Stoltenberg: Ísland hefur mikilvægu hlutverki að gegna innan NATO

Fram­kvæmda­stjóri Atl­ants­hafs­banda­lags­ins segir Ísland hafa mik­il­vægu hlut­verki að gegna innan banda­lags­ins. Nýjar ógnir kalli á sam­vinnu allra banda­lags­ríkja.

Hlutverk Íslands er afar mik­il­vægt innan Atl­ants­hafs­banda­lags­ins (NATO), netárásir geta virkjað við­brögð banda­lags­ins og Banda­ríkin styðja banda­lagið þrátt fyrir tal um annað. Þetta kom fram í máli Jens Stol­ten­berg, fram­kvæmda­stjóra NATO í gær í Norræna hús­inu í gær.

Mikill örygg­is­við­bún­aður var í Norræna hús­inu í gær og var fullt út úr dyrum. Tilefnið var koma Stol­ten­berg á við­burð á vegum Alþjóða­mála­stofn­unar Háskóla Íslands, Varð­bergs og utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. Yfir­skrift við­burð­ar­ins var NATO og Ísland í 70 ár: Öflug sam­vinna á óvissu­tímum.

„Öruggari og sterkari þegar við vinnum saman“

Stol­ten­berg ávarp­aði gesti og sagði meðal ann­ars að NATO kunni vel að meta hlut­verk Íslands innan banda­lags­ins. Ísland tengi saman Norður-Ameríku og Evrópu vegna land­fræði­legrar legu sinnar.

[adspot]Stol­ten­berg sagði til­gang NATO vera að ganga úr skugga um að banda­lags­þjóð­irnar vinni saman. „Við erum örugg­ari og sterk­ari þegar við vinnum saman,” sagði hann.

Fram­kvæmda­stjór­inn sagði að þrátt fyrir að Ísland sé her­laust land þá sé fram­lag lands­ins ann­ars konar. Ísland aðstoði NATO til að mynda með eft­ir­lit með sjó­um­ferð og loft­um­ferð. Auk þess sé borg­ara­legt fram­lag Íslands innan banda­lags­ins vel metið, til að mynda í Afganistan, Írak og Kósovó.

Stol­ten­berg lagði áherslu á að þjóðir innan banda­lags­ins standi saman vegna þess að „þegar nágrannar okkar eru stöðugir erum við örugg­ari.“

Fram­kvæmda­stjór­inn sagði að Ísland væri leið­andi í kven­rétt­inda­málum innan banda­lags­ins. Ekki ein­ungis vegna þess að það sé rétti hlut­ur­inn til að gera heldur einnig því það væri afar gáfu­legt. Það sé mik­il­vægt að virkja konur, t.d. í Afganistan, til þess að koma á stöð­ug­leika.

Þrjár ógnir steðja að bandalaginu

Stol­ten­berg sagði að ógnir sem steðji að banda­lags­ríkj­unum séu ófyr­ir­sjá­an­legri og óstöðugri en áður. Í því sam­hengi steðji sér­stak­lega þrjár ógnir að banda­lag­inu, þ.e. styrkur banda­lags­ins, að við­halda lágu spennustigi í Norður-Atl­ants­hafi og tak­mörkun vopna.

Hvað varðar styrk banda­lags­ins þá sagði Stol­ten­berg mis­mun­andi skoð­anir og auknar deilur á milli Banda­ríkj­anna og Evr­ópu­ríkja, ásamt óein­ingu á milli ein­stakra Evr­ópu­ríkja, valdi áhyggjum. Ríkin séu ósam­mála um ýmis mál­efni, til að mynda tolla, við­skipti og lofts­lags­breyt­ingar.

Stol­ten­berg sagði ein­ungis eina leið vera hægt að fara til þess að við­halda banda­lag­inu, það er að hafa stuðn­ing almenn­ings innan banda­lags­ríkja við banda­lagið. Það sé gert með því að sýna fram á hversu mik­il­vægt banda­lagið sé og að banda­lagið lagi sig að nýrri þróun í örygg­is­málum.

Fjármagn Bandaríkjanna hefur aukist um 40 prósent

Hann benti á að þrátt fyrir deilur á milli ríkja þá séu bæði Banda­ríkin og Evr­ópu­ríki að auka þátt­töku sína innan vébanda banda­lags­ins. Banda­ríkin hafi til að mynda aukið veru sína í Evrópu með fleiri hern­að­ar­æf­ingum, fleiri her­mönnum og svo mætti áfram telja. Undir stjórn Trumps hafi fjár­magn til örygg­is­mála í Evrópu auk­ist um 40 pró­sent. Þrátt fyrir tal um annað þá séu Banda­ríkin að auka við­veru sína innan Evrópu og Evr­ópu­ríki hafa einnig aukið fram­lag sitt til örygg­is­mála., að því er kom fram í máli fram­kvæmda­stjór­ans.

