Útgáfufélag Stundarinnar tapaði rúmlega milljón krónum á síðasta ári

Tekjur útgáfu­félags Stundarinnar námu 233,9 milljónum króna á síðasta ári og jukust þær um fjögur prósent á milli ára. Tapið af rekstrinum nam 1,2 milljónum króna í fyrra, saman­borið við rúmlega sjö milljóna hagnað árið 2020.

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir er ritstjóri Stundarinnar, en Jón Trausti Reynisson er framkvæmdastjóri útgáfufélagsins auk þess að vera blaðamaður á miðlinum.
Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir er rit­stjóri Stund­ar­innar, en Jón Trausti Reyn­is­son er fram­kvæmda­stjóri útgáfu­fé­lags­ins auk þess að vera blaða­maður á miðl­inum. Mynd: Bára Huld Beck

Útgáfu­félag Stundarinnar var rekið með 1,2 milljóna króna tapi á síðasta ári, sem er viðsnúningur frá árinu 2020, en þá hagnaðist Stundin um 7,2 milljónir. Tekjur félagsins námu alls 233,9 milljónum og hækkuðu um rúm 4 prósent á milli ára.

Þetta má lesa í ársreikningi útgáfu­félagsins, sem skilað var inn til Skattsins í upphafi mánaðar. Í skýrslu stjórnar um starfsemi félagsins segir að eftir lok reiknings­ársins 2021 hafi tekjur félagins aukist verulega, en kostnaður einnig að sama skapi.

Það tengist væntanlega nýlegum skipulags­breytingum hjá miðlinum og áhrifum þeirra, en í janúar­mánuði var tilkynnt að Jón Trausti Reynisson myndi stíga úr stóli annars tveggja ritstjóra og verða í kjölfarið framkvæmda­stjóri útgáfu­félagsins og blaða­maður á miðlinum.

Ingibjörg Dögg Kjartans­dóttir er ein aðal­ritstjóri eftir þessar breytingar, en blaða­maðurinn Helgi Seljan bættist við hóp starfs­manna í febrúar og er hann rannsóknar­ritstjóri miðilsins.

85 prósent tekna frá almenningi

Stjórn útgáfu­félagsins telur líklegt að vaxandi verðbólga komi til með að valda þrýstingi til tekju­lækkunar, hvort sem er að raun- eða nafnvirði, auk kostnaðar­hækkunar. Í skýrslu stjórnarinnar kemur fram að um 85 prósent af öllum tekjum Stundarinnar komi beint frá almenningi í gegnum áskrifta­kaup, styrki eða lausasölu blaða.

Í skýrslu stjórnar kemur fram að Stundin hafi ekki nýtt sér nein úrræði stjórn­valda vegna COVID-19 faraldursins, en að aðhalds hafi verið gætt í rekstrinum á árinu 2021.

Fjallað er um áframhald opinbers rekstrar­stuðnings við fjölmiðla í ársreikningi Stundarinnar og tekið fram að óvissa er um áframhald þess stuðnings, þrátt fyrir að fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar geri ráð fyrir að hann haldi áfram.

Því er ekki enn ljóst hvort rekstrar­stuðningur komi á móti ritstjórnar­kostnaði sem fellur til á reiknings­árinu 2022, sem síðan fengist greiddur á árinu 2023. Stundin fékk 25,3 milljónir í opinberan rekstrar­stuðning á síðasta ári, eða sem nam tæpum 11 prósentum af heildar­tekjum fjöl­miðilsins.

Samkvæmt ársreikningi voru tólf stöðu­gildi hjá útgáfu­félaginu á árinu 2021 og hafði þeim fjölgað um tvö frá fyrra ári. Kostnaður fyrir­tækisins vegna launa og launa­tengdra gjalda nam alls 127,4 milljónum króna í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár