Sprenging kjarnorkudrifinnar flaugar olli geislun í Rússlandi

Talið er að fimm til sjö vísinda­menn hafi látist í kjölfar sprengingar kjarnorku­drifinnar flaugar í Rússlandi. Vísinda­mennirnir unnu að prófun flaugarinnar sem hönnuð var til að komast fram hjá bandarískum loft­vörnum.

Vladimír Pútín, Rússlandsforseti.
Vladimír Pútín, Rúss­lands­for­seti. Mynd: EPA

Fimm til sjö vísinda­menn létust í dular­fullri prófun á nýrri kjarnorku­drifinni flaug í Rússlandi. Rússnesk yfirvöld hafa lýst vísinda­mennina, sem voru sérfræðingar í kjarnorku, þjóð­hetjur. Flaugin, sem var hönnuð til að komast fram hjá bandarískum loft­vörnum, sprakk og olli geislun í kjölfarið.

Flaugin sprakk í Hvítahafi, norðan við borgina Arkhangelsk. Valentin Kostyukov, yfirmaður kjarnorku­miðstöðvar Rússlands, sagði í kjölfar slyssins að vísinda­mennirnir væru þjóð­hetjur, jafnframt sem þeir yrðu heiðraðir ríkis­verðlaunum eftir dauða sinn.

Í kjölfar sprengingarinnar reyndi bandaríska leyni­þjónustan að finna út hvað hafi valdið henni. Sprengingin olli mælanlegri geislun sem varð til þess að upp komst um tilraunina. Bandarískir kjarnorku­fræðingar telja jafnframt að flaugin hafi verið kjarnorku­drifin stýri­flaug.

Hönnuð til að komast fram hjá bandarískum loftvörnum

Samkvæmt heimildum the New York Times telja bandarískir leyni­þjónustu­menn að flaugin sé hin svokallaða SSC-X-9 Skyfall flaug sem Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur sagt að geti náð hvert sem er í heiminum. Pútín kynnti flaugina opinber­lega haustið 2018 og sagði hana vera hannaða til þess að komast fram hjá bandarískum loft­vörnum.

Flaugin er hönnuð til að vera ófyrirsjáanleg í flugi og á að geta flogið afar nærri sjávar­máli. Slík flaug væri bandarískum flug­vörnum afar erfitt að skjóta niður miðað við núverandi tækni. Engu að síður virðist tilraunin fyrr­nefnda hafa misheppnast sem gefur til kynna að flaugin sé ekki orðin jafn þróuð og rússnesk stjórn­völd gefa til kynna.

Misvísandi upplýsingar um geislun

Misvísandi upplýsingar hafa borist frá rússneskum stjórn­völdum um hversu mikil geislun hafi orðið af völdum slyssins. Í kjölfar sprengingarinnar gaf rússneski herinn út að eldur hafi brotist út þegar vökva­eldsneytis­drifin flaug hafi sprungið á tilraunar­miðstöð hersins og að geislun væri innan eðlilegra marka.

Hins vegar gaf sveita­stjórn Severodvinsk sem er í um 40 kílómetra fjarlægð frá Arkhangels að tveir geislunar­mælar hafi mælt aukna geislun. Auk þess gaf rússnesk frétta­veita út að geislun hafi farið 200 falt yfir eðlilega geislun, en fréttin var fljótlega fjarlægð af vef frétta­veitunnar.

Endalok vopnasamnings Rússlands og Bandaríkjanna

Í byrjun ágúst voru form­leg enda­lok vopna­samn­ings milli Rúss­lands og Banda­ríkj­anna um bann á fram­leiðslu með­al­drægra kjarn­orku­flauga. Sam­komu­lag­ið, sem í dag­legu tali er kall­að INF, var sett á árið 1987 og var mik­il­vægur þáttur í enda­lokum Kalda stríðs­ins á níunda ára­tugn­um.

Hins vegar hefur samn­ing­ur­inn verið í upp­námi á síð­ustu árum. Banda­ríkja­stjórn ásak­aði rík­is­stjórn Rúss­lands um að hafa gengið á bak orða sinna með æfinga­skotum árið 2014. Sam­kvæmt tals­mönnum Banda­ríkja­hers hafa Rússar fram­leitt teg­und kjarn­orku­flaugar sem sér­fræð­ingar telja að geti verið skotið upp í um 2 þús­und kíló­metra fjar­lægð frá áfanga­stað. Rússar neit­uðu ásök­unum og svör­uðu með því að ásaka Banda­ríkja­menn um að hafa gerst sjálfir brot­legir á samn­ingn­um.

Hvor­ugt ríkið hefur birt sann­anir um brot á samn­ingnum opin­ber­lega, en NATO tók undir með Banda­ríkja­mönnum á aðal­fundi þeirra í fyrra­sum­ar. Þar sögðu tals­menn hern­að­ar­banda­lags­ins meint brot Rússa vera „senni­leg­asta túlk­un­in“ á þau gögn sem þeir bjuggu yfir.

Í októ­ber í fyrra hót­aði svo Don­ald Trump ­for­seti Banda­ríkj­anna því að rifta samn­ingnum við Rúss­land vegna meintra brota, svari rík­is­stjórn Rúss­lands ekki kröfum þeirra. Rúss­land stóð fast í sinni afstöðu og svo fór að Trump til­kynnti end­an­lega að sam­komu­lag­inu yrði rift með hálfs árs fyr­ir­vara síð­asta febr­ú­ar.

Eftir nýliðin samn­ings­slit milli Rúss­lands og Banda­ríkj­anna er aðeins einn vopna­samn­ingur í gildi milli land­anna, sem ber heit­ið ­New Start. Sá samn­ingur kveður á um hámarks­fjölda kjarn­orku­odda í hvoru land­inu, en sam­kvæmt blaða­manni Al Jazeera er útlit fyrir að að honum ljúki án end­ur­nýj­unar árið 2021.

Auknar líkur á vopnakapphlaupi

Sér­fræð­ingar í hern­að­ar­málum segja riftun hern­að­ar­samn­inga Banda­ríkj­anna við Rúss­land auka lík­urnar á alþjóð­legu vopna­kapp­hlaupi. Banda­ríkja­for­seti virð­ist einnig hafa haft vopna­kapp­hlaup í huga.

Alþjóð­legt vopna­kapp­hlaup virð­ist því vera í start­hol­un­um. Til að mynda sagð­ist Mark Esper, varn­ar­mála­ráð­herra ­Banda­ríkj­anna, vilja flytja með­al­drægar eld­flaugar til Aust­ur-Asíu núna um helg­ina, rétt eftir að samn­ingnum við Rúss­land hafði verið rift. Aðspurður hvort vopna­kapp­hlaup sé í vænd­um, svar­aði utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands því að valið væri í höndum Banda­ríkj­anna. Hins vegar bætti hann við að ef til vopna­kapp­hlaups kæmi myndu Rússar aldrei tapa.

Rússar auka hernað sinn á norðurslóðum

Í skýrslu varnarmála­ráðuneytis Banda­ríkjanna er því haldið fram að þörf sé á að nútíma­væða eldflauga­varnir og varnir gegn lang­dregnum flaugum á norðurslóðum. Varnarmála­ráðuneytið vill enn fremur auka sjóeftirlit á hafsvæðinu milli Íslands, Grænlands og Bretland, það er hjá hinu svokallaða GIUK bili. Það falli vel að núverandi verkefnum NATO á Íslandi. Í skýrslunni segir enn fremur að hætta sé á ákveðinni keðjuverkun frá öðrum svæðum. Til að mynda geti spenna milli Banda­ríkjanna og Rússlands eða Kína í öðrum heims­svæðum smitað út frá sér og skapað spennu á milli þeirra á norðurslóðum.

Jens Stoltenberg, framkvæmda­stjóri NATO, sagði á fyrir­lestri í Norræna húsinu 11. júní síðastliðinn að aukin hern­að­ar­upp­bygg­ing Rússa á norð­ur­slóð­um, með auknum her­stöðv­um, kaf­bátum og auk­inni hern­að­ar­legri loft­um­ferð, valdi banda­laginu sér­stak­lega áhyggj­u­m.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár