„Skalf og táraðist“ vegna lögreglumanns sem neitaði að yfirgefa dómssal

Tvær konur sök­uðu lög­reglu­þjón á Eski­firði um óeðli­lega hátt­semi í fram­burði sínum fyrir Hér­aðs­dómi Aust­ur­lands. Emil Thoraren­sen var dæmdur fyrir meið­yrði þegar hann tjáði sig um meinta hátt­semi lög­reglu­manns­ins.

Tvær konur á Eski­firði sök­uðu Þór Þórð­ar­son lög­reglu­þjón um óeðli­leg sam­skipti við sig í aðal­með­ferð meið­yrða­máls sem ákæru­valdið höfð­aði gegn Emil K. Thoraren­sen, íbúa á svæð­inu. Þetta kemur fram í dómi sem féll í gær. Önnur kvenn­anna telur Þór hafa mis­notað vald sitt og komið „perra­lega“ fram og hin sakar hann um að hafa áreitt sig kyn­ferð­is­lega.

Þór fékkst ekki til að yfir­gefa sal­inn meðan kon­urnar báru vitni. „Hann sat þarna, beint fyrir aftan vitna­stúk­una, í fremstu röð, nán­ast í arms­lengd frá mér. Allir sáu hvað þetta var erfitt fyrir mig, ég skalf og tárað­ist, svo þau treystu sér ekki til að halda áfram að spyrja,“ segir önnur þeirra í sam­tali við Stundina.

Emil Thoraren­sen var dæmdur fyrir meið­yrði um lög­reglu­þjón­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár