útboðið var um 700 millj­ónir króna.

Fyrir tíu dögum, þann 1. apríl, fund­aði ráð­herra­nefndin svo aftur. Þá hafði komið fram marg­háttuð gagn­rýni á söl­una í mars. Á þeim fundi kynntu full­trúar Banka­sýslu rík­is­ins glærur um sölu­með­ferð­ina 22. mars. „Í óstað­festri fund­ar­gerð um málið kemur m.a. fram að málið hafi verið rætt og óskað eftir því að Banka­sýslan birti upp­lýs­ingar um sölu­með­ferð­ina og kaup­endur allra fyrst.“

Listi yfir kaup­endur var svo birtur síð­ast­lið­inn mið­viku­dag eftir að Bjarni Bene­dikts­son hafði lagt sjálf­stætt mat á að hann ætti að birta. Það var gert í and­stöðu við ráð­legg­ingar Banka­sýslu rík­is­ins sem hafði meðal ann­ars fengið lög­fræði­á­lit frá LOGOS um að það væri óvar­legt.

Í svari ráðu­neyt­is­ins segir að Katrín Jak­obs­dóttir, Bjarni Bene­dikts­son og Lilja Alfreðs­dóttir, sem mynda ráð­herra­nefnd­ina, hafi setið alla ofan­greinda fundi. Auk ráð­herr­anna sátu fund­ina emb­ætt­is­menn og starfs­fólk við­kom­andi ráðu­neyta og aðstoð­ar­menn ráð­herra. For­stjóri og stjórn­ar­for­maður Banka­sýsl­unnar voru gestir á fund­unum 4. maí 2021 og 1. apríl 2022 en for­stjóri Banka­sýsl­unnar var þar að auki gestur á fund­inum 4. febr­úar 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár