Armin eða Annalena?

Sextugur karl og fertug kona eru talin þau einu sem möguleika eiga á að taka við af Angelu Merkel og verða næsti kanslari Þýska­lands. Græningjar með Önnulenu Baerbock í farar­broddi eru á flugi í skoðana­könnunum.

Armin Laschet og Annalena Baerbock. Telja má nánast öruggt að annað þeirra verði næsti kanslari Þýskalands.
Armin Laschet og Annalena Baerbock. Telja má nán­ast öruggt að annað þeirra verði næsti kansl­ari Þýska­lands. Mynd: EPA

Stjórnmála­forysta Þýska­lands mun fá nýja ásýnd í haust, er Angela Merkel lætur af embætti eftir 16 ára setu sem kanslari. Í vikunni hafa flokkarnir tveir sem taldir eru eiga raunhæfa möguleika á því að vera leiðandi afl í þýskum stjórn­málum eftir kosningar komist að niður­stöðu um það hver verði kanslara­efni þeirra.

Hjá Kristilegum demó­krötum (CDU) og systur­flokknum CSU í Bæjara­landi höfðu tveir menn sóst eftir því að leiða hreyfinguna til kosninga og verða arftakar Merkel á kanslara­stóli. Annars vegar er það Armin Laschet, sem kjörinn var leiðtogi CDU í janúar­mánuði og hins vegar leiðtogi systur­flokksins í suðri, Markus Söder.

Á löngum fjarfundi á mánudags­kvöld komst flokk­stjórnin að þeirri niður­stöðu að Laschet, sem er dyggur stuðn­ings­maður Merkel og af mörgum talinn boða áframhald á hennar stefnu, væri rétti maðurinn til að leiða flokkinn til kosninga. Atkvæði féllu 31-9, hinum sextuga Laschet í vil.

„Teningunum hefur verið kastað. Armin Laschet verður kanslara­efni CDU/CSU,“ sagði Söder á blaðamanna­fundi í München í dag og lýsti því yfir að hann sjálfur og CSU myndu róa öllum árum að því að systur­flokkarnir, með Leschet sem kanslara­efni, myndu vinna kosninga­sigur.

Gjörbreytt staða frá því febrúar

Þegar Laschet var kjörinn nýr leiðtogi CDU í janúar­mánuði leit allt út fyrir að eina mögulega baráttan um kanslara­embættið myndi fara fram innan hreyfingarinnar, einmitt á milli hans og Söder. Ekki var talið raunhæft að aðrir flokkar ættu möguleika á því að leiða stjórn, en þá var CDU/CSU að mælast með á bilinu 35-37 prósent fylgi í skoðana­könnunum.

Sú staða hefur snarbreyst síðan þá, ekki síst vegna óánægju með sótt­varnar­aðgerðir. Þær hafa verið afar stífar í Þýska­landi, sem hefur átt í mestu vandræðum með að vinna sig út úr þriðju bylgju faraldursins. Fylgi CDU/CSU hefur mælst á bilinu 26-31 prósent undan­farinn mánuð og er komið á svipaðar slóðir og það var áður en faraldurinn skall á og byrjaði að setja allt úr skorðum snemma árs 2020. Þá fylkti fólk sér á bak við ríkis­stjórnar­flokkana, en nú er komin þreyta.

Könnun um stöðu mála eftir að ljóst var hver kanslara­efnin tvö yrðu birtist í dag, en hún sýnir Kristilega demókrata með einungis 21 prósent fylgi – og Græningja með 28 prósent fylgi. Sem eru miklar sviptingar, frá síðustu könnunum. Raunar er þetta í fyrsta sinn síðan árið 2019 sem Græningjar mælast stærri en CDU/CSU blokkin.

Annalena kanslaraefni Græningja

Fylgistap Kristilegra demókrata opnar á möguleika sem þóttu afar fjarlægir fyrir örfáum mánuðum. Græningjar, sem hafa verið í stjórnar­andstöðu allt frá árinu 2005, hafa verið með 20-23 prósenta fylgi og gera sér greini­lega vonir um að vera eftir kosningar í þeirri stöðu að geta orðið leiðandi afl í ríkis­stjórn landsins og myndað samsteypu­stjórn án aðkomu CDU/CSU.

Flokkurinn, sem hefur einungis einu sinni fengið yfir 10 prósent atkvæða í þing­kosningum (árið 2009) og fékk 8,9 prósent árið 2017, hefur í fyrsta sinn tilnefnt kanslara­efni.

Það gerði flokkurinn í gær, en allnokkrar vanga­veltur höfðu verið um það hvert kanslara­efnið yrði. Leiðtogar flokksins eru nefnilega tveir, Annalena Baerbock og Robert Habeck. Niður­staðan varð að Baerbock, sem er fertug að aldri og lögfræðingur að mennt, myndi verða kanslara­efni flokksins.

Þessi niður­staða var kynnt á blaðamanna­fundi í gær og þar sagði Baerbock, samkvæmt frétt DW, að leiðtogum flokksins hefði ekki órað fyrir því að verða að velja kanslara­efni árið 2021, er þau tóku ákvörðun um stefnu­breytingu í þá átt að flokkurinn höfðaði til fleiri kjósenda fyrir þremur árum síðan.

„Róttæk og stjórnspekingsleg“

Baerbock og Habeck hafa fært Græningja inn á miðjuna frá jaðrinum. Eða miðjuna í þýskum stjórn­málum ögn lengra til vinstri. Reynt er að höfða til fjöldans í auknum mæli. Sjálf hefur hún margoft notað orðin „róttæk og stjórn­spekingsleg“ til þess að lýsa þeirri ímynd sem flokkurinn hefur reynt að skapa sér.

Baerbock hefur haslað sér völl í stjórn­málum hratt. Hún var fyrst kjörin á þing árið 2013 og var síðan kjörin annar tveggja leiðtoga flokksins árið 2018. Síðan þá hefur flokkurinn notið góðs gengis í skoðana­könnunum, en áherslur flokksins á umhverfismál og róttækari aðgerðir í loftslags­málum en boðaðar hafa verið af hálfu þýsku stjórnarinnar hafa hlotið mikinn hljóm­grunn.

Mikið hefur verið spáð og spekúlerað í mögulegt stjórnar­mynstur í Þýska­landi eftir komandi kosningar. Samkvæmt nýjustu skoðana­könnunum hefðu Kristilegir demókrata og Græningjar kost á því að mynda tveggja flokka stjórn, á meðan að afar hæpið er að núverandi stjórn Kristilegra demókrata og Sósíal­demókrata haldi velli í ljósi fylgis­taps beggja flokka.

Græningjar gætu hins vegar þurft að gefa tölu­verðan afslátt af stefnu­málum sínum í slíkri stjórn og sú mynd er að teiknast upp að mögulega, kannski, geti flokkurinn leitt þriggja flokka stjórn, án aðkomu CDU/CSU. Með Baerbock sem kanslara. Það er þó enn langt til kosninga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár