Nemendur og kennarar komnir með nóg af því að vera veikir í skólanum

„Þeir sem stjórna hérna vilja bara gleyma okkur,“ segir nemandi í Lista­háskóla Íslands, þar sem bæði starfs­fólk og nemar finna fyrir marg­víslegum einkennum veikinda sem þeir tengja við myglu­svepp. Nemendur lýsa bættri heilsu eftir útskrift.

Nemendur Lista­háskóla Íslands hafa fundið fyrir veikindum í áraraðir  í húsnæði Lista­háskólans á Sölvhólsgötu 13. Einkennin geta lýst sér sem þurkur í hálsi, sviði í augum, mígreni, krónískum höfuðverk og svefn­truflunum. Nemendurnir fullyrða að um myglu­svepp sé að ræða, en rektor hefur ekki staðfest það. Þeir segja ástandið óviðunandi og krefjast umbóta strax í herferð á samfélags­miðlum undir myllu­merkinu #LHÍmygla.

Að sögn nemenda er myglan hluti af stærri húsnæðis­vanda Lista­háskólans þar sem húsnæðið henti ekki listnámi og þar sé ekki hjólastóla­aðgengi fyrir hreyfi­hamlaða nemendur. Salvör Gullbrá Þórarins­dóttir nemandi á sviðs­höfunda­braut segir í samtali við Stundina, „furðulegt að árið 2017 viðgengst það að aðeins ófatlaðir einstaklingar sem eru ónæmir fyrir myglu­svepp geta stundað þetta nám.“

 

„Kennarinn hætti að geta kennt okkur vegna sviða í augum“

„Sjálf finn ég fyrir miklum þurk í hálsi og sviða í augum. Fjölmargir nemendur finna fyrir einkennum og hafa talað um þau í um tíu ár en aldrei er tekið á málinu. Málið er víst núna til rann­sóknar en engin niður­staða er komin svo við vitum. Án þess að vera einhver vísinda­maður finnst mér ólíklegt að 100 nemendur séu allir með ímyndunar­veiki. Margir kennarara vilja ekki stíga inn fyrir húsið því þeir finna fyrir strax fyrir einkennunum. Við viljum auðvitað geta lært án þess að finna fyrir slapp­leika og verða sljó. Við viljum að gengið sé í málið í eitt skipti fyrir öll og viljum að niður­stöðurnar úr þessari rannsókn sem stendur yfir verði birtar sem fyrst,“ segir Salvör.

Í byrjun desember greindi Frétta­blaðið frá því að Fasteigna­umsýsla ríkis­sjóðs kannaði hvort myglu­svepp væri að finna í húsnæði Lista­háskóla Íslands. Ólafur Hallgrímsson, umsjónar­maður húseigna LHÍ, segir að von sé á niður­stöðum eftir hálfan mánuð. Í samtali við Stundina segir Ólafur að ef niður­staðan verði að myglusvepppur sé í húsinu þurfi að grípa til aðgerða. Það væri alfarið á ábyrgð Ríkis­eigna sem eiga húsið. Lista­háskólinn leigir húsið af Ríkis­eignum og þeir verða að sjá til þess að húsið sé í lagi.

Adolf Smári Unnarsson
Adolf Smári Unnarsson Segir nemendur finna fyrir djöfullegum kvillum

 

Kennarinn hætti að geta kennt vegna sviða í augum 

Snæfríður Sól Gunnars­dóttir, nemandi á sviðs­höfunda­braut, segir mikla reiði hafa vaknað meðal nemenda í gær. „Við vorum í tíma í inni í rýminu sem er hvað verst sett og undir lokin var kennarinn hættur að geta kennt okkur vegna sviða í augum. Það er enginn vafi á að það sé myglu­sveppur. Núna finn ég ekki fyrir miklum einkennum. Margir bekkjar­félagar mínir og starfs­fólk skólans finnur fyrir þessu. Ég ætla ekki bara að sitja og bíða á meðan einkennin hrannast upp,“ segir Snæfríður Sól í samtali við Stundina.

Adolf Smári Unnarsson segir myglu­sveppinn aðeins vera hluti af stærra vandamáli. „Nemendur finna fyrir djöfullegum kvillum sem eiga rætur sínar að rekja til myglu­sveppsins. Okkur grunar að það sé bara litið framhjá þessu, það er tendens í samfélaginu að líta fram hjá listnámi. Ég held að okkur verði bara úthýst hérna því þeir sem stjórna hérna vilja bara gleyma okkur,“ segir Adolf Smári

„Okkur grunar að það sé bara litið framhjá þessu, það er tendens í samfélaginu að líta framhjá listnámi.“

„Fyrir einhverjum árum var sett upp bráðabyrgðhúsnæði fyrir listdans­brautina sem átti að vera hérna til tveggja eða þriggja ára. Þeir sem voru þá nemendur eru byrjaðir að kenna okkur og nú 12 árum síðar er þetta húsnæði enn hérna,“ segir Adolf Smári. Hann segir að fyrrum nemendur hafi varað þau við þegar þau hófu nám í Lista­háskólanum og jafnframt að þau lýsi undra­verðum bata þegar þau útskrifast.

Skólpleki fór í sófa

Hallveg Kristin Eiríks­dóttir er í starfs­námi í Stokk­hólmi og segist hafa fundið gríðar­legan mun á heilsu­fari sínu eftir að hún fór út fyrir rúmum mánuði síðan. „Hérna er ég að vinna nákvæmlega sömu vinnu og á Íslandi undir nákvæmlega sama álagi en hef ekki fundið fyrir neinum af þessum einkennum. Þetta er mikið líkamleg vinna og stundum erum við að setja upp sýningar í marga daga, þetta húsnæði er viðbjóður. Það er ekki bara myglan, í fyrra sprakk eitthvað rör og myndaði skólpleka. Það lak niður í eina sófann sem sviðs­höfundar­braut hefur. Við stóðum bara yfir sófanum sem var rennandi blautur með einhverju svörtu vatni í,“ segir Hallveig Kristín í samtali við Stundina.

Erfitt er fyrir nemendur að bregðast við vanda­málinu.

„Það er alltaf einhver að mótmæla og vekja athygli á þessu og einhver plön sett í gang. Svo gerist aldrei neitt, nemendurnir útskrifast og nýjir nemendur koma og ferlið fer aftur á byrjunar­reit. Við erum að borga hálfa milljón á ári fyrir myglað húsnæði með engu hjólastóla­aðgengi þar sem stundum kemur skólpleki,“ segir Hallveig Kristín.

Hallveig Kristín Eiríksdóttir
Hallveig Kristín Eiríks­dóttir Andar að sér fersku lofti í starfs­námi í Svíþjóð

„Við erum að borga hálfa milljón á ári fyrir myglað húsnæði með engu hjólastóla­aðgengi þar sem stundum kemur skólpleki.“ 

Í samtali við Stundina segir Fríða Björk Ingvars­dóttir, rektor Lista­háskóla Íslands, að litið sé mjög alvarlegum augum á vanda­málið. „Við höfum grun um að það sé húsasótt. Lista­háskólinn fór fram á rannsókn en niður­staðan liggur ekki fyrir. Rann­sóknin snýst um að fá það staðfest hvort um myglu­svepp sé að ræða eða ekki. Fyrir utan grun um myglu­svepp vitum við að húsnæðið er algjör­lega óviðunandi of hefur verið það í 20 ár. Við höfum lagt hart að ríkinu að eiga við okkur samtal um framtíðar­uppbyggingu en það hefur verið árangurs­laust. Lista­háskólinn er núna á fjórum stöðum í borginni og í tveim þeirra er ekki hjólastóla­aðgengi. Við beittum öllum ráðum sem við kunnum til að eiga samtal við seinustu ríkis­stjórn en án árangurs. Við bindum vonir um að ná áheyrn núverandi mennta- og mennignarmálaráðherra. Hvort sem það er húsasótt eða ekki hæfir þetta húsnæði ekki til listnáms,“ segir Fríða Björk. 

Snæfríður Björnsdóttir
Snæfríður Björns­dóttir Hefur haft hálsbólgu og höfuðverk nánast frá því skólaárið hófst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár