Könnun: 45 prósent kjósenda repúblikana studdu gjörðir þeirra sem réðust á þingið

Á meðan að heimurinn fylgdist með fréttum af innrás æsts múgs í þjóðþing Banda­ríkjanna gerði fyrir­tækið YouGov skoðana­könnun á því hvernig fólk upplifði atburðina. Demó­kratar og repúblikanar sáu hlutina gjör­ólíkum augum.

Könnun YouGov var framkvæmd á meðan að atburðirnir í Washington voru enn í fullum gangi.
Könnun YouGov var fram­kvæmd á meðan að atburð­irnir í Washington voru enn í fullum gangi. Mynd: EPA

Skoðana­könnun sem framkvæmd var af fyrir­tækinu YouGov á meðan að atburðir gærdagsins í Washington DC stóðu yfir hefur fengið marga til þess að staldra við og íhuga á hvaða stað bandarískt samfélag er komið. Í könnuninni voru kjósendur spurðir út í innrás æst múgs í bandaríska þjóð­þingið.

Samkvæmt niður­stöðum könnunarinnar töldu um það bil sex af hverjum tíu kjósendum að innrásin í þingið sé ógn við bandarískt lýðræði. En það er afar misjafnt eftir kjósenda­hópum, hvernig litið er á hlutina.

Einungis 27 prósent kjósenda Repúblikana­flokksins sögðust telja atburðina ógn við lýðræðið, á meðan að 9 af hverjum 10 demó­krötum töldu svo vera.

Til viðbótar sögðust 45 prósent þeirra sem svöruðu og eru skráðir kjósendur Repúblikana­flokksins hreinlega styðja gjörðir þeirra hundruða sem þustu inn í þinghúsið með ofbeldi. Svipað hlutfall kjósenda flokksins sagðist á móti innrásinni í þingið.

Fleiri repúblikanar töldu Biden bera ábyrgð en Trump

YouGov spurði þátt­takendur einnig að því hverjir þeir teldu að bæru ábyrgð á atburðunum.

Meirihluti, eða 55 prósent, sagðist telja að Donald Trump forseti bæri mikla ábyrgð og 11 prósent til viðbótar töldu hann bera einhverja ábyrgð á því hvernig fór.

42 prósent sögðu að þingmenn Repúblikana­flokksins sem höfðu ákveðið að mótmæla kosninga­úrslitum í einstaka ríkjum bæru mikla ábyrgð á stöðunni og 20 prósent til viðbótar sögðu þá bera einhverja ábyrgð.

Einnig töldu 17 prósent kjósenda að Joe Biden verðandi Bandaríkja­forseti bæri mikla ábyrgð á atburðunum og 9 prósent til viðbótar sögðu hann bera einhverja ábyrgð. Í kjósenda­hópi repúblikana töldu fleiri Biden bera mikla ábyrgð á atburðunum (35 prósent) en Trump (13 prósent).

Öfgamenn eða föðurlandsvinir?

Samkvæmt niður­stöðum könnunarinnar voru einnig mjög skiptar skoðanir á því hvaða augum þeir sem réðust inn í þinghúsið voru litnir. Rúmur helmingur þátt­takenda í könnunni (52 prósent) sagði rétt að kalla þau „öfgamenn“ og 49 prósent töldu rétt að tala um „innlenda hryðju­verkamenn.“

Kjósendur Repúblikana­flokksins töldu flestir (50 prósent) að rétt væri að tala um „mótmælendur“, 30 prósent þeirra sögðu rétt að kalla hópinn „föður­landsvini“ og röskum fjórðungi þeirra þótti rétt að tala um „öfgamenn.“

Þátt­takendur í þessari könnun YouGov voru 1.448 talsins. Þar af voru 1.397 sem höfðu heyrt af því sem hafði átt sér stað í Washington, en um netkönnun var að ræða sem framkvæmd var á milli 17:17 og 17:42 í gær, að bandarískum austur­strandar­tíma.

Gögnin eru vigtuð með tilliti til aldur, kyns, menntunar­stig, yfir­lýstra stjórnmála­skoðana og uppruna svarenda og eiga að endur­spegla fullorðna íbúa Banda­ríkjanna ágætlega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár