Framlög Íslands til varnarmála hækkuðu um 37 prósent í fyrra

Aukning á fram­lögum til varn­ar­mála úr rík­is­sjóði frá árinu 2017 nær 593 millj­ónum króna.

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra Mynd: Bára Huld Beck

Framlög Íslands til varn­ar­mála árið 2019 eru 2.185 millj­ónir króna miðað við 1.592 millj­ónir króna árið 2017. Þetta kemur fram í skýrslu utan­rík­is­ráð­herra um utan­rík­is­mál og alþjóða­mál sem lögð var fyrir Alþingi í apríl 2019.

Í svari frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu við fyr­ir­spurn Kjarnans kom fram að auknar fjár­heim­ildir mála­flokks­ins megi skýra að mestu af fjórum verk­efnum: 127 millj­ónir króna voru veittar til end­ur­nýj­unar á rat­sjár­kerfi og stjórn­stöðv­ar­kerfi. Alls 60 millj­ónir króna fóru í að efla samn­ings­bund­inn gisti­ríkja­stuðn­ing og 50 millj­ónir króna megi svo rekja til reglu­bund­inna varnaræf­inga í sam­ræmi við varn­ar­á­ætlun Atl­ants­hafs­banda­lags­ins. Að lokum voru 35 millj­ónir veittar til samn­ings­bund­ins við­halds varn­ar­mann­virkja.

Stærstur hluti fjár­magns­ins fer til almenns rekst­urs Land­helg­is­gæsl­unnar og Kefla­vík­ur­flug­völls eða 1.519 millj­ónir króna. 217 millj­ónir króna fara í sam­stöðu­að­gerðir.

Í skýrsl­unni er grund­völlur varna Íslands sagður vera aðildin að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu og varn­ar­samn­ing­ur­inn við Banda­ríkin frá 1951. Þar er vöxtur útgjalda sagður „helg­ast af vax­andi skuld­bind­ingum sem Ísland hefur tek­ist á hendur innan Atl­ants­hafs­banda­lags­ins og auk­inni tíma­bund­inni við­veru liðsafla banda­lags­ins á Kefla­vík­ur­flug­velli vegna versn­andi örygg­is­á­stands í Evrópu, þ.m.t. á Norður-Atl­ants­hafi."

Stjórnarflokkar ósammála um varnarmál

[links]Vinstri græn eru and­víg veru Íslands í hern­að­ar­banda­lagi og segir skýrt í stefnu þeirra: „Ekki á að leyfa her­æf­ingar í land­inu eða innan lög­sögu þess. Ísland og íslenska lög­sögu á að frið­lýsa fyrir umferð með kjarn­orku-, sýkla- og efna­vopna í lofti, á láði og legi.“

Í stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir hins vegar að aðild Íslands að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu og varn­ar­samn­ingur Íslands og Banda­ríkj­anna séu „for­sendur þess að öryggi lands­ins sé tryggt“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár