Rekstrartap útgáfufélags Morgunblaðsins 113 milljónir og skuldir við prentsmiðju jukust

Útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins tók vaxta­laus lán hjá rík­is­sjóði og fékk rekstr­ar­styrk á sama stað í fyrra. Hlutafé var aukið um 100 millj­ónir en tap var áfram af und­ir­liggj­andi rekstri. Því tapi var snúið í hagnað með hlut­deild í afkomu prent­smiðju.

Rekstr­ar­tap Árvakurs, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins, á síð­asta ári var 113 millj­ónir króna. Það er lægra rekstr­ar­tap en árið áður, þegar útgáfu­fé­lagið tap­aði 210 millj­ónum króna. Í fyrra fékk Árvakur þó 81 millj­ónir króna í rekstr­ar­styrk úr rík­is­sjóði auk þess sem félagið frest­aði greiðslu á stað­greiðslu launa starfs­manna og trygg­inga­gjaldi í fyrra upp á alls 122 millj­ónir króna. Um er að ræða vaxta­laust lán úr rík­is­sjóði sem þarf að end­ur­greið­ast fyrir mitt ár 2026. Greiðslur eiga að hefj­ast síðar á þessu ári.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Árvakurs sem skilað var inn til Skatts­ins 25. maí síð­ast­lið­inn en var ekki birtur fyrr en í lok síð­ustu viku.

Í frétt sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í byrjun maí var greint frá því að hefði skilað 110 millj­óna króna hagn­aði í fyrra. Í þeirri frétt var ekki minnst á vaxta­lausa lán­töku hjá rík­is­sjóði.

Í árs­reikn­ingi Árvakur sést hvernig sá hagn­aður mynd­ast, en hann er ekki til­kom­inn vegna reglu­legs rekst­urs, af honum er áfram sem áður tap.

Skuldir við dótturfélag sem prentar hlaðast upp

Hlut­deild í afkomu dótt­ur- og hlut­deild­ar­fé­laga, sem teng­ist ekki grunn­rekstri Árvak­urs, útskýrir þann mun sem er á end­an­legri afkomu og rekstr­ar­af­komu, en hún er jákvæð um 243 millj­ónir króna. Þar skiptir mestu hlut­deild í Lands­prenti, sem rekur prent­smiðju sem prentar þorra þeirra prent­miðla sem gefnir eru út á Íslandi, en hún var 196 millj­ónir króna í fyrra. Rekstr­ar­tekjur dróg­ust þó saman.

[adspot]Á meðal hlut­deild­ar­fé­laga Árvak­urs er svo Póst­dreif­ing, sem Árvakur á með Torgi útgáfu­fé­lagi Frétta­blaðs­ins. Hlut­deild Árvak­urs í afkomu Póst­dreif­ingar var jákvæð um 58 millj­ónir króna á síð­asta ári.

Árvakur er á meðal stærstu við­skipta­vina bæði Lands­prents og Póst­dreif­ing­ar. Í fyrra keypti Árvakur þjón­ustu af dótt­ur­fé­lögum sínum fyrir um 1,2 millj­arða króna.

Útgáfu­fé­lagið skuldar hins vegar Lands­prenti líka háar upp­hæð­ir, alls 730 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót. Sú skuld hækk­aði um 230 millj­ónir króna í fyrra. Auk þess skuldar Árvakur öðrum tengdum félögum um 50 millj­ónir króna.

Stundin greindi frá því í lok sept­em­ber í fyrra að 40 pró­­sent verð­hækkun eða meiri væri yfir­­vof­andi á dag­­blaða­­pappír og vitn­aði þar í til­­kynn­ingu sem Lands­­prent hafði sent við­­skipta­vinum sínum en Lands­­prent prentar meðal ann­­ars Stund­ina.

Hluta­fjár­aukn­ing í byrjun árs

Kjarn­inn greindi frá því í mars að hlutafé í Morg­un­blaðs­sam­stæð­unni hafi verið aukið um 100 millj­­­ónir króna þann 31. jan­úar síð­­­ast­lið­inn. Aðilar tengdir Ísfé­lagi Vest­­­manna­eyja og félag í eigu Kaup­­­fé­lags Skag­­­firð­inga greiddu stærstan hluta henn­­ar.

Þetta var í þriðja sinn frá árinu 2019 sem nýtt hlutafé er sett inn í rekstur fjöl­miðla­­­sam­­­steypunnar til að mæta tap­­­rekstri henn­­­ar. Í byrjun árs 2019 var hluta­­­féð aukið um 200 millj­­­ónir króna. Kaup­­­­­fé­lag Skag­­­­­firð­inga og félög tengd Ísfé­lagi Vest­­­­­manna­eyja lögðu til 80 pró­­­­­sent þeirrar aukn­ing­­­ar. Sum­­­­­arið 2020 var hluta­­­féð aukið um 300 millj­­­ónir króna og kom allt féð frá þeim eig­enda­hópi sem var þegar til stað­­­ar. Að við­bættri þeirri hluta­fjár­­­aukn­ingu sem ráð­ist var í í upp­­­hafi árs hefur móð­­­ur­­­fé­lagi Árvak­­­urs því verið lagt til 600 millj­­­ónir króna á þremur árum.

Frá því að nýir eig­endur tóku við rekstri Árvak­­urs í febr­­úar 2009 undir hatti Þór­s­­merkur og til loka árs 2020 hefur útgáfu­­­fé­lagið tapað yfir 2,5 millj­­­örðum króna. Eig­enda­hóp­­­ur­inn, sem hefur tekið ein­hverjum breyt­ingum á tíma­bil­inu, hefur nú lagt Árvakri til sam­tals tvo millj­­­arða króna í nýtt hluta­­­fé.

Þegar nýju eig­end­­­­urnir tóku við rekstr­inum var Morg­un­­­­blað­ið, flagg­­­­skip útgáf­unn­­­­ar, lesið af rúm­­­­lega 40 pró­­­­sent þjóð­­­­ar­inn­­­­ar. Í síð­­­­­­­ustu birtu mæl­ingu Gallup á lestri prent­miðla var sá lestur kom­inn niður í 18 pró­­­­sent og hefur aldrei mælst lægri. Lestur blaðs­ins hjá 18-49 ára mælist 8,5 pró­­sent.

Vefur útgáf­unn­­­­ar, Mbl.is, var lengi vel mest lesni vefur lands­ins en síð­­­­­­­ustu mis­­­s­eri hefur Vísir.is, vefur í eigu Sýn­­­­ar, stöðugt mælst með fleiri not­end­­­­ur. Mbl.is hefur þó enn vinn­ing­inn þegar kemur að fjölda flett­inga en miðl­arnir tveir hafa und­an­farið verið með nán­ast sama fjölda inn­lita á viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár