Tíu staðreyndir um NATO

Mikið gekk á á leið­toga­fundi aðild­ar­ríkja Atl­ants­hafs­banda­lags­ins fyrr í vik­unni. Í ljósi þess tók Kjarninn saman nokkrar stað­reyndir um banda­lagið og stöðu Íslands innan þess.

Frá höfuðstöðvum NATO í Brussel.
Frá höf­uð­stöðvum NATO í Brussel. Mynd: Nato

1. 69 ára bandalag

Atl­ants­hafs­banda­lagið (e. NATO) var stofnað þann fjórða apríl árið 1949 af tíu Vestur-Evr­ópu­þjóðum ásamt Kanada og Banda­ríkj­unum. Meg­in­hlut­verk banda­lags­ins var að verj­ast ágangi Sov­ét­ríkj­anna, en það stefndi einnig að auknu stjórn­mála­sam­starfi aðild­ar­ríkja og vann gegn upp­gangi her­skárra þjóð­ern­isafla í Evrópu. Lyk­ilá­kvæði stofn­samn­ings banda­lags­ins er fimmta grein þess, en hún til­greinir að sér­hver árás á aðild­ar­ríki NATO jafn­gildi árás á öll ríki þess.

2. 28 opinberar aðgerðir

Í dag eru aðild­ar­ríki Atl­ants­hafs­banda­lags­ins 29 tals­ins, en starf­semi þess hefur tekið miklum breyt­ingum frá stofnun. Banda­lagið tók ekki þátt í neinum hern­að­ar­að­gerðum á meðan Kalda stríðið stóð yfir, en frá enda­lokum Sov­ét­ríkj­anna snemma á tíunda ára­tugnum hefur það staðið í að minnsta kosti 28 opin­berum aðgerðum. Þeirra á meðal var þátt­taka frið­ar­gæslu­liða í Bosníu og Her­segóvínu vegna stríðs­ins í gömlu Júgóslavíu fyrir 25 árum síðan.

3. 42-föld landsframleiðsla Íslands

Áætluð heild­ar­út­gjöld sem renna til NATO á þessu ári eru 1.013.406.000.000 Banda­ríkja­dalir, sem jafn­gildir rúmri billjón dala, eða 42-falda lands­fram­leiðslu Íslands. Sömu­leiðis telur sam­eig­in­legur her banda­lags­ins 3,18 millj­ónir, en það er meira en nífaldur íbúa­fjöldi Íslands.

4. Þátttaka Íslands

Ísland er eitt af stofn­þjóðum banda­lags­ins og jafn­framt eina þjóð þess sem ekki hefur eigin her og eigin varnir. Þjóðar­ör­ygg­is­stefna Íslands skil­greinir aðild okkar að NATO hins vegar sem lyk­il­stoð í vörnum lands­ins. Lengst framan af var meg­in­fram­lag Íslands til sam­eig­in­legrar örygg­is­stefnu NATO í formi aðstöðu til banda­ríska varn­ar­liðs­ins sem hafði aðsetur hér til árs­ins 2006. Nú fel­ast helstu fram­lög okkar í rekstur og umsjón varn­ar­mann­virkja NATO á Íslandi, þar með talið fjög­urra rat­sjár­stöðva, auk gisti­ríkja­stuðn­ings fyrir heim­sóknir og æfingar liðsafla banda­lags­ins. Einnig starfa tíu Íslend­ingar á vegum NATO sem borg­ara­legir sér­fræð­ingar, en þeir fást meðal ann­ars við upp­lýs­inga­mál og sprengju­eyð­ingu.

5. Ísland úr NATO, herinn burt

Þátttaka Íslands í NATO hefur ekki verið óum­deild, en til átaka kom á Aust­ur­velliþegar rík­is­stjórn Íslands ætl­aði að sam­þykkja aðild okkar að banda­lag­inu árið 1949. Samtök her­stöðvaand­stæð­inga stóðu einnig á bak við ell­efu Kefla­vík­ur­göngur, þar sem veru banda­ríska setu­liðs­ins og aðild Íslands að NATO var mót­mælt, á tíma­bil­inu 1960-1991. Vinstri græn hafa einnig lýst yfir and­stöðu sinni við NATO, en úrsögn Íslands úr banda­lag­inu hefur verið á stefnu­skrá flokks­ins í langa tíð.

6. Leiðtogafundurinn

Síð­ast­lið­inn mið­viku­dag og fimmtu­dag stóð yfir 29. leið­toga­fundur sam­bands­ins. Þeir eru ekki haldnir með reglu­legu milli­bili, en venju­lega er kallað til þeirra til að kynna annað hvort stefnu­breyt­ingu eða inn­göngu nýrra aðild­ar­ríkja að banda­lag­inu. Aðalmál á dag­skrá leið­toga­fund­ar­ins í ár voru útgjalda­mál aðild­ar­ríkj­anna auk aðild­ar­við­ræðna Úkraínu og Georgíu að NATO.

7. Tveggja prósenta markið

Mestu athygli á leið­toga­fund­inum vöktu hins vegar ummæli Donald Trump Banda­ríkja­for­seta um mis­jöfn fjár­fram­lög aðild­ar­ríkj­anna til varn­ar­mála, en Trump vildi að öll banda­lags­ríki myndu leggja út 2% af vergri lands­fram­leiðslu sinni til varn­ar­mála nú þegar og hækka hlut­fall sitt upp í 4% í náinni fram­tíð.

8. Hærri útgjöld samþykkt

Meðlimir NATO hafa nú þegar sam­þykkt að auka útgjöld sín til varn­ar­mála, en árið 2014 ákváðu aðild­ar­ríkin að stefna að útgjalda­aukn­ingu til varn­ar­mála þannig að hvert land næði 2% mark­inu innan árs­ins 2024. Einungis fimm aðild­ar­ríki hafa náð mark­inu nú þegar, en það eru Banda­ríkin með 3,5%, Grikk­land með 2,27%, Eistland með 2,14%, Bretland með 2,1% og Lettland með slétt tvö pró­sent.

9. Framlag Bandaríkjanna

Hvort sem miðað er við höfða­tölu eða raun­fram­lög leggja Banda­ríkin lang­mest fram til sam­eig­in­legra varn­ar­mála Atl­ants­hafs­banda­lags­ins. Metið fram­lag Banda­ríkj­ana í ár eru 727 millj­arðar Banda­ríkja­dala, en það er meira en fram­lag allra hinna 28 ríkj­anna sam­an­lagt. Á síð­ustu níu árum hefur þó hlut­fall fram­laga Banda­ríkj­anna af lands­fram­leiðslu til varn­ar­mála minnkað um þriðj­ung, frá 5,3 pró­sent árið 2009 niður í 3,5 pró­sent í ár.

10. Framlag Íslands

Ísland er her­laust land og greiðir því lang­minnst til varn­ar­mála af öllum aðild­ar­ríkjum banda­lags­ins. Samkvæmt fjár­lögum árið 2018 nema heild­ar­út­gjöld Íslands til varn­ar­mála í ár um 1,9 millj­örðum íslenskra króna, en það er ekki nema 0,07 pró­sent af lands­fram­leiðslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár