Framsalsmál rædd af sendiherra Íslands við ráðherra í Namibíu í febrúar 2020

Samkvæmt namibíska dómsmála­ráðuneytinu var mögu­leikinn, eða öllu heldur ómöguleikinn, á framsali Íslendinga til Namibíu til umræðu á fundi sendi­herra Íslands í Úganda og namibísks ráðherra, sem fram fór í febrúar árið 2020.

Unnur Orradóttir Remette fyrrverandi sendiherra í Úganda og Netumbo Nandi-Ndaitwah ráðherra alþjóðasamstarfs í Namibíu.
Unnur Orra­dóttir Remette fyrr­ver­andi sendi­herra í Úganda og Netumbo Nandi-Ndaitwah ráð­herra alþjóða­sam­starfs í Namibíu. Mynd: Stjórnarráðið

Í febrúar árið 2020 fundaði Unnur Orra­dóttir Ramette, þáverandi sendi­herra Íslands í Kampala í Úganda, með Netumbo Nandi-Ndaitwah, ráðherra alþjóða­samskipta og -samstarfs í namibísku ríkis­stjórninni. Til umræðu á fundi þeirra var meðal annars mögu­leikinn á því að íslenskir ríkis­borgarar fengjust fram­seldir til Namibíu, samkvæmt því sem fram kemur í frétt namibíska blaðsins Namibian.

Í frétt blaðsins á miðvikudag var vitnað til bréfa sem gengið hafa á milli namibísku spillingar­lögreglunnar ACC og dómsmála­ráðuneytis Namibíu undan­farnar vikur.

Spillingar­lögreglan er samkvæmt fréttinni orðin langeyg eftir því að dómsmála­ráðuneytið, sem fer með formleg samskipti er varða réttar­beiðnir við önnur ríki, óski formlega eftir framsali þriggja núverandi og fyrr­verandi starfs­manna Samherja­samstæðunnar við íslensk yfirvöld.

Samkvæmt frétt blaðsins bað spillingar­lögreglan dómsmála­ráðuneytið um að koma þessari beiðni af stað í febrúar á þessu ári, en síðan þá hefur ekkert gerst.

Í bréfi frá ráðuneytis­stjóra í dómsmála­ráðuneytinu, sem Namibian vísar til, segir frá því að sendi­herra Íslands hafi fundað með namibíska ráðherranum og á þeim fundi hafi íslenski sendi­herrann gert namibíska ráðherranum ljóst að það væri bannað að framselja íslenska ríkis­borgara. Ennfremur, að öllum beiðnum frá Namibíu um framsal fyrr­verandi framkvæmda­stjóra félaga á vegum Samherja í landinu yrði hafnað.

Fundað í Windhoek

Kjarninn hafði ekki heyrt um þennan fund fyrr og í frétt Namibian kom ekki fram hvenær hann hefði átt sér stað.

Blaða­maður beindi því fyrir­spurn til utan­ríkis­ráðuneytisins um það hvar og hvenær þessi fundur sem vitnað var til í frétt Namibian hefði átt sér stað.

Í svari ráðuneytisins við fyrir­spurn Kjarnans segir að þessi fundur sem vísað er til í frétt Namibian hafi farið fram í Windhoek, höfuðborg Namibíu, í febrúar árið 2020, eða einungis rúmum þremur mánuðum eftir að Samherja­málið kom upp.

Hann hafi verið á milli þáverandi sendi­herra Íslands í Kampala, sem var Unnur Orra­dóttir Remette, og ráðherra alþjóða­samskipta og alþjóða­samstarfs Namibíu, sem heitir Netumbo Nandi-Ndaitwah.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár