Dalur Róberts Wessman afskrifaði 135,2 milljónir af skuldum Birtings

Velta tíma­rita­út­gáf­unnar Birtings dróst saman um fimmt­ung í fyrra og föstum starfs­mönnum var fækkað úr 25 í 12. Rekstr­ar­tap var 74 millj­ónir króna og eigið fé er nei­kvætt. Samt skil­aði Birt­ingur hagn­aði, vegna þess að selj­enda­lán var afskrifað.

Róbert Wessman er forstjóri Alvogen og Alvotech.
Róbert Wessman er for­stjóri Alvogen og Alvotech. Mynd: Alvogen

Rekstr­ar­tap útgáfu­fé­lags­ins Birtings, sem er umfangs­mesta tíma­rits­út­gáfa lands­ins, nam 74,2 millj­ónum króna á síð­asta ári. Það er mun minna rekstr­ar­tap en árið áður, þegar það nam rúm­lega 200 millj­ónum króna.

Eigið fé félags­ins var nei­kvætt um 67,3 millj­ónir króna í lok árs 2021. Velta Birtings var 220,4 millj­ónir króna og dróst saman um 56,2 millj­ónir króna milli ára, eða um fimmt­ung. Á móti hefur launa­kostn­aður félags­ins dreg­ist afar skarpt saman frá árinu 2020, úr 222,3 millj­ónum króna í 125,5 millj­ónir króna, eða um 44 pró­sent. Stöðu­gildum hjá Birtingi fækk­aði enda úr 25 í 12 á síð­asta ári.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Birtings fyrir árið 2021 sem birtur var nýverið í árs­reikn­inga­skrá Skatts­ins.

Hagnaður vegna afskrifta

Þrátt fyrir mikið rekstr­ar­tap í fyrra skil­aði Birt­ingur 50,2 milljón króna hagn­aði. Ástæða þess er að 135,2 milljón króna skuld félags­ins var afskrifuð. Afskriftin er færð sem tekjur. Skuldin var selj­enda­lán frá fyrr­ver­andi eig­anda Birtings, Fjár­fest­inga­fé­lag­inu Dalnum, sem veitt var þegar Sigríður Dagný Sig­ur­björns­dóttir, núver­andi eig­andi og fram­kvæmda­stjóri félags­ins, eign­að­ist það sum­arið 2020.

[adspot]Áður en Sigríður Dagný keypti Birting hafði útgáfan verið í eigu Fjár­fest­inga­fé­lags­ins Dalsins frá árinu 2017. Upp­haf­lega var það félag í eigu Árna Harð­­­­­­ar­­­­­­son, Róberts Wessman og þriggja ann­arra manna. Síð­ar var Hall­dór Krist­manns­son, þá fram­kvæmda­stjóri hjá Alvogen og náinn sam­starfs­maður Róberts Wessman og Árna Harð­ar­sonar til margra ára, skráður eig­andi félags­ins. Eftir að þeim sinn­að­ist var eign­ar­haldið fært að mestu yfir á Aztiq Invest­ment Advisory AB, sem Róbert Wessman hefur yfir­ráð yfir. Fyr­ir­svars­maður Dalsins í dag er Jóhann Guð­laugur Jóhanns­son, sem er náinn sam­starfs­maður Róberts og stjórn­andi hjá Alvogen.

Á þessu tíma­bili gaf Birt­ingur úr Vikuna, Gest­gjafann og Hús og Híbýli auk þess sem það haf út frí­blaðið Mannlíf og hélt úti vefnum mann­lif.is. Tapið á rekstri Birtings á árunum 2017 til 2020 var 762 millj­ónir króna.

Útgáfu frí­blaðs­ins var hætt í kjöl­farið og mannílfsvef­ur­inn seldur til Reynis Trausta­sonar og við­skipta­fé­laga hans snemma árs 2021.

Í dag gefur Birt­ingur því ein­ungis út áður­nefnd þrjú tíma­rit.

Sátu uppi með Birting eftir að hafa lánað Birni Inga

Innkoma Róberts Wessman og við­skipta­fé­laga hans í fjöl­miðla­geir­ann átti sér þó lengri aðdrag­anda. Hann hafði komið að fjár­­­mögnun á fjöl­miðla­veldi Björns Inga Hrafns­­sonar undir hatti Press­un­­ar, sem reis hæst á árunum 2014 til 2017 með fjöl­­mörgum yfir­­­tökum á öðrum fjöl­mið­l­­um.

[links]Síð­asta yfir­takan var á tíma­rita­út­gáf­unni Birt­ingi í lok árs 2016 og eftir hana voru tæp­lega 30 miðlar í Pressu­sam­stæð­unni. Þeirra þekkt­­astir voru DV, DV.is, Eyj­an, Pressan, sjón­­varps­­stöðin ÍNN og tíma­­ritin Vikan, Gest­gjaf­inn, Nýtt líf og Hús og híbýli.

Rekst­­ur­inn gekk afleit­lega og útheimti sífellt meira fé. Það leiddi til þess að í apríl 2017 var til­­kynnt um að hlutafé Pressunnar yrði aukið um 300 millj­­ónir króna og að sam­hliða myndi Björn Ingi stíga til hlið­­ar.

Sá aðili sem ætl­­aði að koma með mest fé inn í rekst­­ur­inn var Fjár­­­fest­inga­­fé­lagið Dal­­ur­inn, félag í eigu Róberts, Árna og þriggja ann­­arra manna, sem höfðu áður lánað Birni Inga.

Um miðjan maí voru þeir hættir við aukna fjár­fest­ingu en áttu þó enn meiri­hluta hluta­fjár í sam­stæð­unni. Á sama tíma var kaupum Pressunnar á Birt­ingi rift og Dal­ur­inn keypti í kjöl­farið allt hlutafé þess fyr­ir­tæk­is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár