Ríkisstjórnin herðir útlendingastefnuna og sviptir fólk réttinum til framfærslufjár

Sigríður Á. Andersen setti nýlega reglugerð sem skerðir lífskjör hælis­leitenda sem fengið hafa synjun og bíða eftir að vera sendir úr landi.

Sigríður Á. Andersen dómsmála­ráðherra hefur ákveðið að svipta útlendinga réttinum til framfærslu­fjár eftir að hælis­umsóknum þeirra er synjað og meðan þeir bíða eftir að vera sendir úr landi. Komi hælis­leitandi frá ríki sem er á lista yfir örugg uppruna­ríki og umsókn er metin „bersýni­lega tilhæfu­laus“ getur Útlendinga­stofnun jafnframt fellt niður alla þjónustu við viðkomandi eftir að framkvæmdarhæf ákvörðun um synjun umsóknar liggur fyrir.

Þetta kemur fram í nýrri reglugerð sem ráðherra undir­ritaði á dögunum. Reglurnar veita yfir­völdum talsvert svigrúm til að synja fólki um hæli sem kemur frá ríkjum sem eru ekki í hópi þeirra ríkja sem íslensk stjórn­völd telja „örugg“. Jafnvel þótt umsækjandi um hæli komi til dæmis frá Sýrlandi eða Írak getur nú hælis­umsókn hans talist „bersýni­lega tilhæfu­laus“ ef Útlendinga­stofnun telur máls­ástæður hans „byggjast á fjarstæðu­kenndri frásögn“. Þá fela hinar nýju reglur í sér að ákvörðunum Útlendinga­stofnunar í forgangs­málum þarf ekki að fylgja rökstuðningur. 

Ríkis­stjórn Sjálfstæðis­flokksins, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar hefur hert talsvert á stefnu Íslands í hælis­málum frá því hún tók við stjórnar­taumunum í janúar á þessu ári. Eitt af fyrstu verkum Sigríðar Á. Andersen dómsmála­ráðherra var að lýsa því yfir á fundi á Möltu að íslensk stjórn­völd hefðu efasemdir um fyrir­hugaðar breytingar á Dyflinnar­reglu­gerðinni og áform um aukna samábyrgð Evrópu­ríkja í flótta­mannamálum. 

Í sama mánuði var haft eftir Sigríði í viðtali við RÚV að íslensk stjórn­völd ætluðu ekki að láta það átölu­laust ef hælis­leitendur myndu „misnota velvild Íslendinga“. Skömmu síðar kallaði svo Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, eftir því að hópi hælis­leitenda sem hann telur að leiti hingað til lands til að „misnota velferðar­kerfið“ yrði mætt „með hörðum stálhnefa“.

Í mars lagði dómsmála­ráðherra fram frumvarp um að girt yrði varanlega fyrir að kærur hælis­leitenda frestuðu réttar­áhrifum ákvörðunar Útlendinga­stofnunar um brott­vísun í tilvikum þar sem hælis­umsókn hefur verið metin bersýni­lega tilhæfu­laus og umsækjandi kemur frá landi sem er á lista stofnunarinnar yfir örugg ríki. Alþingi samþykkti lögin þann 6. apríl, en Rauði krossinn á Íslandi og Lögmanna­félagið höfðu gagnrýnt laga­breytingarnar og varað við því að með þeim væri réttar­öryggi hælis­leitenda skert og mann­réttindum þeirra ógnað. 

Allir þingmenn stjórnar­meirihlutans samþykktu frum­varpið, enginn þeirra gerði grein fyrir atkvæði sínu og dómsmála­ráðherra og vara­formaður allsherjar­nefndar voru einu stjórnar­liðarnir sem stigu upp í pontu og tjáðu sig um lögin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár