Mynd: EPA

Hernaðaruppbygging á norðurslóðum nær nú til Íslands

Ísland hefur stór­aukið fram­lag sitt til varn­ar­mála, ásamt því að Atl­ants­hafs­banda­lagið hefur aukið við­veru sína á Íslandi til muna.

Banda­ríkja­menn ætla sér að stór­auka hern­að­ar­lega við­veru sína á norð­ur­slóðum og koma upp nýrri norð­ur­slóða­deild innan banda­ríska hers­ins. Rússar hafa einnig aukið hernað sinn á síð­ustu árum og hefur við­vera NATO á Íslandi auk­ist til muna. Ísland jók enn fremur fram­lag sitt til varn­ar­mála um 37 pró­sent frá því í fyrra.

Rík­is­stjórn Trump æltar sér að auka hern­að­ar­við­veru sína á norð­ur­slóðum. Hún ætlar að koma á nýrri norð­ur­slóða­deild innan banda­ríska hers­ins, efla örygg­is­við­veru sína á norð­ur­slóðum, styrkja her sinn á svæð­inu, halda her­æf­ingar og byggja upp ísbrjóta sína, að því er kom fram í ræðu Mike Pompeo, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, þann 6. maí síð­ast­lið­inn á sam­komu Norð­ur­skauts­ráðs­ins í Rovaniemi í Finn­landi.

Ræðan rugg­aði bátnum innan ráðs­ins svo vægt sé til orða tekið. Sagði hann norð­ur­slóðir áður hafa verið svæði sam­vinnu og rann­sókna, nú væru norð­ur­slóðir hins vegar orðnar að svæði valda­bar­áttu og sam­keppni. Nú væri nýtt upp­haf stra­tegískrar sam­keppni og nýrra ógna. Hann sagði enn fermur norð­ur­slóðir hafa miklar auð­lindir, til dæmis 13 pró­senta allrar óupp­götv­aðrar olíu, 30 pró­senta óupp­götv­aðs gass, auk margra jarð­málma, gulls og dem­anta. Aðgengi að auð­lind­unum væri nú meira en áður vegna bráðnun og hop­unar íss.

Vilja takmarka getu Kína og Rússlands

Hags­munir Banda­ríkj­anna á norð­ur­slóðum eru sér­stak­lega að tak­marka getu Kína og Rúss­lands á norð­ur­slóðum að því er kemur fram í nýrri skýrslu Varna­mála­ráðu­neytis Banda­ríkj­anna.

Pompeo tók einmitt Kína sér­stak­lega fyrir í ræðu sinni í Norð­ur­skauts­ráð­inu, en Kína hefur stöðu áheyrn­ar­að­ila innan Norð­ur­skauts­ráðs­ins ásamt tólf öðrum ríkjum, svo sem Frakk­lands, Indlands, Japans, Bret­lands og fleiri ríkja. Pompeo sagði efa­semdir um raun­veru­legan til­gang veru Kína á norð­ur­slóðum. Nú skil­greini Kína sig sem „nær­ríki norð­ur­slóða“ en hann líti svo á að ein­ungis séu til norð­ur­slóð­ar­ríki og ríki sem ekki séu norð­ur­slóð­ar­ríki, eng­inn þriðji flokkur sé til.

Hann sagði þar að auki Kína ekki hafa til­kall til neins þrátt fyrir að það skil­greini sig sem „nær­ríki norð­ur­slóða.“ Pompeo sagði að áætlun Kína að gera sigl­inga­leið um norð­ur­slóðir sem hluta af Belti og braut væri leið kín­verskra stjórn­valda að þróa mik­il­væga inn­viði á norð­ur­slóðum og jafn­vel koma upp lang­tíma örygg­is­við­veru (e. security presence) á svæð­inu.

Rússar auka hernað sinn á norðurslóðum

Í fyrr­nefndri skýrslu varna­mála­ráðu­neytis Banda­ríkj­anna er því haldið fram að þörf sé á að nútíma­væða eld­flauga­varnir og varnir gegn lang­dregnum flaugum á norð­ur­slóðum. Varn­ar­mála­ráðu­neytið vill enn fremur auka sjó­eft­ir­lit á haf­svæð­inu milli Íslands, Græn­lands og Bretland, það er hjá hinu svo­kall­aða GIUK bili. Það falli vel að núver­andi verk­efnum NATO á Íslandi. Í skýrsl­unni segir enn fremur að hætta sé á ákveð­inni keðju­verkun frá öðrum svæðum. Til að mynda geti spenna milli Banda­ríkj­anna og Rúss­lands eða Kína í öðrum heims­svæðum smitað út frá sér og skapað spennu á milli þeirra á norð­ur­slóðum.

Sergei Kislyak, öld­unga­deild­ar­þing­maður rúss­neska þings­ins og fyrrum sendi­herra Rúss­lands í Banda­ríkj­unum, sagði á Arctic Circle í Hörpu í októ­ber síð­ast­liðnum að stór hluti norð­ur­slóða væri á yfir­ráða­svæði Rúss­lands þar sem her­leysi myndi bitna á öryggi lands­ins, að því er kemur fram í frétt Morg­un­blaðs­ins. Hann sagði enn fremur að norð­ur­slóðir væru fjár­sjóðs­kista nátt­úru­auð­linda sem hægt væri að nýta.

Hernaðaruppbygging Rússlands. Á kortið vantar NATO hernaðarinnviði.
Hern­að­ar­upp­bygg­ing Rúss­lands. Á kortið vantar NATO hern­að­ar­inn­viði.

Rússar hafa vissu­lega aukið hernað sinn á norð­ur­slóðum. Í við­tali við Foreign Policy benti Dan Sullivan, banda­rískur öld­unga­deild­ar­þing­maður, á að á síð­ustu árum hafi Rússar aukið hernað sinn á norð­ur­slóðum gíf­ur­lega. Rússar hafi opnað 14 nýja flug­velli, 16 hafnir, 40 ísbrjóta og fjögur ný herteymi á norð­ur­slóðum.

Jens Stol­ten­berg, fram­kvæmda­stjóri NATO, sagði á fyr­ir­lestri í Norræna hús­inu 11. júní síð­ast­lið­inn að aukin hern­að­ar­upp­bygg­ing Rússa á norð­ur­slóð­um, með auknum her­stöðv­um, kaf­bátum og auk­inni hern­að­ar­legri loft­um­ferð, valdi banda­lag­inu sér­stak­lega áhyggj­u­m.

Ísland hluti af hernaðaruppbyggingu á norðurslóðum

Banda­ríkin munu auka fjár­magn til mann­virkja­upp­bygg­inga á Kefla­vík­ur­flug­velli um sjö millj­arða króna en Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, sagði þó í við­tali við Morg­un­blaðið að á Íslandi yrði ekki her­seta á nýjan leik. 300 millj­ónum verður hins vegar varið í upp­bygg­ingu á innviðum vegna skuld­bind­inga Íslands í NATO. For­sæt­is­ráð­herra sagði enn fremur að aukin hern­að­ar­um­svif á Norð­ur­höfum ættu að vera Íslend­ingum áhyggju­efni. Katrín sagði einnig við­veru her­manna hafa auk­ist á Íslandi og að hún hafi verið mikil síð­ustu tvö ár.

Í við­tali við Kastljós þann 25. júní síð­ast­lið­inn sagði hún að „auð­vitað hljótum við öll að hafa áhyggjur af þeim auknu hern­að­ar­um­svifum sem við sjáum í norð­ur­höfum og sér­stak­lega því Ísland hefur lagt sig fram að vera alltaf málsvari frið­sam­legra lausna á alþjóða­vett­vangi.“

Framlag Íslands til varnarmála hefur hækkað síðustu ár

Í fyrra hækk­uðu fram­lög Íslands til varn­ar­mála um 37 pró­sent. Fram­lög Íslands til varn­ar­mála árið 2019 eru 2.185 millj­ónir króna miðað við 1.592 millj­ónir króna árið 2017. Þetta kemur fram í skýrslu ut­an­rík­is­ráð­herra um utan­rík­is­mál og alþjóða­mál sem lögð var fyrir Alþingi í apríl 2019.

Í svari frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu við fyr­ir­spurn Kjarn­ans kom fram að auknar fjár­heim­ildir mála­flokks­ins megi skýra að mestu af fjórum verk­efn­um: 127 millj­ónir króna voru veittar til­ end­ur­nýj­unar á rat­sjár­kerfi og stjórn­stöðv­ar­kerfi. Alls 60 millj­ónir króna fóru í að efla ­samn­ings­bund­inn gisti­ríkja­stuðn­ing og 50 millj­ónir króna megi svo rekja til reglu­bund­inna varnaræf­inga í sam­ræmi við varn­ar­á­ætlun Atl­ants­hafs­banda­lags­ins. Að lokum voru 35 millj­ónir veitt­ar til samn­ings­bund­ins við­halds varn­ar­mann­virkja.

Stærstur hluti fjár­magns­ins fer til almenns rekst­urs Land­helg­is­gæsl­unnar og Kefla­vík­ur­flug­völls eða 1.519 millj­ónir króna. 217 millj­ónir króna fara í sam­stöðu­að­gerð­ir.

Í skýrsl­u utan­rík­is­ráð­herra er grund­völlur varna Íslands sagður vera aðildin að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu og varn­ar­samn­ing­ur­inn við Banda­ríkin frá 1951. Þar er vöxtur útgjalda sagður „helg­ast af vax­andi skuld­bind­ingum sem Ísland hefur tek­ist á hendur innan Atl­ants­hafs­banda­lags­ins og auk­inni tíma­bund­inni við­veru liðsafla banda­lags­ins á Kefla­vík­ur­flug­velli vegna versn­and­i ­ör­ygg­is­á­stands í Evr­ópu, þ.m.t. á Norð­ur­-Atl­ants­hafi.“

Á fyr­ir­lestri sínum í Nor­ræna hús­inu þann 11. júní síð­ast­lið­inn sagði Jens Stol­ten­berg, fram­kvæmda­stjóri NATO, banda­lagið nú þegar hafa aukið við­veru sína á Íslandi og í kringum Ísland. NATO ríki hafi til að mynda aukið fjölda her­æf­inga í Norð­ur­-Atl­ants­hafi.

Stjórn­ar­flokkar ósam­mála um varn­ar­mál

Vinstri græn eru á móti sam­starf­inu í NATO, að því er kom fram í máli for­sæt­is­ráð­herra í við­tali við Kastljós þann 25. júní síð­ast­lið­inn. Hún sagði Vinstri græn engu að síður hafa tekið þá ákvörðun að fylgja Þjóðar­ör­ygg­is­stefnu Íslands þar sem það „er auð­vitað hlut­skipti stjórn­mála­manna að þurfa stundum að fylgja lýð­ræð­is­legum vilja, sér­stak­lega þegar um er að ræða eina stjórn­mála­flokk­inn sem er and­vígur aðild Íslands að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu eins og er raunin með okkur Vinstri græn.“

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, vara­for­maður þing­flokks Vinstri grænna, skrif­aði á Facebook síðu sinni 25. júní síð­ast­lið­inn að það væri grát­legt að „horfa upp á þá gegnd­ar­lausu sóun sem á sér stað í hern­að­ar­upp­bygg­ingu í heim­inum, með fjár­munum sem mætti svo hæg­lega nýta til ann­arra og betri hluta.“ Hann skrif­aði enn fremur að hann telji að NATÓ aðild skapi þjóð­inni frekar ógn en öryggi.

Þessar stað­hæf­ingar eru í takt við stefnu Vinstri grænna, en þar segir skýrt: „Ekki á að leyfa her­æf­ingar í land­inu eða innan lög­sögu þess. Ísland og íslenska lög­sögu á að frið­lýsa fyrir umferð með kjarn­orku-, sýkla- og efna­vopna í lofti, á láði og leg­i.“

Í stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir hins vegar að aðild Íslands­ að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu og varn­ar­samn­ingur Íslands og Banda­ríkj­anna séu „­for­sendur þess að öryggi lands­ins sé trygg­t“

Í við­tali við Kastljós 12. júní síð­ast­lið­inn sagði Jens Stol­ten­berg, fram­kvæmda­stjóri NATO, að NATO vilji að Rússar viti af fæl­ing­ar­mætti banda­lags­ins til að koma í veg fyrir að Rússar reyni að taka yfir lands­svæði ein­hvers NATO ríkis. Hann sagði mark­miðið með því ekki vera að hefja átök heldur að koma í veg fyrir átök.

Spurður út í hlut­verk Íslands innan banda­lags­ins svar­aði Stol­ten­berg fram­lag Íslands til NATO væri mik­il­vægt þrátt fyrir að Ísland hefði ekki her. Banda­ríkja­menn hafi til að mynda eft­ir­lits­flug­vélar sem vinni frá Keflavík. Íslend­ingar gegni einnig mik­il­vægu hlut­verki þegar kæmi að afvopnun. Stol­ten­berg hélt því einnig fram að Donald Trump styðji NATO og muni standa við heit sín í örygg­is­málum.

Þrátt fyrir að stjórn­ar­flokkar séu ekki á einu máli er varðar þátt­töku Íslands í NATO er ljóst að við­vera her­manna hefur auk­ist á Íslandi og fram­lög Íslands til varn­ar­mála einnig. Fram­kvæmda­stjóri NATO telur Ísland gegna mik­il­vægu hlut­verki innan banda­lags­ins á sama tíma og for­sæt­is­ráð­herra lýsir yfir áhyggjum sínum af auknum hern­aði á norð­ur­slóðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hernaður

Mest lesið undanfarið ár