Einar blindi og Eyrún til bjargar

Guðni Gunnarsson, höfundur Rope-jóga, ráðleggur fólki að byrja smátt við að snúa lífi sínu til betri vegar með því að þjálfa huga og líkama til að auka lífsgæði sín. Engin ástæða til að þenja sig í blóðspreng á hlaupa­bretti.

Meistarinn
Meist­ar­inn Guðni Gunn­ars­son hefur þróað sitt eigið jóga­kerfi. Hann nýtur mik­illar virð­ingar í fagi sínu. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Maður á alltaf að byrja smátt. Það er ekki hægt að breyta tilvist sinni með átaki, áhlaupi eða steyttum hnefa,“ segir Guðni Gunnarsson, stofnandi og upphafs­maður Rope Yoga-hugmynda­fræðinnar. Guðni Gunnarsson er einn af frumkvöðlum Íslands á sviði líkams- og heilsu­ræktar. Hann skrifaði bókina Máttur athyglinnar.

„Ég segi fólki gjarnan að ef það vill byrja þá eru tvær æfingar sem ég held meira upp á en nokkuð annað. Aðra æfinguna kalla ég Eyrúnu en það er vegna þess að ég nota þumlana og held um eyrna­sneplana á mér og geri hnébeygjur. Ef fólk gerir 10 hnébeygjur á dag, hægt og í vitund þá eru það 70 á viku og 3.600 á ári. Það er magnað að sjá hve miklar og jákvæðar breytingar verða á einum einstaklingi á örfáum vikum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár