Útgáfufélag Fréttablaðsins tapað yfir milljarði á þremur árum – Tapið var 240 milljónir í fyrra

Hópurinn sem keypti Torg um mitt ár 2019 hefur sett sam­tals 1,5 millj­arð króna í kaup­verð og hluta­fjár­aukn­ingar síðan að gengið var frá kaup­unum. Torg hefur síðan stækkað með sam­ein­ingum en tapar umtals­verðum fjár­hæðum á hverju ári.

Helgi Magnússon er aðaleigandi og stjórnarformaður Torgs, útgáfufélags Fréttablaðsins.
Helgi Magn­ús­son er aðal­eig­andi og stjórn­ar­for­maður Torgs, útgáfu­fé­lags Frétta­blaðs­ins. Mynd: Samsett

Fjöl­miðla­fyr­ir­tækið Torg tap­aði 240 millj­ónum króna á síð­asta ári, að því er fram kemur í frétt Frétta­blaðs­ins í dag. Torg gefur út Frétta­blað­ið, sem og vef­miðl­ana dv.is, eyjan.is, pressan.is, 433.is, hring­braut.is og fretta­bla­did.is. Fyr­ir­tækið rekur enn fremur sjón­varps­stöð­ina Hring­braut. Árið áður var end­an­legt tap Torgs 599 millj­ónir króna og því tap­aði það sam­tals 839 millj­ónum króna á tveimur árum. Þá er búið að gera ráð fyrir 146 millj­ónum króna sem Torg fékk í rekstr­ar­styrk úr rík­is­sjóði á árunum 2020 og 2021.

Þegar end­an­legu tapi árs­ins 2019 er bætt við nemur tapið á þriggja ára tíma­bili rúmum millj­arði króna.

Í frétt Frétta­blaðs­ins segir að tap­rekstur síð­ustu tveggja ára megi rekja til veiru­vand­ans sem hafi komið illa við tekju­hlið rekst­urs­ins. Þar segir einnig að Torg skuldi engin önnur vaxta­ber­andi lán en banka­lán til þriggja ára að fjár­hæð 180 millj­ónir króna.Tapinu hafi verið mætt með nýju hlutafé upp á 900 millj­ónir króna sem komið hefur frá stærsta hlut­hafa Torgs, Helga Magn­ús­syni.

Í árs­reikn­ingi fyrir árið 2020 má sjá að rekstr­ar­tap var mun hærra en end­an­legt tap. Á árunum 2019 og 2020 var millj­arðs króna tap af reglu­legri starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Munurinn á rekstr­ar­tapi árs­ins 2020 og end­an­legu tapi fólst aðal­lega í því að tekju­skatts­inn­eign sem skap­að­ist vegna taps, alls upp á 150 millj­ónir króna, var tekju­færð. Þar sagði einnig að heild­ar­skuldir félags­ins í árs­lok 2020 hafi verið um 1,5 millj­arðar króna.

Helgi Magnússon á nánast allt fyrirtækið

Torg er í eigu tveggja félaga, Hof­­garða ehf. og HFB-77 ehf. Eig­andi fyrr­­nefnda félags­­ins er fjár­­­fest­ir­inn Helgi Magn­ús­­son og hann á 82 pró­­sent í því síð­­­ar­­nefnda. Helgi er auk þess stjórn­­­ar­­for­­maður Torgs. Aðrir eig­endur þess eru Sig­­urður Arn­gríms­­son, fyrr­ver­andi aðal­­eig­andi Hring­brautar og við­­skipta­­fé­lagi Helga til margra ára, Jón G. Þór­is­­son, fyrr­ver­andi rit­­stjóri Frétta­­blaðs­ins, og Guð­­­­­­mundur Örn Jóhanns­­­­­­son, fyrr­ver­andi sjón­­­­­­varps­­­­­­stjóri Hring­brautar og nú fram­­­­­­kvæmda­­­­­­stjóri sölu, mark­aðs­­­­­­­mála og dag­­­­­­­skrár­­­­­­­gerðar hjá Torg­i. Hlutur ann­arra en Helga er hverf­andi.

[adspot]Hóp­­ur­inn keypti Torg í tveimur skrefum á árinu 2019. Kaup­verðið var trún­­að­­ar­­mál en í árs­­reikn­ingi HFB-77 ehf. fyrir árið 2019 má sjá að það félag keypti hluta­bréf fyrir 592,5 millj­­­­ónir króna á því ári. Torg var og er eina þekkta eign félags­­ins.

Hlutafé í Torgi var svo aukið um 600 millj­ónir króna í lok árs 2020 og aftur um 300 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót. Með nýju hluta­fjár­aukn­ing­unni er ljóst að settir hafa verið 1,5 millj­arðar króna í kaup á Torgi og hluta­fjár­aukn­ingar frá því að Helgi og sam­starfs­menn hans komu að rekstr­inum fyrir tæp­lega þremur árum síðan.

Fór undir 30 prósent lestur í fyrsta sinn í byrjun árs

Flagg­­skipið í útgáfu Torgs er Frétta­­blað­ið. Útgáfu­­dögum þess var fækkað úr sex í fimm á viku á árinu 2020 þegar hætt var með mán­u­­dags­út­­­gáfu blaðs­ins. Auk þess hefur dreif­ing frí­blaðs­ins dreg­ist saman úr 80 í 75 þús­und ein­tök á dag.

Lestur Frétta­­blaðs­ins mæld­ist 30 pró­­sent í febr­úar 2022. Hann hefur dalað jafnt og þétt und­an­farin ár en í apríl 2007 var hann 65,2 pró­­sent og hélst yfir 50 pró­­sent þangað til í des­em­ber 2015. Síð­­sum­­­ars 2018 fór lest­­ur­inn svo undir 40 pró­­sent í fyrsta sinn og í jan­úar 2022 fór hann í fyrsta sinn undir 30 pró­sent. Frá byrjun árs 2018 hefur lestur Frétta­­­blaðs­ins auk­ist á milli mán­aða í sjö skipti en dalað 41 sinn­­­um.

Í ald­­­ur­s­hópnum 18 til 49 ára mælist lest­­­ur­inn nú 21,2 pró­­­sent og er nú um þriðj­ungur þess sem hann var fyrir tólf árum.

Renndu tveimur fjölmiðlafyrirtækjum í miklum taprekstri inn í Torg

Í frétt Frétta­blaðs­ins um rekstr­ar­af­komu Torgs í dag segir að á árunum 2020 og 2021 hafi verið unnið að sam­ein­ingu þriggja fyr­ir­tækja: Torgs, DV og sjón­varps­stöðv­ar­innar Hring­brautar. Vinnu vegna sam­ein­ing­ar­innar sé nú að fullu lokið.

Búið var að sökkva umtals­verðum fjár­munum í bæði DV og Hring­braut áður en þeim var rennt saman við Torg.

[links]Torg gekk frá kaupum á DV og tengdum miðlum frá Frjálsri fjöl­mið­l­un, félags sem skráð er í eigu Sig­­urðar G. Guð­jóns­­sonar en var alla tíð fjár­­­magnað með vaxta­­lausum lánum frá fjár­­­fest­inga­­fé­lagi Björg­­ólfs Thors Björg­­ólfs­­son­­ar, á árinu 2020. Frá því að Frjáls fjöl­miðlun eign­að­ist mið­l­anna haustið 2017 og þangað til að þeir voru seldir til Torgs í apríl 2020 tap­aði útgáfu­­fé­lagið um 745 millj­­ónum króna. Torg greiddi samt sem áður 300 millj­­ónir króna fyrir mið­l­anna en sam­­kvæmt árs­­reikn­ingi voru 100 millj­­ónir króna greiddar með fjár­­munum úr rekstr­inum og 200 millj­­ónir króna með nýjum lang­­tíma­lán­­um. Frjáls fjöl­miðlun virð­ist hafa lánað að minnsta kosti 150 millj­­ónir króna af þeirri upp­­hæð í formi selj­enda­láns, en eina fasta­fjár­­muna­­eign þess félags er skulda­bréf upp á þá tölu sem varð til á árinu 2020.

Sam­runi Torgs og Hring­brautar á árinu 2019 bjarg­aði síð­ar­nefnda félag­inu frá gjald­þroti, sam­kvæmt því sem kom fram í ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, sem heim­il­aði sam­run­ann á þeim for­sendum að ef ekki kæmi til hans, þá myndi rekstur Hring­brautar leggj­ast af. Samtals tap­aði móð­ur­fé­lag Hring­brautar 191 milljón króna á árunum 2016 til 2019.

Kjarn­inn er á meðal þeirra fjöl­miðla sem þiggja rekstr­­­ar­­­styrki úr rík­­­is­­­sjóði og fékk 14,4 millj­­­ónir króna við síð­­­­­ustu úthlut­un. Þau fyr­ir­tæki sem hér eru til umfjöll­unar eru sam­keppn­is­að­ilar Kjarn­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár