Mynd: EPA

Forseti Bandaríkjanna stýrir fordæmalausri árás á lýðræðið

Mánuðum saman hefur Donald Trump sagt rang­lega að svindl hafi leitt til þess að hann tap­aði for­seta­kosn­ing­unum í nóv­em­ber 2020. Á fundi með stuðn­ings­mönnum fyrr í dag sagði hann: „Við munum aldrei gef­ast upp.“

Frá því að Joe Biden var stað­festur sig­ur­veg­ari í banda­rísku for­seta­kosn­ing­unum þann 7. nóv­em­ber 2020 hefur Donald Trump, sitj­andi Banda­ríkja­for­seti, haldið því fram að svindlað hafi verið til að koma honum frá völdum.

Fjölmörg dóms­mál, yfir 60, hafa verið höfðuð og allar mögu­legar leiðir reyndar til að breyta þeirri nið­ur­stöðu að Biden fékk sjö milljón fleiri atkvæði en Trump og alls 306 kjör­menn kjörna á móti 232 sem féllu Trump í skaut.

Engin lög­form­leg leið skil­aði for­set­anum og fylg­is­mönnum hans neinum árangri. Dómarar sem Trump skip­aði sjálfur vís­uðu málum frá fyrir að vera fjar­stæðu­kennd. Hæsti­réttur, sem í sitja þrír dóm­arar sem Trump skip­aði, neit­aði að ógilda nið­ur­stöðu kosn­ing­anna.

Trump hefur síð­ustu daga og vikur ein­beitt sér að því að þrýsta á kjörna full­trúa ýmissa ríkja sem til­heyra hinum svoköll­uðu sveiflu­ríkjum, að snúa nið­ur­stöð­unni með ein­hverjum hætti. Þær til­raunir náðu hámarki um liðna helgi þegar Trump bein­línis bað inn­an­rík­is­ráð­herra Georgíu um að „finna“ atkvæði sem myndu nægja honum til sig­urs í rík­inu.

For­set­inn hefur auk þess þrýst á þing­menn í full­trúa­deild­inni og öld­unga­deild­inni að stað­festa ekki nið­ur­stöðu kjós­enda eða ríkj­anna sem mynda Banda­ríkin, og hafa öll stað­fest nið­ur­stöður for­seta­kosn­ing­anna, á sér­stökum fundi sem átti að fara fram í dag, 6. jan­úar. Á þeim fundi koma þing­menn beggja deilda saman á fundi sem er stýrt af vara­for­seta Banda­ríkj­anna til að ganga frá þeim form­leg­heitum að stað­festa nið­ur­stöðu kjós­enda og ríkja.

Vegna þrýst­ings Trump ákvað hluti þing­manna Repúblikana­flokks­ins úr báðum deildum að mót­mæla stað­fest­ing­unni. Sá fjöldi var þó fjarri því sem til þurfti og í ljósi þess hóf Trump að þrýsta á Mike Pence vara­for­seta að beita valdi til að neita að stað­festa kjör Biden. Pence til­kynntu for­set­anum í gær að hann hefði ekki vald til þess.

Mikilvægur lýðræðisdagur varð svartur blettur í sögunni

Í dag var stór dagur í banda­rískum stjórn­málum. Nið­ur­staða í kosn­ingum í Georgíu, þar sem kosið var um tvö öldund­ar­deild­ar­sæti og yfir­ráð yfir þeirri deild Banda­ríkja­þings, varð kunn­gjörð. Síðar sama dag átti að stað­festa kjör Biden, tveimur vikum áður en að hann tekur form­lega við emb­ætti for­seta Banda­ríkj­anna.

Demókra­ta­flokk­ur­inn vann bæði öld­ung­ar­deild­ar­sætin sem keppt var um, og nær þar með meiri­hluta í henni líkt og flokk­ur­inn hefur í full­trúa­deild­inni. Þegar við bæt­ist að full­trúi flokks­ins verður næsti for­seti þá er ljóst að Demókra­ta­flokk­ur­inn er í góðri stöðu með að koma stefnu­málum sínum í fram­kvæmd á næstu tveimur árum hið minnsta.

Repúblikanar, margir hverjir mjög hátt­settir, voru mjög skýrir við banda­ríska blaða­menn þegar þeir voru spurðir hvað hefði farið úrskeiðis. Svarið var Donald Trump og fram­ferði hans síð­ustu mán­uði, sem hafði klofið flokk­inn og ýtt hóf­sam­ari kjós­endum frá honum með nars­iss­isma sínum. Trump tók eigin tap­sær­indi fram fyrir hags­muni flokks­ins og fyrir það greiddi flokk­ur­inn dýru verði.

Þegar þessi staða var að opin­ber­ast voru stuðn­ings­menn Donald Trump þegar byrj­aðir að safn­ast saman í Washington til að mót­mæla því að hann væri ekki áfram for­seti. Hluti þess mikla fjölda Banda­ríkja­manna sem hefur flykkt sér í kringum Trump virð­ist að hafa staðið með for­set­anum í þeirri veg­ferð sem hann ákvað að ráð­ast í eftir að hann tap­aði for­seta­kosn­ing­unum. Því var búist við fjöl­menni.

Líklega átti þó eng­inn von á því sem gerð­ist.

„Við munum aldrei gefast upp“

Yfir­skrift mót­mæl­anna var „Save America“. Hópurinn safn­að­ist saman skammt frá Hvíta hús­inu. Um svipað leyti og þing­menn hófu að safn­ast saman í þing­hús­inu í Washington til að und­ir­búa stað­fest­ingu Biden sem for­seta ákvað Trump að ávarpa fjöld­ann. Þar sagði hann meðal ann­ars: „Við munum aldrei gef­ast upp. Við munum aldrei við­ur­kenna ósigur.“

Mann­fjöld­inn – margir með hinar frægu Make America Great Again der­húfur eða Trump-fána, sumir með Suð­ur­ríkja­fána en sára­fáir með grímur – kyrj­aði til baka „við munum stöðva stuld­inn“.

Skömmu eftir að fund­ur­inn til að stað­festa kjör Biden hófst fór hluti þess hóps sem tekið hafði þátt í Trump-fund­inum að færa sig í átt að þing­hús­inu. Mikil reiði var á meðal stuðn­ings­manna Trump.

Þar hafði Mitch McConnell, leið­togi Repúblika­flokks­ins í öld­unga­deild­inni, haldið áhrifa­mikla ræðu þar sem hann hvatti til þess að nið­ur­staða for­seta­kosn­ing­anna yrði virt.

Þegar komið var að þing­hús­inu þá óð hluti hóps­ins í gegnum lög­reglu húss­ins og inn í það. Það er í fyrsta sinn sem það ger­ist frá því að Bretar réð­ust inn í þing­húsið árið 1814 og báru eld að því.

Inni í þing­hús­inu hafa verið unnin skemmd­ar­verk, skotum hefur verið hleypt af, ráð­ist hefur verið inn á skrif­stofur þing­manna og í sal öld­unga­deild­ar­innar. Þing­fund­inum sem átti að stað­festa kjör Biden var frestað í flýti og þeim sem hann sátu komið í var. Einn stuðn­ings­maður Trump komst alla leið inn á skrif­stofu Nancy Pelosi, leið­toga Demókra­ta­flokks­ins í full­trúa­deild­inni, og skrif­aði á möppu sem lögð var á lykla­borð tölvu hennar: „Við munum ekki gef­ast upp.“

Mótmælandi á skrifstofu Nancy Pelosi.
Mót­mæl­andi á skrif­stofu Nancy Pelosi.

Öng­þveiti skap­að­ist. Hægt og rólega fór það að renna upp fyrir fólki sem fylgd­ist með þessum atburðum í beinni útsend­ingu, út um allan heim, að ein­hvers konar til­raun til valda­ráns, eða að minnsta kosti ein alvar­leg­asta til­raun til að stöðva fram­gang hins lýð­ræð­is­lega fer­ils, var að eiga sér stað í Banda­ríkj­unum.

Olíu hellt á eldinn

Á meðan að á þessu stóð var Trump í vari í Hvíta hús­inu og sendi skila­boð til fylg­is­manna sinna á þann hátt sem hann kann best við, í gegnum Twitter. Í stað þess að draga úr spenn­unni ákvað Trump að hella olíu á eld­inn með því að senda út tíst þar sem hann réðst gegn vara­for­seta sínum fyrir að hafa ekki gert eins og Trump vildi, og kæmi í veg fyrir stað­fest­ingu Biden. Um svipað leyti var borg­ar­stjór­inn í Washington D.C. að lýsa yfir útgöngu­banni vegna ástands­ins og allt þjóð­varn­ar­lið svæð­is­ins hafði verið kallað út til að takast á við stöð­una.

Eftir harða gagn­rýni víða að ákvað Trump að senda út tvö tíst þar sem hann hvatti fyrst til stuðn­ings við lög­regl­una og síðan til þess að ofbeldi yrði ekki beitt. Í hvor­ugu tíst­inu bað Trump stuðn­ings­menn sína að yfir­gefa þing­húsið. Ivanka Trump, dóttir for­set­ans og einn helsti ráð­gjafi hans, tísti til mót­mæl­enda og bað þá um að vera frið­sama. Í því tísti kall­aði hún hóp­inn „föð­ur­lands­vini“. Ivanka Trump eyddi því tísti nokkrum mín­útum eftir að það fór í loftið.

Trump segist elska fólkið sem réðst inn í þinghúsið

Joe Biden hafði ætlað að ávarpa banda­rísku þjóð­ina í kvöld og ræða um efna­hags­mál. Atburðir dags­ins breyttu til­gangi og tóni ræð­unnar algjör­lega.

„Í þessum töl­uðu orðum er lýð­ræði okkar undir for­dæma­lausri árás, sem er ólík öllu öðru sem við höfum séð í nútím­an­um“ sagði Biden í ræðu sinni.

Hann skor­aði á Don­ald Trump að ávarpa þjóð­ina í beinni sjón­varps­út­send­ingu og for­dæma árás­ina á þingið og gera allt sitt til þess að reyna lægja öld­urn­ar.

Skömmu síðar setti Trump rúm­lega eins mín­útna langt mynd­band á Twitter. Þar end­ur­tók hann þau rang­indi að hann hefði unnið for­seta­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber, að þeim hefði verið stolið frá honum og sagð­ist skilja að stuðn­ings­menn hans væru reiðir. Hann bað mót­mæl­endur þó um að fara heim og að gera það frið­sam­lega. Trump sagði líka, og beindi þeim orðum til hóps­ins sem ráð­ist hefur inn í þing­húsið í Washington: „Við elskum ykk­ur.“

Donald Trump á enn eftir tvær vikur í emb­ætti for­seta Banda­ríkj­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið undanfarið ár