[adspot]Stol­ten­berg sagði að aukin hern­að­ar­upp­bygg­ing Rússa á norð­ur­slóðum, með auknum her­stöðvum, kaf­bátum og auk­inni hern­að­ar­legri loft­um­ferð, valdi sér­stak­lega áhyggjum.

Til þess að við­halda lágu spennustigi á Norður-Atl­ants­hafi verði að halda áfram að eiga í sam­skiptum við Rússland og sagði Stol­ten­berg að „svo lengi sem við stöndum sterk og sam­einuð getum við átt sam­tal við Rússland.“ Í því sam­hengi væri mik­il­vægt að forð­ast atvik eða slys sem geti aukið spennu milli Rúss­lands og NATO.

Hlutverk Íslands mikilvægt

Stol­ten­berg sagði að for­mennska Íslands innan Norð­ur­skauts­ráðs­ins væri mik­il­væg til að halda sam­ræðum við Rússland áfram. Af átta ríkjum innan Norð­ur­skauts­ráðs­ins séu fimm þeirra með­limir NATO. Ísland geti hjálpað með því að beita sér fyrir tak­mörkun vopna. Þó ber að geta að Norð­ur­skauts­ráðið fjallar ekki um hern­að­ar­mál.

Stol­ten­berg sagði Ísland hafa sögu­lega spilað stórt hlut­verk í frið­ar­við­ræðum, til að mynda 1986 þegar for­setar Rúss­lands og Banda­ríkj­anna, Gorbachev og Reagan, hitt­ust í Reykja­vík.

Ísland hafi nú það hlut­verk að hjálpa Banda­ríkj­unum og Evrópu að standa saman. Nú séu sjó­leiðir norð­ur­slóða smám saman að opn­ast sem muni auka skipa­um­ferð í kringum Ísland.

Það sem ógni tak­mörkun vopna nú til dags er að Rússland fari ekki lengur eftir sátt­mál­anum sem banni með­al­drægar flaugar, að mati Stol­ten­bergs. Rússland hafi ekki sýnt fram á vilja um að fara eftir sátt­mál­anum, því þurfi allir að búa sig undir heim án þess sátt­mála. Hann lagði ríka áherslu á að við­halda banda­lag­inu sé sér­stak­lega mik­il­vægt fyrir smá­þjóðir líkt og Ísland.

Netárásir geta virkjað fimmtu grein NATO

Þegar Stol­ten­berg var spurður út í hina ófyr­ir­sjá­an­legu þróun í banda­rískum stjórn­málum svar­aði hann því að Trump hafi annan stíl en flestir aðrir stjórn­mála­menn og upp­skar mik­inn hlátur fyrir vikið.

Fram­kvæmda­stjór­inn lagði áherslu á að rík­is­stjórn Trump standi með NATO og muni gera það áfram. Á sama tíma sé mik­il­vægt að önnur banda­lags­ríki innan NATO fjár­festi meira í vörnum sínum. Þetta sé ekki ein­ungis skila­boð Trump haldi uppi, heldur hafi það einnig verið skila­boð rík­is­stjórnar Obama á sínum tíma. Að mati Stol­ten­berg sýni Trump stuðn­ing sinn ekki með orðum heldur gjörðum og sagði að Banda­ríkin væru í raun að standa sig.

Stol­ten­berg sagði að netárás geti virkjað fimmtu grein NATO sem virkji við­brögð banda­lags­ins. Hins vegar sé erfitt að til­einka netárásir ákveðnum ein­stak­lingum vegna eðlis netárása.

Aukin viðvera NATO á Íslandi

Stol­ten­berg sagði NATO nú þegar hafa aukið við­veru sína á Íslandi og í kringum Ísland. NATO ríki hafi til að mynda aukið fjölda her­æf­inga í Norður-Atl­ants­hafi. Við sumar æfing­arnar sé not­ast við íslenska inn­viði og sam­skipta­tækni.

Að lokum gaf Pia Hansson, for­stöðu­maður Alþjóða­mála­stofn­unar Háskóla Íslands, Stol­ten­berg skýrsl­una „Reassess­ing the Stol­ten­berg Report” sem þýða mætti sem „Endurmat Stol­ten­berg skýrsl­unnar.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár