Þórdís Elva stígur fram með nauðgara sínum: Vill taka ábyrgð á sársaukanum sem hann hefur valdið

Þórdís Elva Þorvalds­dóttir var sextán ára þegar kærastinn hennar, Tom Stranger, nauðgaði henni. Í kjölfarið skildu leiðir, þar til hún sendi honum bréf. Hann axlaði strax ábyrgð á gjörðum sínum og á dögunum stigu þau fram saman og sögðu sögu sína á Ted ráðstefnunni. Mynd­bandið er birt hér.

Árið 1996 eignaðist Þórdís Elva Þorvalds­dóttir fyrsta kærastann, Tom Stranger, skipti­nema frá Ástralíu. Eftir skólaball nauðgaði Tom Þórdísi og í kjölfarið skildu leiðir í mörg ár, þar til hún ákvað 25 ára gömul að senda honum bréf. Viðbrögðin komu henni vægast sagt á óvart en hann axlaði ábyrgð á gjörðum sínum. Eftir margra ára bréfa­skiptir ákváðu þau að hittast á miðri leið, í Suður Afríku og gera upp fortíðina. Hún hefur nú skrifað bók um þetta ferli, Handan fyrirgefningar, en hér segja þau saman sögu sína.

„Þetta var eins og ævintýri. Sterkir hand­leggir hans utan um mig er hann lagði mig niður í öryggi rúmsins míns. En þakklætið sem ég fann til hans breyttist fljótlega í hrylling. Hann tók mig úr fötunum og fór ofan á mig,“ segir Þórdís um nauðgunina, en hún segir líkamann hafa verið of veikan til að streitast á móti. „Sárs­aukinn var blindandi. Ég hélt ég yrði klofin í tvennt.“

Þórdís segist hafa talið sekúndurnar á vekjara­klukkunni sinni í hljóði á meðan á verknaðinum stóð. „Og uppfrá þessu kvöldi hef ég vitað að það eru sjö þúsund og tvö hundruð sekúndur í tveimur klukku­tímum.“ Hún segir að þrátt fyrir að hafa haltrað í marga daga og grátið í margar vikur hafi atvikið ekki passað við hennar hugmynd um nauðgun, þeirri sem hún hafði séð í sjón­varpinu. „Tom var ekki vopnaður geðsjúklingur, hann var kærasti minn. Og þetta gerðist ekki í dimmu húsasundi, heldur í rúminu mínu,“ heldur hún áfram. 

Þegar hún hafi loksins viðurkennt fyrir sjálfri sér að það sem kom fyrir hana hafi verið nauðgun, var hann farinn aftur til Ástralíu og henni hafi þótt tilgangs­laust að gera veður úr þessu. Þar að auki fannst henni nauðgunin henni sjálfri að kenna. „Ég er alin upp í heimi þar sem konum er kennt að þeim er nauðgað af ástæðu. Pilsin þeirra voru of stutt, brosið þeirra of breitt, their breath smelt of alchohol. Ég var sek um alla þessa hluti. Skömmin hlaut því að vera mín. 

Hún segir það hafa tekið hana mörg ár að átta sig á því að aðeins eitt hefði getað komið í veg fyrir að henni yrði nauðgað þetta kvöld, og það hafi ekki verið pilsið hennar, brosið eða barnslegt traustið. „Það eina sem hefði getað komið í veg fyrir að mér yrði nauðgað þetta kvöld er maðurinn sem nauðgaði mér, hefði hann stöðvað sjálfan sig.“ 

Tom segist eiga óljósar minningar um daginn eftir nauðgunina. Hann muni eftir eftir­köstum drykkjunnar og ákveðnum tómleika sem hann reyndi að hunsa. „Orðið nauðgun berg­málaði ekki í huga mér, eins og það hefði átt að gera,“ segir hann meðal annars. „Skilgreining mín á mínum eigin aðgerðum viðurkenndi á engan hátt áfallið sem ég olli Þórdísi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár