Nær Ive að blása lífi í nýsköpunina hjá Apple?

Bretinn Jonathan Ive hefur tekið við stjórnun hönnunar og notenda­upplifunar hjá Apple á nýjan leik. Þetta verð­mætasta fyrirtæki heimsins hefur fengið á sig mikla gagnrýni að undan­förnu fyrir að koma ekki fram með nægilega miklar nýjungar.

Breski iðnhönnuðurinn Jonathan Ive er kominn aftur inn í stjórnenda­teymi Apple og mun stýra hönnun og notenda­upplifun fyrir­tækisins.

Í umfjöllun Wall Street Journal kemur fram að miklar vonir séu bundnar við að Ive takist að efla nýsköpunina hjá Apple, en fyrir­tækið hefur verið gagnrýnt töluvert á undan­förnum árum fyrir að hafa ekki verið nægilega framsækið þegar kemur að nýsköpun.

Ive hóf fyrst störf hjá Apple árið 1992 og hefur æ síðan komið að hönnun á ýmsum þekktustu vörum Apple. Hann vann náið með Steve Jobs heitnum, þegar hann var við stjórnvölinn hjá fyrir­tækinu, en fyrsta varan sem hann hannaði að fullu sjálfur var iMac tölvan.

Ive hefur á undan­förnum árum unnið að hönnun á höfuð­stöðvum Apple en þær verða teknar að fullu í notkun á næsta ári.

Verkefnið er risavaxið, en heildar­kostnaður er metinn rúmlega fimm milljarðar Bandaríkja­dala, eða sem nemur 530 milljörðum króna.

Ive þykir með áhrifamestu hönnuðum samtímans og var hann meðal annars aðlaður af Elísabetu Bretlands­drottningu árið 2012, fyrir áhrif sín á sviði hönnunar, og getur því kallað sig Sir. Jonathan Ive. Hann er menntaður í iðnhönnun, en hefur sjálfur sagt að hans mesti áhrifa­valdur í hönnun sé faðir hans, Michael Ive, en hann starfaði sem silfur­smiður.

Óhætt er að segja fjárhagur Apple sé traustur. Þetta verð­mætasta félag heims er nú metið á 870 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 90 þúsund milljarða króna.

Fyrir­tækið er með fulla vasa fjár, eftir ótrúlegt gengi á undan­förnum áratug. Samtals á fyrir­tækið 270 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 30 þúsund milljarða króna, í lausu fé frá rekstri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár