Samherjaumfjöllun verðlaunuð fyrir rannsóknarblaðamennsku

Blaðamanna­verðlaun ársins 2019 voru afhent í dag.

Aðalsteinn Kjartansson, Stefán Drengsson og Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, sem tók við verðlaunum fyrir hönd Inga Freys Vilhjálmssonar.
Aðal­steinn Kjart­ans­son, Stefán Drengs­son og Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir, sem tók við verð­launum fyrir hönd Inga Freys Vil­hjálms­sonar. Mynd: Þórður Snær Júlíusson

Aðal­steinn Kjart­ans­son, Helgi Selj­an og Stefán Drengs­son dagskrár­gerðarmenn frétta­skýringa­þáttarins Kveiks á RÚV og Ingi Freyr Vil­hjálms­son blaða­maður á Stund­inni unnu Blaðamanna­verðlaun ársins 2019 fyrir rann­sókn­ar­blaða­mennsku rétt í þessu. Verðlaun­in voru af­hent í fé­lags­heim­ili blaða­manna í Síðumúla 23 í dag.

Verð­launin fengu þeir fyrir umfjöllun um Sam­herj­a­mál­ið. „Fá mál vöktu meiri athygli í íslensku sam­fé­lagi en umfjöllun Kveiks og Stund­ar­innar í sam­vinnu við Al Jazeera og Wiki­leaks um ásak­anir á hendur Sam­herja um mútu­greiðslur í tengslum við starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Namib­íu. Umfjöll­unin byggði stað­hæf­ingum fyrrum starfs­manns Sam­herja í Namibíu og miklu magni gagna sem einnig voru gerð aðgengi­leg almenn­ingi á net­inu sam­hliða birt­ingu frétta af mál­inu. Umfjöll­unin hefur haft mikil áhrif, bæði hér heima og erlend­is,“ sagði í rökstuðningi dómnefndar þegar tilkynnt var um tilnefningar.

Arnar Páll Hauks­son á Spegl­in­um á RÚV vann Blaðamanna­verðlaun ársins 2019 fyrir umfjöllun um kjara­mál. „Arnar Páll hefur af djúpri þekk­ingu og ára­langri yfir­sýn fjallað um kjara­mál með afar vönd­uðum hætti í ótal fréttum og frétta­skýr­ingum á tímum mik­ils umróts á vinnu­mark­aði. Hann hefur fjallað ítar­lega um hug­myndir og til­lögur sem lagðar hafa verið fram í kjara­við­ræðum og flytur iðu­lega fyrstu fréttir af þróun mála,“ sagði í umsögn dómnefndar. 

Alma Mjöll Ólafs­dótt­ir, Jóhann Páll Jóhanns­son, Mar­grét Mart­eins­dótt­ir, og Stein­dór Grétar Jóns­son á Stund­inni unnu fyrir bestu umfjöllun ársins um ham­fara­hlýn­un. Í rökstuðningi dómnefndar fyrir tilnefningu kom fram að um yfir­grips­mik­la og vand­aða umfjöllun væri að ræða þar sem blaða­menn Stund­ar­innar fjalla um fyr­ir­séðar afleið­ingar og birt­ing­ar­myndir lofts­lags­vár hér á landi og víð­ar, aðgerðir stjórn­valda og við­leitni ein­stak­linga til þess að vega upp á móti skað­legum umhverf­is­á­hrifum sem stafað geta af dag­legu lífi fólks.

Erla Björg Gunn­ars­dótt­ir, Nadine Guð­rún Yag­hi, og Jóhann K. Jóhanns­son, Komp­ási, Frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unn­ar unnu fyrir við­tal ársins og umfjöllun um barn sem var lokað inni á heim­ili með geð­veikri móð­ur. „Vandað við­tal við 17 ára stúlku, Mar­gréti Lillý Ein­ars­dótt­ur, sem lýsir því hvernig sam­fé­lagið brást henni þegar hún á grunn­skóla­aldri ólst upp ein hjá móður sem átti við bæði geð­rænan vanda og fíkni­vanda að stríða. Við­talið vakti verð­skuld­aða athygli og var fylgt eftir með fjölda frétta um stöðu barna í við­kvæmri stöðu, starf­semi barna­vernd­ar­nefnda og fleiri þætti og leiddi meðal ann­ars til þess að bæj­ar­stjóri Sel­tjarn­ar­ness baðst form­lega afsök­unar á því hvernig staðið var að málum í til­viki Mar­grétar Lillý­ar,“ sagði í umsögn dómnefndar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár