Græningjar taka forystu

Þegar fimm mánuðir eru til kosningar í Þýska­landi hafa Græningjar, sem eru í dag sjötti stærsti flokkurinn í þýska þinginu, tekið forystu í skoðana­könnunum. Af kanslara­efnum þriggja stærstu flokkanna vilja flestir sjá Önnulenu Baerbock taka við.

Annalena Baerbock annar leiðtoga Græningja verður kanslaraefni flokksins í kosningunum í haust.
Annalena Baerbock annar leið­toga Græn­ingja verður kansl­ara­efni flokks­ins í kosn­ing­unum í haust. Mynd: EPA

Græningjar mælast nú trekk í trekk stærsta stjórnmálaafl Þýska­lands í skoðana­könnunum, þegar fimm mánuðir eru til kosninga. Kristilegir demó­kratar, flokkur Angelu Merkel, sem hafa farið með stjórnar­taumana í landinu undan­farin 16 ár virðast eiga í vök að verjast eftir að flokkarnir kynntu kanslara­efni sín í apríl­mánuði.

Græningjar hafa ekki verið með forystu í skoðana­könnunum síðan árið 2019, en ýmsir samverk­andi þættir eru taldir valda því að flokkurinn, sem var sá sjötti stærsti á þýska þinginu eftir kosningarnar árið 2017, er nú með rúmlega fjórðungs­fylgi í skoðana­könnunum í flestum tilfellum að mælast stærri en Kristilegir demó­kratar á landsvísu.

Í fyrsta lagi er það óánægja Þjóðverja með stífar sótt­varnar­aðgerðir sem hafa verið við lýði undan­farna mánuði, en eftir að hafa verið með ágætis tök á faraldrinum í upphafi þessa árs versnaði staðan mjög, gripið var til harðra aðgerða sem hefur reynst erfitt að vinda ofan af og ríkis­stjórn Merkel lá undir ámæli frá lang­þreyttum þýskum þegnum fyrir að missa stjórn á stöðunni. Hægagangur í bólu­setningu framan af vori bætti ekki þessa stöðu ráðandi afla.

Í öðru lagi eru það kanslara­efnin sjálf, en Græningjar kynntu Önnulenu Baerbock sem kanslara­efni sitt sinn um sama leyti og tilkynnt var að Armin Laschet leiðtogi Kristilegra demókrata myndi leiða kosninga­bandalag flokksins og systur­flokksins í Bæjara­landi, eins og Kjarninn fjallaði um í apríl­mánuði.

Annalena Baerbock þykir öflugur stjórn­málamaður með skýra og trúverðuga sýn á umhverfismál, sem eru mörgum Þjóð­verjum hugleikin, ekki síst yngri kynslóðum. Að sama skapi virðist ljóst að mörgum þykir Armin Laschet ekkert sérstak­lega spennandi stjórn­málamaður og hefur hann jafnvel átt erfitt með að fylkja sínum eigin flokks­mönnum að baki sér, samkvæmt skoðana­könnunum.

Í könnunum á milli kanslara­efna þriggja stærstu flokkanna undan­farnar vikur hefur Baerbock verið með töluverða forystu, en á bilinu 26-32 prósent nefna hana sem vænlegasta kanslara­kostinn þegar valið stendur á milli hennar, Laschet og formanns Sósíal­demókrata, Olaf Scholz. Fimmtán til átján prósent hafa nefnt Laschet í þessu þriggja hesta kapp­hlaupi en þrettán til tuttugu prósent hafa talið Scholz vænlegasta kostinn í undan­förnum könnunum. Stór hluti aðspurðra, eða yfir þriðjungur, kýs þó að velja ekkert þeirra.

Þýskir stjórnmála­skýrendur telja margt óvíst um hvernig mál muni þróast á næstu mánuðum.

Stefan Merz hjá rannsókna­fyrirtækinu Infratest Dimap sagði við breska blaðið Guardian á dögunum að þrátt fyrir að staðan væri Græningjum hagfelld í dag gæti það breyst eftir að þorri þýsku þjóðarinnar verður orðinn bólu­settur fyrir COVID-19 og hömlum í samfélaginu verður aflétt.

„Ef samfélags­umræðan færist yfir á efnahags­málin á þeim tíma­punkti gætu Kristilegir demó­kratar unnið sig til baka,“ sagði Merz.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár